Símablaðið - 01.01.1959, Side 27
☆ TILKYNNING ☆
til starfsfólks á I. fl. B. símastöðvum.
Þar sem Félagi ísl. símamanna hefur
tekizt að fá allt starfsfólk á I. fl. B. síma-
stöðvum, sem vinnur sitt aðalstarf þar, við-
urkennt sem opinbera starfsmenn og þar
með aflað því fullra réttinda, sem lögin
um réttindi og skyldur veita, hefur stjórn
F.f.S. falið stöðvarstjórunum að bjóða
þessu fólki að gerast félagar í F. f. S. og
beðíð þá að skrá það og innheimta félags-
gjöld af því. Þá hefur stjórnin sent stöðv-
arstjórunum lög félagsins og lögin um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
og munu gögn þessi liggja frammi hjá
þeim.
☆ ☆ -K
Frá Lánasjóði.
Framvegis verða lán úr Lánasjóði Síma-
manna aðeins afgreidd tvisvar í viku, á
mánudögum og fimmtudögum.
Hámark skyndilána hefur verið ákveðið
kr. 1.000.— og verður ekki veitt oftar en
2 mánuði í röð, enda líði minnst 3 mán-
uðir frá því skyndilán er greitt, og þar
til nýtt lán er veitt.
Afgreiðsla lána fer fram á skrifstofu Að-
algjaldkera Landssímans.
Á sama stað og dögum fer fram af-
greiðsla lengri lána, gegn afhendingu veð-
bréfs.
Útdráttur úr skýrslu formanns F.Í.S.
3 fyrrihluta aðalfundar 1958
Lóranstöðvarmálið:
Hæstaréttardómur var uppkveðinn í Lór-
anstöðvarmálinu snemma á árinu 1958. Nið-
urstöður dómsins voru, að staðfestur var í
öllum atriðum undirréttardómurinn, en
hann var á þá lund, að allir sérsamningar, er
fara í bág við gildandi reglugerðir um launa-
kjör símamanna geti ekki staðizt. Þá stað-
festi þessi dómur það, að kröfur vegna van-
goldinna launa fyrnist ekki, sem sé ef ein-
hver starfsmaður getur sannað að hann hafi
verið „hýrudreginn" fyrir mörgum órum
(eins og hér átti sér stað), þá er krafan
um endurgreiðslu í fullu gildi. Þessi dómur
er ekki aðeins þýðingarmikill fyrir okkur
símamenn heldur alla opinbera starfsmenn og
fl. fastlaunamenn. Ef félagsmenn vilja kynna
sér málsatvik nánar þá vísa ég til greina um
þetta mál í Símablaðinu, 1. tölublað 1956 og
I. tölublað 1958.
Heiðmörk.
Farið var í Heiðmörk eins og undanfarin
ár og gróðursettar rúmar 3 þúsund trjáplönt-
ur af ýmsum tegundum. Hefur félagið þá
gróðursett um 20 þúsund trjáplöntur í gróð-
urreit sinn í Heiðmörk.
Símablaðið.
Gefin voru út 4 blöð á árinu, samtals 86 les-
máls-síður. Heildarkostnaður nam um kr.
47.000,00, reksturshalli blaðsins verður kr.
II. 098,27, sem greiddur verður úr Menning-
ar- og kynningarsjóði, eins og gert er ráð fyr-
ir í reglum sjóðsins.
Réttindamál starfsfólksins
á 1. fl. B. stöðvum.
í skýrslu minni frá fyrra ári taldi ég að
réttindamál starfsfólksins á 1. fl. B. stöðv-
unum væri leyst og byggðist það á því að
fjármálaráðuneytið tjáði stjórn félagsins
munnlega, að það liefði fallizt á sjónarmið
félagsins, hins vegar væri aðeins eftir að
ganga formlega frá málinu við póst- og síma-
málastjórnina. Og liafði ráðuneytið liugsað
SlMABL AÐIÐ
er gefið út af Félagi ísl. símamanna.
Rltstjóri: A. G. Þormar.
MeOritstjóri: Ingólfur Einarsson.
Auglýsingastjóri: Júlíus Pálsson
Félagsprentsmiðj an.