Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Forláta rauð-
vín 1,5 lítra
fíaska af
Mouton Cadet
1995. Hæsta boð
er 7000 krónur.
MoinosCÁ
Frír leikskóli á
Seyðisfirði
Bæjarstjóm Seyðisfjarð-
ar hefur samþykkt sam-
hljóða tillögu um að öll
böm frá eins árs aidri til
fimm ára eigi rétt á leik-
skólaplássi. Segir bæjar-
stjómin að það sé hluti af
fjölskyldustefnu bæjarins að
öU börn með lögheimUi á
Seyðisfirði fái ókeypis vist á
leikskólum. Felið hefur tek-
ið töluverðan tíma en bær-
inn tók upp fyrir ári síðan
að hafa gjaldfrjálst í ijóra
tíma fyrir fimm ára böm og
reyndist sú tilraun vel.
Styrkja
Skuggabörn
Súðavfkurhreppur hefur
ákveðið að styrkja gerð
heimildamyndarinnar
Skuggabörn um 25 þúsund
krónur. Sveitarstjórn barst
bréf frá Vestfirska kvik-
myndafélaginu þar sem
beðið var um fjárhagslegan
stuðning vegna
myndarinnar
sem Flateyring-
arnir Lýður
Árnason læknir
og Reynir
Traustason
gerðu ásamt
Þórhalli Gunn-
arssyni sjónvarpsmanni.
TUlaga kom frá oddvita um
að veita verkefninu styrk að
upphæð 25.000 krónur og
var hún samþykkt sam-
hljóða.
Heimdelling-
ur gegn banni
Heimdellingurinn
Steinn Halldórsson hefur
sent frá sér ályktun sem
birtist á frelsi.is. Þar segist
hann vera gríðarlega ósátt-
ur við
fmmvarp
heilbrigðis-
ráðherrans
Jóns Krist-
jánssonar
um blátt
bann við
reykingum.
Steinn sér sig knúinn til
þess að álykta um þetta
mál því hann á sér ekki sæti
í neinni stjórn. Hann segir í
ályktun sinni að hann efist
um að nýtt fmmvarp heil-
brigðisráðherra muni
standast skoðun gagnvart
stjórnarskrá og segir hann
jafnframt að hann muni
strika út nöfn þeirra sem
kjósa með frumvarpinu.
Einari Erni Einarssyni hagfræðingi blöskrar hversu miklum óþarfa hann hefur sank-
að að sér og notar örsjaldan. Hann tók því af skarið og stendur fyrir góðgerðaupp-
boði á heimasíðu sinni, eoe.is, þar sem lesendur bjóða í eigur Einars og styrkja
þannig fátæk börn í Suður-Ameríku.
Gefur eigur sínar og launin
dl barna í Subur-Ameríku
„Ég gef allan ágóða uppboðsins, auk 15 prósenta launa minna í
desember, til góðgerðamála," segir Einar Öm Einarsson hagfræð-
ingur. Hann stendur þessa dagana fyrir góðgerðauppboði á heima-
síðu sinni, eoe.is. Þar selur hann eigur sem hann telur óþarfar:
geisladiska, sjónauka, fótboltatreyjur, myndavél, þurrkara,
viskíglös og fleira. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa.
„Nú þegar hafa safnast rúmar
hundrað þúsund krónur. Uppboðið
byrjaði um síðustu helgi og stendur
fram yfir þá næstu. Ég er ekki að
bjóða allt upp sem ég á. Bara það
sem ég hef engin not fyrir. Datt í hug
að nota síðuna mína vegna þess
fjölda sem skoðar hana reglulega,"
segir Einar Örn Einarsson hagffæð-
ingur.
Sláandi fátæk börn
„Ég hef ferðast mikið um Mið- og
Suður-Ameríku. Séð þar sláandi fá-
tækt. Að undanförnu hef ég hugsað
æ meira um það hvað ég get gert til
að bæta mig og mitt umhverfi. I
raun er það fáránlegt að eyða þús-
undum króna í alls konar vitleysu,
en láta svo ékkert af hendi rakna til
betri málefna," segir Einar en hann
bjó um tíma í Mexíkó og Venesúela.
Honum finnst líklegast að styrk-
urinn renni til barna í Gvatemala og
Hondúras en þar þykir honum fá-
tæktin einna mest. „Já, af þeim
löndum sem ég hef komið til. Ég var
þarna í haust, rétt áður en fellibyl-
irnir gengu yfir. Ástandið hríð-
versnaði eftir þá.“
Rekur mexíkóskan stað
Einar er markaðsstjóri fyrirtækis-
ins Danól. Hann á einnig, með fé-
laga sínum, og rekur veitingastaðinn
Serrano í Kringlunni. Þar býður
hann upp á mexíkóskan mat en
þjónar ekki sjálfur til borðs.
Auk eiganna leggur Einar fram 15
prósent desemberlauna sinna til fá-
tæku barnanna. Hann vill þó Iítið
segja hversu há upphæð það er.
„Nei. En ég býst við því að alls eigi
eftir að safnast um tvö hundruð þús-
und úr uppboðinu. Sem er frábært.
Það er mjög gaman að gera eitthvað
fyrir gott málefni."
Allt nema fötin til sölu
Jólin eru á næsta leiti en Einar
segir litlar líkur á því að jólagjafirnar
fylli alla skápa aftur.
„Ég fæ eldd það margar gjafir. Þar
að auki snýst þetta frekar um að
selja þá hluti sem maður sankar sí-
fellt að sér en notar ekki neitt.
DVD-myndirnar eru gott dæmi.
Maður horfir á þær einu sinni og
hendir þeim svo upp í skáp. Ég dreg
línuna við föt. Held einfaldlega að
það vilji enginn ganga í fötunum af
mér. En ef ég vil gefa þau þá fer ég
með þau í Rauða krossinn," segir
Einar, hæstánægður með framtak
sitt og viðbrögð annarra.
halldor@dv.is
•.
-......
eoe.is Uppboð
iðstendurfram
yfirhelgi.
Tolvuspil Donkey Kong og
Mario Bros. Hæstu boð eru
2500 krónur í hvorn.
t:
'
„f raun er það fáránlegt að eyða j
þúsundum króna i alls konar vit
leysu, en láta svo ekkertaf
hendi rakna til betri málefna
Einar Örn Hag-
fræðingur sem
selureigurnará
góðgerðaupp-
boði á heima-
síðu sinni, eoe.is.
Hæsta fyrirframgreiðsla fyrir sölu á íslenskri bók til útlanda
2,4 milljónirfyrirTíma nornarinnar
Tími nornarinnar eftir Árna Þór-
arinsson hefur verið seld fyrir metfé
til Þýskalands að sögn Jóhanns Páls
Valdimarssonar hjá JPV útgáfunni.
Það er þýski útgefandinn Droemer
Knaur, einn öflugasti útgefandi
Þýskalands, sem keypti en gengið
var frá sölu bókarinnar til allra
Norðurlandanna í síðustu viku
„Gengið hefur á tilboðsstríð
meðal þriggja þýskra útgefenda um
útgáfuréttinn á bókinni þar í landi
en þeir telja að Tími nornarinnar
Hvað liggur á?
eigi ótvíræða metsölumöguleika í
Þýskalandi. Eftir tilboðsstríð í
nokkra daga hélt JPV útgáfa upp-
boð á bókinni og hreppti Droemer
Knaur réttinn fyrir 31.000 evrur eða
jafngildi um 2,4 milljóna króna í
fyrirframgreiðslu einungis fyrir
sölu bókarinnar á almennum
markaði. Þá eru bókaklúbbar og
aðrar söluleiðir ekki teknar með en
þýski útgefandinn rekur öflugasta
klúbb Þýskalands, Weltbild," segir
Jóhann Páll.
Hann telur hér sennilega um
„Það liggur á að pakka sýningunni minni saman fyrirjólin. Næsta helgi er siðasta sýning-
arhelgi," segir Daníel Björnsson myndlistarmaður. Sýhingu hans, Inngarði, er að Ijúka í
Gallerí Banananas við Laugaveg. Hún samanstendur afljósum, veggverkum og skúlptúr-
um.„Svo þarfég að drífa mig að fara yfir einkunnir nemenda minna íListaháskólanum,
þarsem ég kenni grafíska hönnun."
hæstu fyrirframgreiðsla sem nokkru
sinni hefur fengist fyrir sölu á ís-
lenskri bók til útlanda.
JPV útgáfa á núna í samingavið-
ræðum við útgefendur víða um
heim um réttinn á bók Árna og er
tíðinda að vænta úr þeim áður en
langt um líður.