Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Blaðsíða 16
76 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 Fréttir DV Samgöngur í ólagi Kasmiskur verkamaöur sii ur á brú sem skemmdist i skjáiftanum. Neyðin er síst minni núna en fyrir 20 árum þegar lagið Hjálpum þeim kom fyrst út. Þá var hjálpinni að mestu veitt til fórnarlamba hungursneyðarinnar í Eþíópíu en nú ríður mest á að koma fbúum Pakistans til hjálpar. „Gleymdu ekki þínum minnsta bróður," segir í fyrstu línu textans sem Jóhann G. Jóhannsson samdi við lag þeirra Axels Einarssonar. Jólin eru sá tími ársins þegar mörgum verður neyð annarra hugleikin og því reynist hjálparsamtökum hægara um vik að afla fjármagns til verka. Geislaplatan er nú komin í verslanir og rennur söluandvirðið, án virðisaukaskatts, allt til Hjálparstarfs kirkjunnar. Neyðin eftir jarðskjálftann í Pakistan þann 8. október sl. verður vart minni með hveijum deginum, þar sem eftirlifandi fórnarlömbum hans reynist erfitt að draga fram lífið í þeim kuldum sem þar herja á þeim. Þjóðin er gjafmild „Okkur finnst frábært hvað al- menningur sýnir gjafmildi sína í verki," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um söfnun þeirra fyrir jól- in. Hann er sammála þeirri gagnrýni sem hefur komið fram á íslensk stjórnvöld varðandi lítil ijár- framlög til neyðaraðstoð- ar. „Auðvitað vildum við sem vinnum að hjálpar- starfi sjá meiri framlög hins opinbera til hjálpar- starfa en eins og hefur oft komið fram erum við töluvert lakari en ná- grannaþjóðir okkar." Á meðan ríkisstjórnin áætlar að framboð Islands til setu í öryggisráði SÞ kosti um 400 milljónir hefur hún látið 30 milljónir af hendi rakna til Pakistans. Neyð enn mikil í Pakistan I fyrrinótt skók jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter norðausturhluta Afganistans og fannst vel í þeim héruðum Pakistans sem verst urðu úti í skjálftanum 8. október og olli mikilli hræðslu meðal þeirra. Þó berast inn á milli gleðifréttir frá Pakistan. Á laugardag fannst fertug kona á lífi í rústum húss síns þar sem fólk var að leita að líkúm. Með ólík- indum má teljast að manneskja geti lifað svo lengi án matar og vatns eins og hún gerði, en 64 dagar voru þá liðnir síðan skjálftinn reið yfir. 80% vöðvamassa hennar höfðu visnað samkvæmt upplýsingum lækna á sjúkrahúsi því sem hún dvelur á. Um 74 þúsund manns eru talin hafa látist í skjálftanum og þijár millj- ónir manna hafast við í tjöldum sem reynt er að dreifa sem víðast. Gífur- legir kuldar gera eftirlifendum í fjöll- um Pakistans erfitt fyrir þessa dagana og því nauðsynlegt að ríki heims ^ > komi þeim ” v \ til hjálpar \ sem skjót- ast. .1 Þyrlur gegna stóru hlutverki Víöa eru sam- göngurenni ólagi svo þyrlur eru ómissandi. DV-mynd AFP Photos Jónas Þórir Þórisson Segir skorta á gjafmiidi rlkisstjórnarinnar. Mest spilaða lagið fyrir jolin 1985 var án efa Hjálpum þeim. Fjöldi tónlistarmanna söng lagið sem hljómaði títt á öldum ljósvakans og rann allur ágóði til Hjálparstarfs kirkjunnar. Nú hefur lagið verið endurútgefið með nýrri kynslóð tónlistarmanna sem gera sitt til að gera lífið aðeins auðveldara þeim sem minna mega sín. mmnsta í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.