Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 77
Eftirför í Ár-
túnsbrekku
Ökumaður var handtek-
inn aðfaranótt þriðjudags
eftir að hann hafði reynt að
stinga lögregluna af á bíl
sínum í Artúnsbrekku.
Tveir farþegar voru með
honum í bflnum. Hann ók
á miklum hraða niður í
Mörkina. Þar stöðvaði
hann bflinn og tók til fót-
anna. Lögreglan elti hann
uppi og náði honum að
lokum. Við leit kom í ljós
að hann var með fflcniefm á
sér. Lögreglan færði hann
upp á lögreglustöð þar sem
hann fékk að sofa úr sér og
átti að yfirheyra hann síð-
degis á þriðjudeginum.
Eggert Ólafsson keypti myglað skyr í Nettó í Mjódd. Eggert er ekki sáttur við að
fá nýja skyrdós í skaðabætur. Ásamt móður sinni, Elísabetu Albertsdóttir. og bróð-
ur sínum Gunnari hefur hann gert Heilbrigðiseftirlitinu viðvart. Þröstur Karlsson
verslunarstjóri segist ekki geta bætt ónýtar veislur eða greitt bensínkostnað fólks.
Nettó í Mjódd Þar á
bæ er skemmd vara
bætt með nýrri vöru.
• 1 ----------—
ÍS
$&&&&£ |
iáálSf
Konurog
karlar í
sjónvarpi
Málþing um konur og
karla í fjölmiðlum verður
haldið í Lögbergi í hádeg-
inu í dag að undirlagi
menntamálaráðuneytis og
Rannsóknarstofu í kvenna-
og kynjafræðum við Há-
skóla íslands. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra flytur
ávarp. Eyrún Magnúsdóttir
er fundarstjóri og Auður
Magndís Leiknisdóttir,
Margrét Valdimarsdóttir,
Elsa María Jakobsdóttir,
Helga Björndóttir og Þor-
gerður Þorvaldsdóttir flytja
erindi um rýran hlut
kvenna í fjölmiðlum.
Nýheilsu-
gæsla á
Skagaströnd
Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra undirritaði
í gær verksamning vegna
nýbyggingar Heilsugæslu-
stöðvar á Skagaströnd og
tók fyrstu skóflustungu að
byggingunni. Húsið verður
267 fermetra timburhús.
Samkvæmt verksamningi á
húsið að rísa fyrir 1. ágúst á
næsta ári en hönnun þess
lauk í september.
Fjögur tilboð í verkið
bárust 1. nóvember sem
voru 11 til 24 prósent yfir
kostnaðaráætlun. Ákveðið
var að taka tilboði lægst-
bjóðanda, Trésmiðju Helga
Gunnarssonar ehf. á Skaga-
strönd.
„Eggert sonur minn fór ásamt konu sinni í Nettó í Mjódd og
keypti þar dós af skyri með ferskju- og hindberjabragði. Svo þeg-
ar þau ætluðu að gefa átta ára syni sínum skyrið fúlsaði barnið
við því og sagði óbragð af því,“ segir Elísabet Albertsdóttir. Hún
er amma barnsins sem borðaði hið myglaða skyr. Elísabet ætlar
að ganga í málið af fullri hörku.
Gunnar Ólafsson Bróöir hans Eggert keypti útrunnið skyr íNettó íMjódd. Fjöiskyldan ætlar
ekki að sætta sig við aðra skyrdós i skaðabætur.
„Þegar tengdadóttir mfn fór að
athuga málið betur sá hún að skyrið
var komið meira en mánuð yfir síð-
asta söludag. Skyrið var verulega
skemmt og barnið hefði getað hflotið
verulegan skaða af því að borða
það," segir Elísabet Albertsdóttir.
Að sögn Elísabetar er öll fjöl-
skyldan slegin yfir því að Nettó sé
með svo úrelta vöru í hillu.
Lúalegar skaðabætur
Elísabet og fjölskyldan er sár-
móðguð yfir skaðabótunum sem
Nettó bauð. „Eggert sonur minn
keyrði frá heimili sínu í Grafarvogi
niður í Breiðholt til að kvarta og hitti
þar fyrir Þröst Karlsson verslunar-
stjóra. Hann viðurkenndi að þetta
væri afar leiðinlegt og bauð aðra
skyrdós til að bæta fyrir skaðann.
Það finnst okkur lúalegar skaðabæt-
ur,“ segir Elísabet.
Fjölskyldan ætlar ekki að sætta
sig við þessi málalok.
„Barnið hefði getað
hlotið verulegan
skaða afþví að borða
það"
Alvarleg augu Heilbrigðiseft-
irlitsins
Elísabet er komin á fullt í málinu
ásamt öðrum syni sínum Gunnari.
Þau hafa tilkynnt um skyrið til Heil-
brigðiseftirlitsins.
„Eggert er mikið úti á á landi
þannig að ég og Gunnar bróðir hans
tókum við málinu. Við sögðum
verslunarstjóranum að við ætluðum
ekki að sætta okkur við aðra skyrdós
í skaðabætur og fórum þess vegna
með málið til Heilbriðgðiseftirlitsins
sem þökkuðu vel fyrir og sögðust líta
svona mál mjög alvarlegum aug-
um,“ segir Elísabet.
Ónýtt vara bætt með nýrri
„Ég veit svo sem ekki hvað þessu
fólki gengur til. Hér er bara um
mannleg mistök að ræða,“ segir
Þröstur Karlsson, verlsunarstjóri
Nettó í Mjódd. „ Við drögum aldrei í
efa þegar fólk kemur til okkar með
vöru sem því mislíkar og bætum fólki
skaðann með nýrri vöru. Það gerðum
við í þessu tilfelli og meira getum við
ekki gert. Við getum ekki farið að
borga einhverja bensínpeninga eða
skaðabætur fyrir ónýta veislu þegar
fólk krefst þess. “ svavar@dv.is
Gunnar Þór Gunnarsson slapp með skrekkinn í héraðsdómi
Ekkert fangelsi fyrir 100 grömm af hassi
Hverfisgata i Hafnar-
A nveniigaw i
firði Lögregla fann efnin
heimili Gunnars Þórs.
Gunnar Þór Gunnarsson, 22 ára
Hafnfirðingur, var í gær dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir ffloiiefnabrot. Gunnar þykir
með þessu sleppa nokkuð vel miðað
við að á heimili hans á Hverfisgötu í
Hafnarfirði fundust í maí um 79
grömm af hassi og 37 grömm af
maríhúana. Leit var gerð á heimili
Gunnars eftir að lögregla fann fimm
grömm af maríhúana í jakkavasa
hans eftir að hafa haft af-
skipti af honum sem öku-
manni bifreiðar við Lækj-
argötu í Hafnarfirði.
Gunnar játaði brot
sín skýlaust í Héraðs-
dómi Reykjaness. Hon-
um hefur tvívegis áður
verið gerð sektarrefsing
fyrir brot gegn lögum um
ávana- og fíkniefni.
Refsingin þótti hæfi-
lega ákveðin þrjátíu daga skilorðs-
bundið fangelsi fýrir 121 gramm af
hassi og maríhúana. Dómurinn er
skilorðsbundinn með hliðsjón af því
að Gunnar hefur ekki áður hlotið
fangelsisdóm.
Refsingin fellur niður brjóti
Gunnar ekki af sér á næstu þremur
árum.
Hass Gunnar var
með meira en
hundrað grömm af
hassi og maríhúana
í fórum sínum. I