Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
Fréttir 3DV
Eiríkur Jónsson
• Unnur Bima
Vilhjálmsdóttir
alheimsfegurð-
ardrottning er
ekki aðeins fal-
leg heldur líka
skáldmælt. Að
því leyti sker
hún sig úr hópi
þeirra fegurðar-
drottninga sem við höfum kynnst
til þessa. Hún bloggar á netinu um
reynslu sína og orðar það snilldar-
lega á köflum. Eins og þetta: „Ég er
ennþá að bíða eftir því að
vakna...“. Guðbergur Bergsson
hefði verið fullsæmdur af þessum
frasa...
• Listaparið Hrafn-
hildur Hagalín leik-
skáld og Pétur Jón-
asson gítarleikari
hafa leigt íbúð sína í
101 Reykjavík og eru
á leið til Spánar þar
sem þau ætla að
vera í eitt ár. Hafa Hrafnhildur og
Pétur leigt sér ein-
býlishús í Andalúsíu
og þégar tryggt
dóttur sinni skóla-
vist í spænskum
skóla. Pétur nam
gítarleik á Spáni en
Hrafnhildur leik-
húsfræði í París. Spánardvölin
verður nýtt til skrifta og æfinga á
gítar en sem kunnugt er verður
fólk seint fullnuma í þeim fræðum
báðum...
• Paili Prómó, um-
boðsmaður Bubba
Morthens, betur
þekktur sem Páil
Eyjólfsson í þjóð-
skránni er í vanda.
Brotist var inn hjá
honum og verðmæt-
um stolið. Leitar Palli nú eigna
sinna í undirheimum Reykjavíkur
auk þess sem hann hefur sett lög-
regluna í málið. Sjálfur vill hann
sem minnst ræða tap sitt eða hvort
glatast hafi dýrmætir samningar
við listamenn eða tónverk en Palli
er sem kunnugt er einn af Pöpun-
um...
• Það kveður við
nýjan tón í Popp-
landi á Rás 2. Engu
er lfkara en Bogi
Ágústsson, yfirmað-
ur fréttasviðs Ríkis-
útvarpsins sé farinn
að kynna þar popplög með sinni
djúpu og sérstöku rödd. Sannleik-
urinn er hins vegar sá að kornung-
ur sonur hans er sestur þar við
hljóðnemann og virðist hafa erft
rödd föður síns í öllum tóntegund-
um og blæbrigðum sem fýlgja.
Traustvekjandi kynningar á nýj-
ustu smellunum...
• Forseti fslands
heldur áfram að
blanda geði við
stórmenni Evrópu. í
síðustu viku sat
hann hátíðarkvöld-
verð í tilefni af 25
ára afmæli East West Institute í
Guildhall í London. Þar var Tony
Blair sérstaklega heiðraður fyrir
framgöngu sína á alþjóðavettvangi.
Talsmenn forsetans neita því hins
vegar aðspurðir að Ólafur Ragnar
og Tony Blair hafi snætt kvöldverð
saman á veitingahúsi í London
með Siguröi Einarssyni, stjórnar-
formanni KB banka...
Guðni Ágústsson skilur ekki af hverju Framsóknarflokkurinn einn skuli sæta of-
sóknum vegna frumvarps um réttarstööu samkynhneigðra þegar allir flokkar
standa að baki því. Boltinn er hjá kirkjunni þvi ekkert í frumvarpinu segir að
samkynhneigðir geti gengið í kirkjuna og krafist giftingar í laganna nafni.
„Við eigum gott bakland í trúuðu fólki á íslandi. Það er okkar fólk
og sértrúarsöfnuðir eru okkar söfnuðir og þar er margt gott fólk
sem styður okkur líka,“ segir Guðni Ágústsson, varaformaður
Framsóknarflokksins. „Við eigum bakland þar sem betur fer.“
) trhauxnm „
"WW. BUltanUt
MiHdó,. A»g,ími»oni
Nokkurrar ólgu hefur gætt, eink-
um í Framsóknarflokknum, vegna
frumvarps sem Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra og Árni Magnús-
son félagsmálaráðherra leggja fram
og snýr að réttar-
stöðu samkyn-
hneigðra.
í grein í Morgun-
blaðinu á sunnudag
vandar Guðjón
Bragi Benediktsson
Framsókn ekki
kveðjurnar og seg-
ist hættur að
styðja flokkinn
vegna málsins:
„En nú er
höggvið í þessa
meginstoð samfé-
lagsins, fjölskyld-
una, með þeim
hætti að ljóst má
vera að dóm- =
greindarleysið er *
algert."
Gestur Gestsson
formaður Fram-
sóknarfélagsins í
Reykjavík norður tók í sama streng í
DV í gær. Gestur er virkur í Hvíta-
sunnusöfnuðinum. Hann segir
kristna eiga eftir að láta betur í sér
heyra og þeim skilaboðum hafi ver-
ið komið til flokksforystunnar að
við þetta verði ekki unað. Kirkjan
geti ekki blessað syndina.
Býst ekki við ólgu vegna
málsins
Þrátt fýrir þetta býst Guðni ekki
við óróa í flokknum vegna málsins.
Hann segir rétt að kristin gildi í
flokknum hafi verið sterk í gegnum
söguna og hann finni fyrir skoðun-
um hinna trúuðu í flokknum.
„En blessaður Guðjón verður að
átta sig á því að þetta er afrakstur
Samlíyiilineigiiii’ oj ipúaðii
ffilja Framsokn í uta
nefndar sem Davíð Oddsson fyrr-
verandi forsætisráðherra skipaði.
Allir flokkar eru þeirrar skoðunar að
þarna þurfi að stíga ný skref. Þetta
fólk hefur fengið mikla samstöðu.
Hér á Gay-degi fara, að mér er
sagt, 80 þúsund
niður Laugaveg-
inn til stuðnings
þessu fólki,“ segir
Guðni.
Framsókn (bobba *
sagðiiDVi gær ólgu meðaltru- _.
aðra framsóknarmanna en þeir
eru hlutfallslega fleiri i þeim
flokki en öðrum.
Gifting í lag-
anna nafni
Guðni segir að
nú sé til þess að
taka að sterkir aðil-
ar og hópar í þjóð-
félaginu hafi farið
að taka undir það
að auka mjög ver-
aldlegan rétt sam-
kynhneigðra: Að
þeir njóti sambæri-
legra réttinda og
hjón hafa notíð . á
ýmsum sviðum.
„Sama þróun hefur
verið að ganga yfir þjóðir eins
og Norðurlöndin."
Guðni vill einnig vekja á því at-
hygli að málið sé lagt fram sem rík-
isstjórnarfrumvarp sem reyndar
stjórnarandstaðan styðji einnig. Því
sé skrýtið að Framsólcnarflokkurinn
sé ofsóttur sérstaklega vegna máls-
ins.
„í sjálfu sér snýr þetta mest að
veraldlegum rétti þessa fólks. Það
snýr ekki að Þjóðkirkjunni þannig
séð, ekki eru settar á hana neinar
skyldur. Ekki er svo að með þessu
frumvarpi geti samkynhneigðir
gengið inn í kirkju og krafist gifting-
ar í laganna nafni.“
Kirkjunnar að svara
Guðni segir boltann í raun hjá
út
kirkjunni sem verði að svara
fyrir sig. „Ég býst við að eins
og í lífinu sjálfu séu kirkj
unnar menn, og þess
vegna sértrúar-
menn, eitthvað
klofnir í af-
stöðunni til
þessa
máls. Svo
ég tali nú
ekki um
hvort kona
og kona og
karl og karl
eigi að vígjast
saman sem hjón.
En það er kirkjunnar
að svara því. Ekkert
frumvarpinu gengur
það.“
Aðspurður um sfna per-
sónulegu afstöðu segist Guðni
hafa séð heiminn breytast í
þessum efnum:
„Og ég, sem gagnkyn-
hneigður maður, hef engan
rétt til að fordæma samkyn-
hneigða. Oft og tíðum er
þetta gott og skemmtilegt fólk sem
vill lifa sem eðlilegustu lífi. Fá að
vera í friði í samfélaginu. Þetta fólk
var ekki í friði í samfélaginu þegar
ég var strákur. Margt var þá ofsótt,
undir mikilli pressu og bjó í sumum
tilfellum við fyrirlitningu. Sem bet-
ur fer, segi ég sem kristinn
maður, getur þetta fólk í dag
lifað sem eðlilegustu lífi.“
jakob@dv.is
Guðni Agústsson Gerirráð fyrir
því aðjafnvel innan sértrúarsöfn-
uða sé klofin afstaða til þess hvort
konur og konur og karlar og karlar
geti gengið i hjónaband.
„Ekki er svo að með
þessu frumvarpi geti
samkynhneigðir
gengið inn í kirkju og
krafist giftingar í lag-
anna nafni."
Reynir Þór Eggertsson segir samkynhneigða einnig í Framsóknarflokknum
Beiskur kaleikur kirkjunnar
„Kirkjunni er bannað sam-
kvæmt hjúskaparlögum að gefa
saman samkynhneigða. Og ekkert
er í frumvarpinu sem segir til um
breytingar þar á,“ segir Reynir Þór
Eggertsson, doktorsnemi í norræn-
um fræðum.
Skilja hefur mátt af fréttaflutn-
ingi af frumvarpi Halldórs Ásgríms-
sonar og Árna Magnússonar að
kirkjunni sé í sjálfsvald sett hvort
prestar hennar gefi saman sam-
kynhneigð pör. Svo er ekki. Og
virðast engar breytingar fyrirhug-
aðar á því.
Reynir Þór segir hins vegar að
samkvæmt breytingartillögu sem
Guðrún Ögmundsdóttir hefur boð-
að sé gert ráð fyrir því að svo verði.
Hins vegar strandi það að mestu
á því að kirkjan sjálf hefur ekki vilj-
að álykta í þá átt. Kirkjan hafi ekki
réttinn til þess einfaldlega vegna
þess að hún hefur ekki ályktað þar
um. Líkt og hún vilji ekkert með
þann beiska kaleik hafa að gera ef
þannig má að orði komast þótt
Reynir Þór vilji ekkert um það segja
í sjálfu sér - hver ástæðan sé fyrir
því.
„Nú er þetta svo að velviljaðir
prestar geta veitt samkynhneigð-
um pörum sem hafa látið gefa sig
saman hjá sýslumanni blessun. En
það er ótengt kirkjunni sem slíkri.“
Reynir Þór bendir á að til séu
framsóknarmenn sem séu samkyn-
hneigðir. Og einkum hafi Fram-
sóknarflokkurinn átt stuðhing vís-
an úr þeim höpi þegar Ólafur örn
Haraldsson var í framboði. Hann
hafi verið einn ötulasti stuðnings-
maður réttindabaráttu samkyn-
hneigðra.
[ReynirÞór StuðningsmaðurFram-
sóknarfiokksins en segir ekkert ífrum-
varpinu sem heimili kirkjunni að gefa
saman homma og lesbiur.