Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Qupperneq 15
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 15
Pabbinnfrjáls
Andrew Wragg,
faðirinn sem kæfði
dauðvona son sinn,
var sýknaður af
ákæru um morð í
gær og látinn laus úr
haldi lögreglu. Hann
var þó dæmdur fyrir
manndráp og fékk
skilorðsbundna refsingu.
Dómarinn taldi að kona
hans og móðir drengsins
hefðu verið samsek i dráp-
inu. Hinn tíu ára gamli son-
ur þeirra var haldinn mjög
sjaldgæfum sjúkdómi sem
hamlar smám saman öllum
skilningarvitum sjúklinga
sem látast yfirleitt á tánings-
aldri.
Tookie allur
Stofnandi The Crips-
glæpagengjanna, Stanley
„Tookie" Williams, var lfflát-
inn klukkan 8.01 f gærmorg-
un að íslenskum tíma. Hann
hafði verið innan rimla San
Quentin-fangelsisins und-
anfarin 26 ár fyrir glæpi sem
hann sagðist vera saklaus af.
Eftir að hafa verið í einangr-
un í sex ár sneri hann við
blaðinu og hóf að hvetja
ungt fólk til að halda sig frá
glæpagengjum eins og því
sem hann stofnaði. Fjöldi
þekktra manna barðist fyrir
breytingu á refsingunni.
Baráttu hans gegn glæpum
verður lengi minnst.
Nokkuð er um liðið frá því að Steven Spielberg gerði kvikmyndina Schindlers
List. Nú snýr hann aftur með hinni tveggja og hálfrar klukkustundar löngu kvik-
mynd Munich. í henni lýsir hann hefnd ísraels á þeim Palestínumönnum sem
stóðu að árásinni á ísraelska íþróttamenn á ólympíuleikunum í Múnchen árið 1972.
Israelar segja kvikmynd Spielbergs meingallaða og ónákvæma
þar sem þeim sé nánast lýst sem hefndarþyrstum glæpamönn-
um. Skipuleggjandi árásarinnar segir að Spielberg hefði átt að
tala við hann áður en hann gerði myndina.
Þrátt fyrir að enn sé rúm vika
þar til myndin Munich verður
frumsýnd er hún strax farin að
skapa heitar umræður. Margir fyrr-
verandi liðsmanna Mossad, leyni-
þjónustu ísraels, segja myndina
íýsa baráttu ísraelsmanna sem sí-
felldum hefndarleik sem gangi út á
að vera sífellt að jafna metin. Kvik-
myndina byggir Spielberg að miklu
leyti á bók George Jonas,
Vengeance [Hefnd], sem segir frá
játningum fyrrverandi liðsmanns
ísraelshers sem hætti vegna hefnd-
araðgerða ísraels.
Harmleikur
„Ég tel það harmleik að svo mik-
ilvæg persóna sem Spielberg er
skuli hafa byggt kvikmynd sína á
bók sem er uppspuni frá rótum,“
segir David Kimche, fyrrverandi
liðsmaður Mossad. „Eins og í dag,
hafði þetta ekkert með hefnd að
gera. Þetta snýst allt um að verjast
frekari hryðjuverkaárásum á sak-
laustfólk."
Kimche telur einnig að atburð-
'irnir í Múnchen hafi gerbylt áliti
heimsins á hryðjuverkum.
„Ég hef alltaf stutt þá stefnu ísra-
elsmanna að bregðast sterklega við
þegar þeim er ógnað," segir Spiel-
berg, sem sjálfur er gyðingur. „Á
sama tíma er svar gegn svari ekki
lausnin," segir Spielberg sem telur
sögu Ísraelsríkis sanna mál sitt.
Leiðtoginn tjáir sig
Mohammad Daoud Odeh var
höfuðpaurinn í árásinni á ísraelsku
íþróttamennina.
„Ég hafði ekki hugmynd um
þessa mynd Spielbergs," segir
hann. „ Ef einhver vill segja sann-
sögulega frá atburðinum ætti hann
að tala við þá sem voru aðilar að
honum, einhverja sem þekkja
sannleikann." Daoud er enn eftir-
lýstur fyrir aðild sína að hryðjuverk-
Mohammed Daoud Odeh Höfuöpaur
gíslatökurmar í Míinchen hefði viljað að Spi-
elberg ráðfærði sig við hann.
unum og er í felum einhvers staðar
í Miðausturlöndum.
Hann segir að mannfall árásar-
innar sé algjörlega á ábyrgð ísraels
og þýsku lögreglunnar. Tveir gísl-
anna létust í gíslatökunni sjáifri en
nfu til viðbótar í klúðurslegri björg-
un lögreglunnar. Daoud er sam-
mála Kimche um að bókin
Vengeance sé hlaðin rangfærslum.
haratdur@dv.is
Brunnin þyrla Á flugvellinum i Miinchen eftir mistök þýsku lögreglunnar.