Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Síða 39
DV Síðast en ekki sist
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 39
Spurning dagsin
Hvað langar þig í jólagjöf?
Að stríðinu Ijúki í
Afganistan
„Ég óska þess að stríðinu Ijúki í
Afganistan."
Jón Elvar Steindórsson kokkur.
„Mig
vantar mynd-
bandsupp-
tökuvél og væri
alveg til í að fá
hana íjóla-
9jöf."
Eir Jógvands-
dóttir au pair.
langar í föt
eftir einhvern
góðan hönn-
uð."
Jóhanna Pét-
ursdóttir au
pair.
„Mig '
langar í
Volkswagen
Golfíjólagjöf."
Ólafur Vignir
Sveinsson
jarðborari. ,
Jólin eru á næsta leiti og allir fá þá eitthvað fallegt. DV tók púlsinn á gestum
Kringlunnar og fékk að vita hvað væri efst á óskalistanum.
Góðir fjölmiðlamenn
í dag hringdu þeir í
mig vinir mínir í síð-
degisútvarpi Bylgj
unnar og spurðu mig
um tvennt: yfirlýsingu
ríkissaksóknara Svía um
eitt lögregluumdæmi á
Norðurlöndunum og
frumvarp til breytinga á
umferðarlögum, þar sem
meðal annars er Qéillað um
vald starfsmanna vegagerðarinnar
til eftirlits, en Landssamband
lögreglumanna telur hættu
á því, að verið sé að fara
inn á verksvið félags-
manna sinna.
Mér finnst ágætt að ræða
við þá félaga Þorgeir og
Kristófer og þeir hafa líklega oftast
rætt við mig af fjölmiðlamönnum
um málefni dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins. Þeir hafa áhuga á
lögreglu- og dómsmálum
sömu sögu er að segja
um Svein Helgason,
sem nú er umsjónar-
maður morgunút-
varps RÚV. Skiptir
miklu í samtölum við
fjölmiðlamenn, að þeir hafi þekk-
ingu og áhuga á þvi,
sem þeir vilja ræða.
Ekki alltaf við hæfi
að miða við útlönd
Sjálfsagt er nota alþjóðlegar
mælistikur til að átta okkur á
framvindu íslenska þjóðfé-
lagsins, hins vegar er ekki
jafnaugljóst, að unnt sé að mæla
allt hér á kvarða annarra, eins og
til dæmis hvað skólaganga á að
vera löng eða hvort ráðherrar skuli
víkja sæti eða ekki. Þetta sífellda
fjölmiðlatal um, að í þessu eða
hinu landinu hefði ráðherra vik-
ið, ef þetta eða hitt hefði gerst
þar, sem gerist hér, er marklaust,
nema menn beri fieira saman en
einhvern einstakan atburð.
í sumum þjóðþingum tíðkast, að
þingmönnum er vikið af
þingi í nokkra daga fyrir
framkomu þeirra í
þingsainum. A að heija
umræður um slík úr-
ræði hér á landi,
af þvi að þau eru j
lögbundin sum-
staðar í útlönd-
um?
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ritar á bjorn.is
Samningur Reykjavíkurborgar í Kastljósi
Nýgerðir kjarasamningar
Reykjavíkurborgar þar sem leit-
ast er við að rétta hlut lág-
launafólks og umönnunar-
stétta hafa hlaupið svo ,
fyrir brjóstið á sjálfstæð- /
ismönnum í landinu að I '
undrun sætir. Einar Odd-
ur Kristjánsson réðist
með þvílíkum andköfum
að borgarstjóranum í
Reykjavík í Kastljósi að ekkert
minna en algjör þjóðarvoði virð-
ist fram undan ef marka má yfir-
lýsingar sem bunuðu út úr hon-
um. Hrokinn og yfirdrepsskapur-
inn voru honum til skammar.
Þessi sami maður hefur með rik-
isstjórn sinni staðið fyrir miklum
hækkunum launa hjá opin-
berum starfsmönnum á
undanförnum árum. Ég
minni á stofnanasamn-
inga sem hækkuðu laun
hátt í 40 % hjá
fjölmörgum
stofnunum
ríkissins, samn-
inga við lækna, samn-
inga við framhalds-
skólakennara, lífeyris-
hæklcanir þingmanna
og ráðherra svo eitt-
hvað sé nefnt.
Jóhann Ársælsson þingmaður ritar á jarsaelsson.is
Hallgrímur Helgason segir félagsmálaráðherra nýjasta durginn í
hópi þeirra sem stjórna.
Efnilegasti durgur landsins
Stundum langar mann til að flytja burt frá íslandi.
Landinu er stjórnað af durgum sem leyflst allt.
Forsætisráðherra seldi sjálfum sér og sínum Búnaðar-
bankann og græddi svo miíljónir á því að selja hann öðr-
um. Datt síðan í hug að ráðast inn í Irak og reyndi að ljúga
okkur j afn full og hann sj álfur var af lygum Bushmanna: Að
málið hafi verið rætt og allir vitað um ákvörðun hans og
vinar hans. Hann komst upp með hvort tveggja.
Forsætisráðherrann þar á undan sendi lögregluna inn í
„óvinafyrirtæki“ með hjálp framkvæmdastjóralífs síns, rit-
stjóra blaðs síns og besta vinar þeirra allra. Gerði þann síð-
amefnda að hæstaréttardómara, alla sína hjarðsveina að
sendiherrum og sjálfan sig að seðlabankastjóra eftir að
hafa hækkað embættið í launum um Ieið og hann lýsti sig
löggiltan efdrlaunaþega ofan í bankastjóralaunin. Komst
upp með allt.
Eftirsitjandi dómsmálaráðherra hélt baráttunni gegn
óvinafyrirtækinu áfram og réðst gegn því hvenær sem
hann gat, jafnvel þótt málsóknin gegn fyrirtækinu væri
komin inn í dómskerfið, og lenti síðan óvart í því veseni að
þurfa að skipa nýjan saksóknara í málinu, rammhlut-
drægur sem hann var orðinn. Hann gerði það án þess að
missa bros. Og komst upp með það.
Hér komast menn upp með hvað sem er.
Og nú er röðin komin að félagsmálaráðherra.
Kona stýrði jafnréttisstofu en var jafhframt í forsvari
leikfélags. Akvörðun hennar að ráða karlmann í starf leik-
hússtjóra var kærð fyrir jafnréttisnefnd og síðar dómstól-
um. Héraðsdómur dæmdi gegn jafiiréttisstýru. Ráð-
herra flæmdi hana úr starfl. Hæstiréttur sneri dæm-
inu við en þó fékk konan ekki starfið aftur. Hún fór
í mál við rfldð og ráðherrann, tapaði í héraðsdómi
en vann í Hæstarétti. Rétturinn dæmdi gegn ráð-
herra og rfldð til að greiða konunni sex milljónir.
Samt situr karlinn áffam.
Karlinn sem píndi konuna til að segja af sér
þegar dæmt var gegn henni í héraðsdómi vill sjálf-
ur ekki segja af sér þó dæmt sé gegn honum í
Hæstarétti. Ég endurtek: Hún var dæmd í héraðs-j
dómi og sagði af sér. Hann var dæmdur í
hæstarétti og sagði EKKI af sér. Seint
verður karl kona.
hann kona
yfw(kari)maði
nans buinn a<
íiaema hann
ur exnb- «
Vaeri
aetti.
((
Sjaldan hefur kynjamisréttið
kristallast jafn vel og í þessu
máli. í krafti þess eins að vera
karlmaður leyfir ráðherrann
sér að sitja áfram. Væri hann
kona væri yfir(karl)maður hans
búinn að flæma hann úr emb-
ættí.
Þetta er mikilvægt mál. í því
_____ kristallast átök tímans.
Mótrök ráðherrans
eru með því versta sem heyrst hefur í
þingsölum: „Hæstiréttur sneri við dómi
héraðsdóms. Á þá héraðsdómarinn ekki
alveg eins að segja af sér?“ og „Hæstirétt-
ur hefur fellt sinn dóm og ég er ósammála
honum." Já? Ráðherrann er ósammála Hæstaréttí? Og
hvað með það? Hvor er æðri? Em ekki allir jafnir fyrir lög-
unum á þessu landi? Verða allir landsmenn að lúta
dómum Hæstaréttar nema ráðherrar? Félags-
málaráðherra á að segja af sér þótt það væri ekki
nema fyrir þessi ömurlegu ummæli. Önnur góð
ástæða fyrir manninn til að segja af sér: Mistök
hans kostuðu rfldssjóð sex milljónir.
Höfuðástæðan fyrir því að hann á að segja af sér er þó
sú að þetta mál er MÁL TÍMANS. Kvennabaráttan getur
ekki beðið um skýrara dæmi um yfirgang karlaveldisins.
Ég trúi því ekki að konur ætli að leyfa þessum manni
að sitja áfram. Ámi Magnússon á fyrst og fremst
að segja af sér vegna þess að konur landsins
þurfa á því að halda. Málið er táknrænt og
hann á að skilja það.
Að lokum skal honum ráðið heilt: Kæri
Ámi. Þú ert fínn náungi en yrðir þó enn betri
með því að segja af þér. Þú yrðir maður að
meiri. Eða hvort er betra: Að bera blettinn á
bakinu ævilangt eða hreinsa sig strax? Hvort
viltu vera boðberi nýrra tíma eða efnilegastí
durgur landsins?
fRtrttóW'^
SEFUR ALDREI
Viðtökumvið
fréttaskotum ailan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DVA greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku
Fullrar nafnleyndar
er gætt.