Símablaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 13
Kristján Helgason hóf störf hjá Pósti og
síma árið 1948. Sama ár hafði hann lokið
prófi frá Loftskeytaskólanum. Kristján
lauk símvirkjaprófi 1951. Á þess’um árum
starfaði hann hjá Radíóflugþjónustunni og
á Radíóverkstæði Landssímans. Kristján
stundaði nám við tækniskólann í Osló og
lauk þar námi 1958. Hann starfaði síðan
sem tæknifræðingur og deildartæknifræð-
ingur hjá Radíótæknideild til ársins 1968.
Kristján tók við skólastjórastöðu Póst- og
símaskólans, er hann var stofnaður. í nóv-
ember 1975 var hann settur Umdæmisstjóri
I og skipaður í það starf 1. apríl s.l.
Kristján Helgason
Umdæmisstjóri I.
— Verður teljandi breyting á starfs-
mannafjölda?
— Það er ekki gert ráð fyrir að skipu-
lagsbreytingarnar hafa veruleg áhrif á
starfsmannafjölda. Vonast er til 'þess að
ekki þurfi að fjölga starfsmönnum í náinni
framtíð. Með fyrrnefndri verkskiptingu og
með því að vinna að aukinni hagræðingu
ætti þetta að takast.
— Verða einhver störf lögð niður og
koma ný störf inn?
— Mér er ekki kunnugt um að störf
verði lögð niður vegna skipulagsbreyting-
anna. Með hagræðingu, aukinni sjálfvirkni
úti á landsbyggðinni og sameiningu verk-
stæða ætti síðar meir að vera hægt að
fækka ársstörfum.
Vegna verkefna sem ekki hefur verið
sinnt og vegna nýrrar stjómunardeildar,
þá gæti starfsmönnum fjölgað í fyrstu.
— Verður mikill flutningur starfsmanna
á milli deilda?
— Já það verður flutningur á starfsfólki
milli deilda. í flestum tilvikum er um
heila starfshópa að ræða.
— Álýtur þú að þessar skipulagsbreyt-
ingar breyti áhrifum Starfsmannaráðs á
stjórn stofnunarinnar?
—- Til þess að Starfsmannaráð verði virkt
afl og hafi áhrif á stjórn Pósts- og síma á
sem flestum sviðum, þarf það að vera skip-
að fulltrúum úr æðstu stjórn stofnunarinn-
ar ásamt fulltrúum félaganna.
— Kemur til mála að prufukeyra þessar
fyrirhuguðu breytingar í einhvern tíma og
lagfæra síðan galla ef einhverjir koma í
ljós og taka jafnframt tillit til ábendinga
starfsmanna, ef einhverjar verða?
— Skipulagsbreytingar verða ekki gerð-
ar með einu pennastriki. Slíkar breytingar
gerast í áföngum og til þess að ná þeim
árangri sem til er ætlast, þarf að vera í
megin atriðum samstaða um þær. Það er
því eðlilegt að staldra við og líta til baka
við hvern áfanga og ræða þá kosti og galla
sem skipulagsbreytingar hafa í för með sér.
SIMABLAÐIÐ
11