Símablaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 30
ur réttlætisins. Þá hefi ég skrifað ráðu-
neytinu um þetta en auðvitað ekki fengið
neitt svar.
Það er vitað mál að sóknarprestar eru
allir í sama launaflokki, prófastar hafa
eitthvað meira. Þá er sama að segja um
sýslumenn, héraðslækna, sýslufulltrúa o.fl.
o.fl. Af hverju eru þessi embætti ekki
flokkuð eftir því hvar þau eru niðurkom-
in? Það væri kannske réttlætismál þegar
miðað er við stöðvarstjórana í öllum sínum
flokkum. Réttlætinu verður aldrei full-
nægt, því sínum augum lítur hver á silfrið,
en það er ekki ósanngjarnt að menn fái
sömu lein fyrir sama starf hvar sem það er
unnið á landinu. Og hver verður svo til að
koma því í kring?
Það er margt annað sem hægt er að
benda á sem viðkemur þessu máli og það
á ýmsum vettvangi og ef til vill gefst tóm
til þess áður en langt um líður.
Árni Helgason Stykkishólmi.
Síminn er kominn í kerfið
og kerfið æxlar sig vel,
nú er ég alveg orðinn
eins og hver önnur vél.
Hið mannlega er út að murkast
hið myndræna fer svo vel,
eyðublöð til að útfylla
allt gengur fyrir vél.
Aukinn mannskapur iðinn
að yfirfara í takt
og athuga hvort allar skýrslur
séu útfylltar skakkt.
Nú ruglast menn alveg i öllu
og engin sést lengur heild
Menn hafa ekki hugmynd um
hvað sé i þessari deild.
Pví deild með deildarstjóra
og deildarfulltrúa þar
einkaritara og öllu
sem er þar til skemmtunar...
Ýmislegt er þarna líka
sem enginn getur þýtt,
bréfum sjaldan svarað
sem er kannske ekki nýtt.
Þvi kerfið er kerfisbundið
og kerfinu stjórna ber
eftir einhverjum reglum
sem enginn að sönnu fer.
Á. H.
28
SÍMABLAÐIÐ