Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2005, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005
Sport DV
Sigursælasta körfuboltakona íslands frá upphafi, Anna María Sveinsdóttir, þarf að leggja skóna á hill-
una vegna meiðsla. Keflavíkurliðið þarf því að gera eitthvað á þessu tímabili sem tólffaldir íslandsmeist-
arar hafa aldrei gert áður - að vinna titil án Önnu Maríu.
m
J& tffctitlar meö Kenavik a
TT*Jtuttugu árum.
íPJÍslandsmeistaratitlar með
JL MKeflavík.
nBikarmeistaratitlar með
Keflavík.
9sinnum unnið tvöfalt
(íslands- oe bikarmeistari á
•'V.- •.
sem
sinnum unnið tvöfalt
(íslands- og bikarmeistari á
sama tímabili).
4996 stig f efstu deild AnnaMaríaSveins- k%
dóttir hefur skorað 4996 stig Iþeim 323 leikj- l íf&Islandsmeistaratitlar í
um sem hún hefur spilaö fyrir Keflavlk lefstu I Wrfspilandi þjálfari.
deild.Húnléksinnfyrstaleik6.október1985
og þann slöasta rúmum 20 árum slðar. ^ _lbij[|p trp sigurleikir, spilaði í
émá 4 ámiefstu deild með
Keflavík.
„Ég er búin að ná öllum hugsanlegum markmiðum mínum í körf-
unni miðað við á hvaða tíma ég var upp á mitt besta. Það eru nátt-
úrlega aðrir möguleikar fyrir ungar stelpur í dag. Ég hefði ekki náð
meira en að bæta við einhverjum titlum sem ég er búin að vinna
oft áður,“ segir Anna María Sveinsdóttir, sem hefur sett punktinn
aftan við glæsilegasta körfuboltaferil á Islandi fyrr og síðar. Eftir 20
ár er Anna María búin að vinna 40 titla og fleiri íslandsmeistaratitla
(12) og bikarmeistaratitla (11) en nokkur armar íslenskur körfu-
boltamaður. önnu Maríu vantar reyndar aðeins fjögur stig til þess
að brjóta fimm þúsund stiga múrinn en hún er sú eina sem hefur
skorað yfir 4000 stig í efstu deild kvenna á íslandi.
„Ég hélt alltaf að þessi meiðsli
væru ekki svona alvarleg. Ég bjóst
bara við að þetta væri bara liðþófinn
og að ég gæti bara byrjað eftir fjórar
vikur eins og síðast. Þegar maður er
kominn á þennan aldur og kominn
með einhverjar bijóskskemmdir þá
er þetta ekkert auðvelt við að eiga.
Það eina sem myndi gerast er að
þetta myndi versna því þetta myndi
alla vega ekki batna,“ segir Anna
María sem tók ákvörðunina eftir að
hafa talað við lækninn sinn.
Búin að ná mínum markmið-
um
„Læknirinn spurði mig bara
hvort ég væri búin að ná mínum
markmiðum og hvort ég ætlaði mér
eitthvað lengra en ég sá að það var
ekki. Ég er bara í þessu til að hafa
gaman að þessu og kannski leiða
hinar en ekkert meira. Ég tók því þá
ákvörðun að ég myndi segja þetta
gott og eftir að ég tók hana þá er ég
mjög sátt," segir Anna María sem
ætlar að aðstoða Sverri Þór Sverris-
son við þjálfun liðsins. „Stelpurnar
skilja þetta alveg þótt að þær hafi
ekkert verið hoppandi glaðar með
þetta. Ég ætla líka að vera í kringum
liðið samt sem áður," segir Anna
María.
Hefði viljað klára þetta tíma-
bil
„Ég hefði samt viljað klára þetta
tímabil. Það er erfitt að horfa upp á
liðið sitt tapa hverjum leiknum á
fætur öðrum þó svo að við hefðum
kannski ekkert unnið þótt ég hefði
verið með. Það kemur einhvern
tímann að þessu en það er leiðinlegt
að það skuli vera svona," segir Anna
María sem saknar þess að sjá meira
sjálfstraust í sínu liði.
„Mér finnst vanta allt sjálfstraust
í þetta og að þora að gera hlutina.
Mér flnnst eins og hausinn sé ekki í
laginu því það vantar ekki getuna.
Ég hef þó alveg trú á því að við kom-
um til með að rífa okkur upp. Það er
alltaf slæmt fyrir lið að missa stóran
póst út en ég er viss um að það komi
einhver og leysi það. Þetta verða við-
brigði fyrir alla því maður er nátt-
úrulega bara búinn að vera þarna
eins og húsgagn. Ég er viss um að
stelpurnar eiga eftir að stappa í sig
stálinu og koma sterkar inn eftir ára-
mót," segir Anna María en Keflavík-
urliðið er í 3. sæti Iceland Express
deildar kvenna á eftir Haukum og
Grindavík sem hafa unnið alla fjóra
innbyrðisleikina gegn Keflavíkurlið-
inu í vetur.
Kveðjuleikur fyrir Önnu Mar-
íu?
Þegar Anna María leggur nú
skóna á hilluna þá vantar hana
aðeins ijögur stig upp á að ná að
skora 5000 stig í efstu deild. Anna
María hefur skorað 4996 stig í 323
leikjum eða 15,5 að meðaltali í leik.
Þegar blaðamaður gerir önnu Maríu
grein fyrir þessu þá er ekki frá því að
vakni löngun til þess að ná eina sjá-
anlega markmiði sem Anna María
Sveinsdóttur á eftir að ná í körfunni.
10
Yfir 500 leikir fyrir Keflavík
Anna Marla fékk skemmtilega
mynd að gjöfeftir að hún lék slð-
asta vorsinn 500. leik fyrir Keflavlk i
öllum keppnum.
„Ertu ekki að grínast? Allt í lagi, ég er
tilbúin í að spila kveðjuleik," segir
Anna María í léttum tón og ef að það
hefur einhvern tímann verið ástæða
til þess að íslenskur leikmaður fái
tækifæri til þess að kveðja körfuna á
sínum forsendum þá er það fyrir
Önnu Maríu Sveinsdóttur. Því má
örugglega búast við því að Keflvík-
ingar séu farnir að leita að hentug-
um leik til þess að kveðja
körfuknattleikskonu aldarinnar og
þakka herini fyrir tuttugu frábær
starfsár fyrir körfuboltann í Keflavík.
ooj@dv.is
y| skoruð í 323
TríFir Wleikjum í efstu deild
með Keflavík.
^Qlandsleikir fyrir ísland.
fjf fíQstig fyrir íslenska
/ Oif landsliðið.
Oi
sinnum kosinn besti
eikmaðúr íslandsmótsins.
10
sinnum valin í lið ársins.
6sinnum stigadrottning efstu
deildar kvenna á íslandi.
1 M tímabil í röð sem hún
JL TTskoraði yfir tíu stig að
meðaltali.
Ofll sti8í13
wv 11 bikarúrslitaleikjum,
meira en nokkur leikmaður, karl
eða kona.
M QWig í 33 úrslitaleikjum
TtJf 4 um íslandsmeistara-
titilinn.
OCOst'S 158 leikjum í
OOOúrsli
slitakeppni kvenna.
Ronaldinho
og Prinz best
í heimi
Ronaldin-
ho er besti
knatt-
spyrnumaður
FIFA annað
árið í röð en
hann fékk
verðlaunin af-
hent í fyrrakvöld. Ronaldinho hafði
betur í baráttunni við þá Frank
Lampard og Samuel Eto’o en það
em landsliðsþjálfarar heims sem
kjósa. Þýska knattspymukonan
Birgit Prinz vann sömu verðlaun í
kvennaflokki en þetta er þriðja árið
í röð sem hún er valin best. Brasil-
íska knattspymukonan Marta varð
í 2. sæti og Shannon Boxx frá
Bandaríkjunum varð í 3. sætinu.
Pétur Hafliði Marteinsson með samningstilboð frá Hammarby til næstu þriggja ára
Býst við að vera í Svíþjóð í eitt ár í viðbót
Landsliðsmaðurinn Pétur Hafliði
Marteinsson er nú með lausan samn-
ing hjá félagi sínu í Svíþjóð, úrvals-
deildarliðinu Hammarby, sem hann
hefur leikið með síðan hann gekk til
liðs við það frá Stoke City í Englandi
árið 2003. Hann lék áður með
Hammarby árin 1996-1998, á sfnum
fyrstu ámm í atvinnumennskunni.
Honum stendur þó til boða að semja
við félagið upp á nýtt til þriggja ára en
hann staðfesti það í samtali við DV
Sport í gær.
„Ég er að velta fyrir mér hvað ég
geri," sagði Pétur. „Sennilega mun ég
spila í Svíþjóð í eitt ár til viðbótar og
eftir það gæti verið sá möguleiki fýrir
hendi að koma heim. Ég mun senni-
lega skrifa undir þennan þriggja ára
samning eftir áramótin en í honum
verður ákvæði sem gerir mér kleift að
endurskoða mína stöðu að hvetju
tímabili loknu. Ég mun skoða mín
mál nánar þegar líður á tímabilið í
Svíþjóð í sumar og ég veit betur
hvemig meiðslin hafa farið með mig."
Pétur meiddist illa í leik með ís-
lenska landsliðinu í byrjun júní í
sumar og hefur ekkert getað spilað
með Hammarby síðan þá. Hann fót-
brotnaði og hlaut þar að auki meiðsli
á hné sem hafa reynst þrálát. „Ég jafn-
aði mig fljótt á fótbrotinu en ég fór svo
í aðgerð á hné í síðasta mánuði. Ég
byrja að skokka aftur í janúar og von-
andi get ég spilað eitthvað með liðinu
í Royal League-deildinni í febrúar."
Um möguleikann að koma heim
og spila með liði hér á landi segir Pét-
ur að enn séu öll slik mál óráðin. „Það
kemur til greina að hætta og líka að
spila hér heima," sagði Pétur sem er
32 ára gamall.
eirikurst@dv.is
Pétur Marteinsson Fótbrotn-
aði / landsleik snemma I sumar
en verður vonandi kominn d fullt
aftur dður en um langt er liðið.
I. ■ ■ ' 1