Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 39 Spurning dagsins Hvað færðu í matinn á aðfangadag? Hefmeira það segja fengið Kentucky-kjúkling. „Ég held að ég fái hrygg. Ég fer I mat til tengdó. Það er mjög mismunandi hvað ég fæ íjólamat, stundum erþað gæs en ég hefmeira að segja fengið Kentucky-kjúkling einu sinni." Irma Þöll Þorsteinsdóttir nemi. Það er mismunandi hvað fólk fær sér að borða á jólunum. Þó að fólk sé fast í venjum sínum vilja líka margir breyta til og prófa eitthvað nýtt á aðfangadag. „Ég fæ alltafrjúpu nema náttúru- lega I fyrra. Þá fékk ég nauta- lund. Mér finnst rjúpan samt langbest." Reynir Logi Ólafsson laga- „Ég hef ekki hugmynd. Fékk hamborg- arahrygg í fyrra og það gæti líka gerstiár." Arna Auðuns- dóttir nemi. „Ég fæ amerískan kalkún en það kemur fyrir að ég fæ ham- borgarhrygg." Þorvaldur Mattíasson ellilífeyris- þegi. „Mérer alltafboðið í matölljól.Ann- ars fæ ég kalkún og svo elda ég hangi- kjöt á jóladag." EyrúnJó- hannsdóttir V húsmóðir. . Þorsteinn hættirvið Mörður Arnason þingmaður ritar á mordur.is dagsin Þorsteinn Pálsson er hættur við að skrifa bókina um sögu þing- ræðisreglunnar sem þeir Halldór Blöndal ákváðu í sumar og núverandi þingforseti lét forsætisnefhd þingsins samþykkja í septem- ber. Ástæður Þorsteins eru þær að ekki hafi rikt sátt um málið á þinginu - en það hafi hann sett að skil- yrði þegar hann féllst á að skrifa bókina. Sem kunnugt er mótmæltu meðal annars samtök fræðinga og fræðirithöfunda því að Þorsteinn Pálsson, sem hefur mikla reynslu í stjórnmálum og fjölmiðlun en enga af ffæðiritun, skyldi ráðinn án þess að gefa öðrum ffæðimönum og höfundum kost á að sækja um. Ég tók þetta mál svo upp á þinginu og mót mælti þessari ráðn- ingu á sömu for- sendum. Gott hjá Þorsteini Gott hjá Þorsteini að hafna þessu ritstarfi. Hann skilur auðvitað strax að það er óeðlilegt að hann sé tekinn fram yfir reynda sagn- ffæðinga, lögffæðinga, stjórn- málafr æðinga og fræðimenn aðra við verk af tagi, verk sem 1 hlytur að vera eftirsótt vegna hinnar ágætu að- stöðu og kjara sem forsætisnefhdin hugðist veita rithöf- undinum, fyrir utan efnið sjálft sem snertir stjórnmálasögu allr- ar 20. aldar. Laufskálinn skúbbar Það vekur athygli að þessi frétt kom fram morgunspjallþætti á Rik isútvarpinu, Laufskálan- um, sem er yfirleitt ekki vettvangur samtímafrétta. Hún er sögð í dag 20. des ember. Upphafleg ffétt for- sætisnefndar um ráðningu Þorsteins var sett á vefsetur þingsins 28. september. Alykt- un sagnfræðinga var samþykkt 2. október, og ég ræddi þetta við for- seta þingsins 20. október. Hefur Þorsteinn verið að hugsa sig um í tvo mánuði? Eða var hann búinn að segja Sólyeigu Pét- ursdóttur ffá þess- ari ákvörðun sinni fyrir löngu? Af hverju stafar þögnin? Nýr höfundur - vonandi með auglýsingu Engin tilkynning hefur borist frá þingforsetanum ennþá um fráfall Þorsteins sem þingræðishöfund- ar eða um framhald málsins. Á skotspónum hefur yðar einlægur þó hlerað að forsætisnefndin blessuð ætli sér að láta rita þessa sögu hvað sem tautar og raular. Enda nokkuð snúið að hætta við núna - þá er einsog verkið hafi staðið og fallið með fyrrverandi formanni Sjálfstæðis- flokksins. Ætlunin mun vera að fela ritnefhdinni að auglýsa eftir nýjum höfundi - alveg einsog ég og fleiri þingmenn lögðum til í umræðunum 20. október. Það er góður endir á þessu vand- ræðamáli - í bili. Hallgrímur Helgason er staddur í miðju bókaflóðinu. Kvittar á bækur sínar og les bækur annarra. Jólin koma Sat í Smáralind á laugardag að kvitta á bækur. Unnur Bima alheimsdrottning grátandi á hæðinni fyrir ofan. Tíu þúsund manns að samhryggjast henni. Samt fullt af fólki rambandi tnn Hagkaup á meðan. íslenskt samfélag hefúr breysL Það eru ekki allir stilltir á sömu stöð. Náði svo lendingu F-drottningar í E-fréttum NFS tun kvöldið. Hún gekk frá borði með borðann. (Þarf hún að vera með hann allt næsta ár? f morgunmatn- tun? í skólanum?) Hún var hreint logandi fögur, Hefúr breyst. Auðvitað er maður á móti fegurð arsamkeppnum (seint og um síðir varð maður að viðurkenna að femínistar hafa rétt fyrir sér, þær eru ekkert annað en gripasýningar) en hver getur verið á móti þessari ungu stúlku með alheimsbros og bláan borða? Famist henni vel. KK og Ellen sungu í skódeildinni. í kallkerfinu var fólk beðið um að ldkja á þau. Síðan var til- kynnt að undirritaður væri að kynna bók súia „Rokkland" með tveimur k-um. fs lenskir listamenn eru þrautþjálfaðir í auðmýkt. Hér kemst enginn upp með franskan hroka. Gekk svo fram á Silvíu Nótt á leiðinni út þar sem hún sat og áritaði eigin mynddisk á göngum Smáralindar. Það var biðröð við borðið hennar. Spuming um að láta farða sig fyrir næstu áritun. Besta spurning bókaflóðsins kom óvænt á upplestri fýrir unglinga í Rétt- arholtsskóla. Ég var staddur í miðri kynningu á Bödda Steingríms (aðal- persónu Roklands) og var að segja frá því þegar hann var rekinn frá Fjöl- brautaskólanum þegar ung stúlka rétti upp höndina og spurði: „Bíddu, gerðist þetta í alvörunni, eða?“ Við þessu átti ég að sjálfsögðu ekkert svar. Samt búinn að fara í hundrað viðtöl í fjölmiðlum. Og saknaði líí?iui®1fflíi en dá- töh\Lmkule9 efnis- *&gan endurtek- ThíS fannarlega. iíi °í Jensen var lika hataður fvrir aá’Zesa „ Thorsar ana Dl'úsí ofi,; „ “j , \ þess í hvert sinn að spyrjandinn hafði ekki lesið bókina. íslensk- ir listamenn eru þrautþjálfaðir í þolinmæði. Hinsvegar höfðu tökumaðurinn, tæknimaðurinn og útsendingarstjórinn undantekningalaust lesið bókina. Það er gaman í flóðinu. Gaman að hitta kollegana. Einhver kallaði okkur rithöfunda jólasveina. Ekki galin lík- ing. Við búnir að sitja sveittir við inni á læstri vinnustofu í heilt ár og komum svo allir út á sama tíma. Með hrópin Grýlu á bakinu. Búinn að lesa „Hinir sterku" eftir Kristján Þórð Hrafiisson. Sat í mér, vakti spurningar. Þar er m.a. að finna ein bestu rökin gegn frjálshyggju sem sést hafa. Sterk undiralda og stórt erindi í þessari bók sem er þó fúll þurrlega skrifuð fyrir minn smekk. Er að lesa Thorsarana. Djúsí efni en dálítið linkuleg efnistök. Sagan endurtekur sig sannarlega. Thor Jensen var líka hataðin fyrir að gefa í UNICEF. Munurinn á mill- um fortíðar og nútíðar er þó sá að Thor byggði hús og skildi eftir sig glæsivirld. Flest þeirra eru reyndar horfin, en Fríldrkjuvegur 11 stendur enn sem og Korpúlfsstaðir. Þessi bók er efúi í átján þátta seríu fyrir sjónvarp. Ef ekki finnast peningar má reyna að skrifa þetta fyrir þrjár brúður og leikmynd úr pappamassa í stíl við jóladagatalið á RÚV. Verum samt góð um jólin. Hugsum hlýtt til Áma ég-segi-eldd-af-mér Magnússonar og Hall- dórség-seldi-ekki-sjálfum-mér-Búnaðarbank- Ásgrímssonar. Allir þurfa að fá frið um jólin, ekki síst þeir sem eru kvaldir af vondri sam- visku. 1 Hallgrímur Helgason Viðtökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrarnafnleyndar er gætt. Síminn er 550 5090 þLC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.