Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 Stúturinn eini Lögreglan á Selfossi hafði það náðugt um helg- ina en rólegt var í þeirra umdæmi þrátt fyrir skemmtanahald út um all- an bæ. Töluverður fjöldi þorrablóta var í bænum um helgina en þrátt fyrir mikla gleði komu skemmt- anirnar ekki til kasta lög- reglu. Það var þó einn stút- ur undir stýri í uppsveitum Árnessýslu sem lögreglan greip um helgina og mun mái hans fara sína leið í kerfinu. ölvunarakstur endar oftast með hárri fjár- sekt og sviptingu ökuleyfis í ákveðinn tíma. Fréttir DV Veitingamaðurinn Garðar Kjartansson og éiginkona hans Ingibjörg Örlygsdóttir opnuðu formlega nýjan og endurgerðan veitingastað í Þrastalundi á laugardags- kvöld. Fjöldi fólks lagði ferð sína austur fyrir fjall og fagnaði með þeim hjónum. Þrastalundur Var tek- inn í gegn og er nú orð- inn eitt glæsileaasta veit- An réttinda Þorrablótin á Akranesi um helgina voru róleg hvað lögregluna varðar þrátt fyrir mikið fjör. Samt sem áður voru tveir ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur. Einn var tekinn á föstudags- kvöld en hinn á laugar- dagskvöld. Það var reglubundið eftirlit Iögreglu sem kom upp . um stútana tvo. Einn var síðan stöðvaður af lögreglunni á Akranesi en það kom síðan í ljós að sá sami hafði ekki réttindi til þess að sitja undir stýri. Soff ía í fyrsta sæti Soffía Lárusdóttir sigraði prófkjör Sjáifstæðisflokks- ins á Fljótsdalshéraði sem fram fór nú um helgina með 131 atkvæði í fyrsta sæti. 242 voru á kjörskrá og greiddu 171 atkvæði. Sex þeirra voru ógild. Soffía mun því leiða lista flokks- ins á Héraði í næstu sveit- arstjórnarkosningum. Soff- ía hefur gegnt hlutverki bæjarfulltrúa á Fljótsdals- héraði og meðal annars setið sem forseti bæjar- stjórnar. Þrastalundur í Grímsnesi hefur tekið stakkaskiptum síðustu misseri. Veitingamaðurinn Garðar Kjartansson og eiginkona hans Ingibjörg Örlygsdóttir, seiii eiga og reka skemmtistaðinn NASA við Austurvöll, tðku við staðnum í fyrra. Þau hafa að und- anförnu breytt staðnum með hjálp hönnuða og gert hann að glæsilegu veitingahúsi. Á laugardag var síðan komið að opnun- arkvöldinu og settu landsfræg andlit svip sinn á veisluna. „Ég er nú bara með skúringa- hanskana á mér. Þetta var fín veisla hérna í gær. Það mættu um 125 manns. Margir skemmtikraftar tróðu upp. Meðal annarra Kobbi Magg og Englendingur með hon- um,“ sagði Garðar í gær. Hann var í skýjunum með opnunarkvöldið, enda voru flestir sammála um að þeim hjónunum hefði tekist vel til með staðinn. Kátt á hjalia Geir og Siggi Sveinssynir skemmtu sér i góðum féiagsskap. Lottómaðurinn VignirFreyr Andersen, sem er landsmönnum að góðu kunnur sem kynn- ir Lottós á laugardögum. Sjónvarpsstjórinn umdeildi Pátt Magn- ússon á Eurovision-kvöldi og spjallaði meðal annars við Björgvin G. Sigurðsson, þingmann Samfylkingarinnar. RUV-ararnir Egill Eðvarðsson og Kristján Kristjánsson, kollegar hjá Sjónvarpinu. Jónsi mættur Jónsi Isvörtum fötum var meðal gesta en tók þó ekki lagið. Sveitungi Addi Fannar í hljómsveitinni Sklta- móral og Yesmin Olsen dansari létu sig ekki vanta. Enda erAddi úrsveitinni, frá Selfossi. Að lifa í sátt og samlyndi Svarthöfði hefur löngum haft orð á sér fyrir að vera fordómalaus mað- ur. Svarthöfði hefur alltaf litið svo á að allir menn séu jafnir, burtséð frá litarhætti eða trú. Þess vegna hefur Svarthöfði tekið öllum þeim inn- flytjendum, sem ákveðið hafa að setjast á íslandi, opnum örmum. Svarthöfði hefur fagnað hinu fjöl- breytta menningarsamfélagi sem hefur orðið til á íslandi á undanförn- um árum og trúað því að allir geti lif- að saman í sátt og samlyndi á með- an þeir taka tillit hver til annars. At- burðir síðustu daga þar sem múslimar hafa gjörsamlega gengið af göflunum vegna skopteikninga af Svarthöfði spámanni þeirra Múhameð hafa hins vegar fengið Svarthöfða til að hugsa upp á nýtt. Aðgerðir múslima hafa einkennst af fádæma vanstill- ingu. Sérstaklega finnst Svarthöfða sorglegt að sjá innflytjendur í Dan- mörku láta öllum illum látum. Þetta er fólk sem hefur oft á tíðum flúið ömurleg heimkynni í leit að betra lífi og fundið það í til dæmis í Dan- mörku. Það hefur hins vegar ekki reynt að samlagast dönsku samfé- lagi svo nokkru nemur og komist Hvernig hefur þú það? Ég hefþað bara nokkuð gott," segir Magni Ásgeirsson, söngvari hljómsveitarinnar Á ióti sói.„Ég var reyndarað vakna. Hljómsveitin er á fullu að spila en viö vorum að spila Players og Traffic síðustu helgi. Síðan er maður að taka þátt í forkeppni Evróvisjón. Ég er kominn áfram og keppi á lokakvöldinu 17. febrúar og hlakka gífurlega til. “ Ásættanlegt verð „Veislan stóð bara temmilega lengi. Þetta er nefnilega ekki skemmtistaður," segir Garðar en í nýja Þrastalundi verður ýmist hægt að kaupa mat í kaffiteríu eða „A la Carte" á veitingastaðnum, af mat- seðlinum. Verðið segir Garðar mjög ásættanlegt. „Nú verður dagskrá hverja ein- ustu helgi fram að páskum. Hér er samt engin ballstemmning," segir Garðar en á heimasíðu nýja Þrasta- lundar, thrastalundur.is, má sjá matseðil staðarins, panta borð og sjá skemmtidagskrána framundan. Hún skartar Jóni Ólafs og Hildi Völu, Jakobi Frímanni og Röggu Gísla, Stefáni Hilmarssyni, KK, Agli Ólafs- syni og fleirum. Seldu ekki NASA Garðar og Ingi björg hafa rekið skemmtistað- inn NASA við Austurvöll í fjöldamörg ár. í haust bárust þær fregnir að þau hefðu selt staðinn, Það segir Garðar ekki rétt. staðinn skipti þau hjónin með sér verkum. Ingibjörg rekur NASA á meðan hann einbeitir sér að Þrasta- lundi. „Ég hef mikinn áhuga á svæðinu hérna í kring. Það er mikil uppbygg- ing hérna. Um daginn var 150 sum- arbústaðalóðum úthlutað og þær ruku út. Hérna fyrir utan erum við með aðstöðu fyrir útitónleika. Pláss fyrir fimm til átta þúsund manns. Tré allt í kring sem girða það af. Þetta er falinn fjársjóður héma fyrir austan," segir Garðar en hann hygg- ur á útitónleika næsta sumar. Þang- að til geta áhugasamir pantað sér borð og rennt austur í kvöldmat. halldor@dv.is Gestgjafarnir Ingibjörg og Garðar skörtuðu slnu feg- ursta þegar þau tóku ámóti gestum á laugardag. upp með það vegna skilnings Dana. Þetta eru síðan mennirnir sem má ekki gera grín að. Þetta eru mennirnir sem hóta sjálfs- morðsárásum í Danmörku á meðan bræður þeirra brenna danska fána og hóta öllu illu. Svarthöfði skilur ekki þolgæði Dananna. Svarthöfði yrði ekki hissa þótt Danir tækju sig til og vísuðu öllum múslimum úr landi. Til hvers að sitja uppi með flóttamenn og innflytjendur sem geta ekki með nokkru móti samsam- að sig landinu sem þeir búa í. Ef ólík þjóðarbrot eiga að geta búið saman þarf gagnkvæman skiln- ing. Það getur ekki bara gengið í eina átt. Það ættu múslimar í Danmörku að skilja. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.