Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 17
DV Sport MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 17 Mikill stökkkraftur Hér sést Heiðar Helguson skora mark sitt á Old Trafford um helgina. Greening frábær West Bromwich Albion tók á móti liði Blackbum sem undanfarn- ar vikur hafa verið á fínu flugi. Flest- ir bjuggust við ömggum sigri Black- burn en annað kom uppá teningin. Sigraði West Bromwich 2-0 með mörkum í fyrri hálfleik frá Kevin Campbell og Jonathan Greening. Sýndi Jonathan Greening frábæran leik og var mark hans svo sannarlega í takt við það. West Ham sigraði Sunderland einnig með tveimur mörkum gegn engu á heimavelli sín- um. Skoraði Dean Ashton fyrra mark West Ham og er þetta fyrsta mark hans frá því að hann kom frá Norwich í Janúar. Joðin þrjú sáu um mörkin Tottenham menn buðu Her- manni Hreiðarsyni og félögum hans í Charlton í heimsókn á White Hart Lane á sunnudaginn. Voru Tottenham menn mikið ferskari í leiknum og uppskáru nokkuð öruggan 3-1 sigur. Skor- uðu þeir Jermain Defoe og Jermaine Jenas mörk Tottenham og komu þeim í 3-0 áður en Jer- ome Thomas lék snyrtilega á vörn Tottenham og minnkaði muninn. Voru leikmenn Tottenham betri á öllum sviðum í leiknum og var því sigurinn afar verðskuldaður. Luke Moore, Aston Villa Aston ViJla gjörsigraði andlaust lið Middlesbrough á laugardaginn með fjór- um mörkum gegn engu. Gerði hið gríðar- lega efnilega ungstirni í liði Aston Villa sér lítið fyrir og setti eitt stykld þrennu. Moore ólst upp hjá Aston Villa en fór á láni til Wycombe Wanderers í desember árið 2003 þar sem það tók hann ekki nema tvo leiki að skora sitt fyrsta mark. Hann hefur nú skorað 7 mörk í ellefu byrjunarliðsleikj- um með liði sínu og verður það að teljast ansi gott fyrir táningsstrák. Luke Moore skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark í mars á síðasta ári einmitt á móti Middles- brough og sagði þá að markmið hans væri að komast £ byrjunarliðið hjá Aston Villa á næsta leiktímabili. Ljóst er að hann er bú- inn að stimpla sig rækilega inn í lið Villa manna í vetur og á eflaust eftir að banka á dyrnar hjá enska landsliðinu á komandi árum með þessu áframhaldi. Rafa reiður útí Robben Rafa Benitez var langt frá því að vera sáttur við hegðun Aijen Robbens í leik Liverpool og Chelsea um helg- ina. Eftir að Jose Manuel Reyna hafði tæklað Eið Smára gróflega fór Arjen Robben að rífast við hann um brotið sem endaði á því að Reyna ýtti í andlit Robbens. Við það féll Robben með til- þrifum í jörðina og Reyna uppskar rautt spjald. „Við vorum ekld að spila slæman bolta, við lentum einfaldlega undir á móti góðu liði og hlutimir urðu erfiðir," sagði Benitez en bætti við að hann þyrfti að hraða sér vegna þess að hann þyrfti að fara á spítalann til þess að heimsækja Robben sem að hlyti að vera stórslasaður. „Reyna gerði mistök af því að hann var undir pressu en Robben kastaði sér einfald- lega í jörðina, það er mgl að horfa á rautt spjald fyrir svona eftir öll spörkin sem að ekkert er gert í inná vellinum venjulega." Að lokum sagði Benitez að hann væri h'tið annað en vonsvikinn Jose Reina sparkar Eið niður Jose Reina markvörður Liverpool brýtur hér á Eið Smára. eftir rauða spjaldið, eftir að hafa horft á endursýninguna væri hann einfald- lega meira vonsvikinn. Jermaine Defoe, Tottenham James Mllner, Aston Villa Christiano Ronaldo, Man Utd Vassiriki Diaby, Arsenal Stelios Giannakopolous, Bolton Steve Caldwell, Sunderland Wayne Bridge, Fulham David Weir, Everton Titus Bramble, Newcastle Tomasz Kuszczak, WBA Alan Shearer framherji skor- aði sitt201. mark með Newcastle. Með þessu marki varð hann markahæsti leik- maður félagsins frá upphafi en undanfarnar vikur erhann búinn að vera fastur í200 mörkun- um. Fyrra metið átti goðsögnin Jackie Mil- burn sem lék með Newcastle á 5. og 6. ára- tug siðustu aldar. Newcastle sigraði leikinn með tveimur mörkum gegn engu, en þetta var fyrsti leikur Newcastie á tímabilinu eftir að Graeme Souness var rekinn. Jose ManuelReyna mark- vörður Liverpool fékk rauttspjald I leiknum gegn Chelsea eftir að hafa straujað Eið Smára Gudjohnsen á áttugustu mlnútu íleik liðana á sunnudaginn. Eiður Smári hafði leikið á hann inní vitateig að- eins nokkrum sekúndum eftir að hafa verið skipt inná og brást Reyna við þvi með því að klippa Eið niður á lofti og ýta siðan hressilega I andlitið á Arjen Robben sem var afar ósáttur með tæklinguna. Hvítrússinn Alexander Hleb er ekki ánægður með frammistöðu sína Hleb sár út sjálfan sig Alexander Hleb, miðjumaður- inn sterki kom frá þýska liðinu Stuttgart og var mikið talað um að þetta væri réttur leikmaður til þess að fylla í skarðið sem að Pat- rick Viera skildi eftir sig. Viera skildi eftir sig erfitt vekefni og er pressan búin að leika Hvít-rússan grimmt á fyrsta leiktímabili hans í úrvalsdeildinni. Hinn 24 ára gamli Hleb hefur ekki náð að festa sig í byrjunarliði og lítið látið til sín taka á hálfdöpm tímabili Arsenal í ár. „Auðvitað er ég ósáttur með gengi liðsins, mér finnst líka óþægilegt að ég virðist ekki geta sannfært framkvæmdarstjórann um að hann eigi að nota mig á vellinum" sagði Hleb. Hleb sem kostaði Arsenal litlar tfu milljónir punda hefur aðeins verið í byrjun- arliðinu í tíu leikjum á tímabilinu og virðist vera kominn fyrir aftan táningana Cesc Fabregas og Vass- iriki Diaby í miðjustöðunni með Brasilíumanninum GiJberto Silva.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.