Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 14
7 4 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV • JónmundurGuð- marsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, virð- ist vera óumdeilan- legur foringi sjálf- stæðismanna í bæj- arfélaginu. Jón- mundur vann öruggan sigur í próf- kjöri á laugardaginn. Sá sem reyndi að velta Jónmundi úr sessi, Bjami TorfiÁlfþórsson, hafði ekki erindi sem erfiði og endaði í áttunda sæt- inu. Það er líka erfitt að sigra mann sem stærirsigaflægstu fasteignagjöldunum og minnsta útsvarinu á höfuðborgarar- svæðinu... • Viggó Sigurðsson er hættur sem þjálf- ari íslenska lands- liðsins í handbolta. Þetta tilkynnti hann forráðamönnum HSÍ áður en EM í Sviss hófst. Einhverjir myndu segja að það væri skrýtín tímapunktur fyrir Viggó að hætta eft- ir ágætt mót en aðrir telja að Viggó hafi einfaldlega stolið glæpnum af HSÍ. Hann vissi að léleg úrslit á mót- inu myndu þýða að hann yrði rek- inn. Hann hafði ekki trú á liðinu og sagði því upp fyrir mót þannig að ekki væri hægt að reka hann ef illa gengi... • Það vaktí óneitan- lega athygli að sjá hina frábæru söng- konu Ragnheiði Gröndal, syngja bak- raddir í laginu Með- an hjartað slær eftir Tómas Hermanns- son í forkeppni Eurovision á laugar- daginn. Ragnheiður samdi textann við lagið en í stað þess að láta hana syngja lagið fann Tómas stúlku í Sviss sem náði engan veginn að gera neitt fyrir lagið og kom því ekki í úr- slitin. Spuming hvað hefði orðið ef Ragnheiður hefði sungið... • Og meira af Eurovision því óhætt er að segja að Silvía Nótt hafi stolið senunni í for- keppninni á laugar- daginn. Hún stóð fyrir glæsilegri sýn- ingu og var ekki laust við að öðmm keppendum kvöldsins væri vorkunn. Með Siggu Beinteins í bakrödd, skot- helt lag og skothelda framkomu verður nánast ógjömingur að slá þessu Iagi við. Silvía Nótt fer í Eurovision - nema að hún verði dæmd úr leik... • íslenskir leikstjór- ar gerðu góða ferð á kvikmyndahátíðina í Gautaborg sem lauk um helgina. Dagur KáriPéturssonátti bestu mynd hátíðar- innar, Voksne menn- esker, að mati dómnefndar og mynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, var valin best af kvikmynda- gagnrýnendum. Þetta hlýtur að vera sætt fyrir Baltasar sem hefur fengið afar mis- jafna dóma fyrir mynd sína, bæði góða og slæma... Lifa í voninni Ættingj- ar og ástvinir farþega ferjunnar bíða á höfn- inni i veikri von um góðar fréttir. Skipstjórinn yfi Feija með rúmlega 1400 manns innanborðs sökk 92 kílómetra undan ströndum Egyptalands aðfaranótt föstudags. Ferjan hét A1 Salam og var á leið frá Saudi Arabíu til Egypta- . lands. Um 400 manns hafa bjargast en meira en 1000 manns er saknað. Lítil von er á að fleiri finnist á h'fi. Far- þegar feijunnar voru flestír Egyptar að snúa heim úr Hajj, árlegri píla- grímsferð múslima til Mecca í Saudi Arabíu. Létu sem ekkert væri Eldur kviknaði í bílageymslu skipsins. Þegar eldsins var vart og eldvamarbjallan hljómaði lét áhöfn- in eins og engin hætta steðjaði að og sagði farþegum að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur. Shahata Ali, einn þeirra sem björguðust segir skip- stjóra skipsins, Sayed Omar, hafa tekið ákvörðun um að halda sigling- unni áfram þrátt fýrir eldinn og full- vissað farþega um að engin ástæða væri til að óttast þar sem áhöfnin hefði fulla stjóm á ástandinu. „Við höfðum farið í björgunarvesti en hann sagði að ekkert væri að og við ættum að fara úr þeim. Síðan tók áhöfnin af okkur vestin." Fyrstur frá borði Eldsins varð vart fljótlega eftir að skipið lagði úr höfn en magnaðist svo skyndilega og barst í vélarrým- ið. Enn er verið að rannsaka tildrög slyssins en talið er að skipið hafi sokkið vegna þess að sjór hafi komist í bflalest ferjunnar meðan á slökkvistarfmu stóð og hún tekið að hallast. Fólk sem komst lífs af úr slysinu segir að skipstjórinn og stór hluti áhafnarinnar hafi flúið um borð björgunarbát um leið og þeim varð Ijóst að það væri að sökkva. „Skips- stjórinn var fyrstur frá borði og það kom okkur á óvart þegar skipið fór að sökkva.“ sagði Khaled Hassan, sem var einn af þeim sem björguð- ust. Skipstjóns leitað Forsvarsmenn fyrirtækissins sem rekur feijuna segja í yfirlýsingu, sem þeir gáfu út eftír harmleikinn, að feij- an hafi staðist allar öryggiskröfur varðandi millilandasiglingar. Tals- maður Hosni Mourabaks, forseta Eg- yptalands, sagði það þó vera ljóst að allt of fáir björgunarbátar og björg- unarvestí hafi verið f ferjunni. Þeir sem lifðu af og fjölskyldur þeirra sem em látnir eða saknað em gríðarlega reiðir og ásaka skipstjórann og áhöfhina fyrir að hafa átt sök á dauða hundmða manna og sýnt ófyrirgef- anlegt hugleysi og hugsað einungis um eigin hagsmuni og fórnað þús- und mannslífum til að bjarga eigin skinni. Skipstjórinn sem flúði er ófúnd- ,Við höfðum farið rap@dv.is l*-Jé, ' ■ Ferjan sem fórst Mynd sem var tekin af ferjunni skömmu áður en hún fórst. Mfifa Myrtur fyrir utan kirkju sína Þrettán létust í sprengjuárás í Pakistan Prestur skotinn í hjartað Á sunnudaginn var framið morð á kristnum presti í Tyrklandi. Eftir að hafa lokið við messuhald gekk Andrea Santaro, ítalskur, kristinn prestur út úr Santa Maria-kirkjunni í Tyrklandi. Kirkjan hefur í yfir hund- rað ár verið notuð af kristnum ferða- mönnum sem heimsækja Tyrkland. Þetta var hans síðasta messa því hann var skotinn til bana á á leið út úr kirkjunni. Morðið áttir sér stað í borginni Trabzon við Svartahafið og er íbúum borgarinnar mjög bmgðið eftir verknaðinn. Vitni segjast hafa séð unglingspilt taka upp byssu og skjóta prestinn einu skoti í brjóstið og hlaupa á brott. Ekki er vitað um ástæðuna að baki morðinu en tyrkneska lög- reglan leitar nú drengsins. Rúla sprengd í loft upp Gríðarlega öflug sprenging tætti hluta langferðabfls í suð-vesturhluta Pakistan í gær. Þrettán Pakistanar létu lífið í sprengingunni og að minnsta kosti tuttugu særðust alvar- lega. Að sögn vitna var kraftur sprengjunnar gríðarlegur og ótrú- legt sé að aðeins þrettán af fimmtíu farþegum rútunnar hafi látist. „Þetta var óhuggnaleg og risastór spreng- ing,“ sagði Lal Mohammed, einn þeirra sem lifðu sprenginguna af. „Það var blóð út um alla rútu. Ég rot- aðist þegar hendi sem hafði rifnað af einhverjum lenti á höfðinu á mér.“ Talið er að um ættbálkadeilur hafi verið að ræða, en mikið hefur verið um slíkt í Baluchistan-héraði þar sem sprengjan var sprengd. Auk sprengingarinnar létust fimm til við- bótar í héraðinu út af bfla og jarð- sprengjum. Enginn hefur enn lýst verknaðinum á hendur sér. Fórnarlömb sprengingarinnar Pakist- anskir embættismenn reyna að bera kennsl á llk þeirra sem fórust í sprengingunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.