Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 29
DV Fréttir MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 29 Lesendur Georg VI konungur deyr í svefni Þennan dag árið 1952 lést Ge- org VI konungur í svefni í kjölfar lungnasjúkdóms, 56 ára að aldri. Þjónn kom að konunginum látn- um í rúmi sínu að morgni dags. Hann varð sá síðasti til að kallast keisari Indlands og konungur ír- lands í heimssögunni. Hans er fyrst og fremst minnst sem sam- einingartákns baráttu Breta gegn nasistum í seinni heimsstyrjöld- inni. Elfsabet dóttir hans var ein- ungis 25 ára að aldri og stödd við veiðar í Kenía þegar hún frétti af dauða föður síns. Hún varð sam- stundis drottning Bretlands en sór embættiseið tveimur dögum síðar í heimalandinu. Georg VI var annar sonur Ge- orgs V og Alexöndru drottningar. Edward VIII var frumburður þeirra, en hann afsalaði sér völd- um til að kvænast hinni fráskildu og bandarísku Wallis Simpson. Því varð Georg VI ríkiserfingi og konungur við dauða Georgs V. Saga Bretlands og kóngafjölskyld- unnar þar hefði því orðið allt I dag árið 1922 var Halldór Kilj- an Marie Pierre Laxness „skírður og fermdur“ inn í kaþólsku kirkjuna i Clervaux-klaustri í Lúxemborg. önnur hefði flókið ástarlíf Ed- wards ekki komið til sögunnar. Málverk af Georg VI Hann léstþennan dag fyrir 54 drum slðan. V' Úr bloggheimum Ertiggjaðgrínast? „Ég heyrði júróvisjónlagið hennar Sylvlu Náttar núna áðan. Og viti menn, mér fannst það öm- urlegt. surprise surprise. Að senda þetta súra innanhússdjók í keppnina er vond hug- mynd fólk. vond hug- mynd. Það er ekki nokkur einast helvítist sjéns að þetta kæmist upp úr undanrásunum. Sem er ein helsta ástæða þess að það ligg- ur við að mig langi til að þetta vinni. Ekki eru hin lögin svo sem neitt skárri..." Jóhannes Þ. Skúiason - bess- erwiss.com Að treysta fjársvikur- um „Afhverju finnst mér eins og e-mail sem byrja á „Dear, Good day to you asyou read this mail I will wantyou to have itin mind that this is not another internet scam from africa.but a true plead for help. “ séu eitthvað sem maður á ekki að treysta??" Katrín Atladóttir - katr- in.is Ég hefaldrei „Ég hefaldrei heyrt jafn- mikla tilgerð í kynnum og I söngvakeppni sjónvarpsins. Ég hefaldrei heyrt jafnmikið afvond- um iögum á sama kvöldinu." Bragi Skaftason - bragi.klaki.net Að halda með Islandi „...Þjóðernisstolt/remba er eitthvað sem fór alltaf mikið I taugarnará mér á árum áður. En einhverra hluta vegna er það að breytast. Ég er með- vitaður um hversu heimskulegt þetta er. Maður heldur með einhverjum sem maður tengist ekkert, eða neitt, en hinsvegar eru þeir Islend- ingar. Vei- þvi ber að fagnal?" Stefán Örn Sturiaúgsson - soss.blogdiive.com Lesendur DVeru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Dustið rykið úr augunum Þór Jóhannesson vararfólkviðað nota slðustu aurana I benslnsjálfsala. Vesturbæingurinn segir ættu að hafa opnað augu almenn- ings um að jafnræði rfkir ekki þeg- ar um skemmtikrafta ræðir. Sumir eru fyndnir. Að öðrum er hlegið. Snillingurinn tvinnar saman þetta tvennt. Verum hreinskilin og höfum gaman. Songvakeppnin „Sumireru • * fyndnir. Að öörum er hlegið. jSnillingurinn tvinnarsaman Iþetta tvennt/segirFrosti. Frosti Runólfsson skrifar: Mig langaði bara einfaldlega að skrifa inn og benda á það í sam- bandi við alla þessa leiðu snillinga sem höfðu, eða einfaldlega binda framtíð sína við sitt litla, en sterka lag sem myndi/mun sigra hjörtu, færa fjöll og flytja vatn eftir dúnd- ur framreiðslu þess lags á kom- andi Euróvisionkeppni. Lesendur Hver veit nema „Það var lagið“ leiði til þess að Kárahnjúkavirkj- unin verði lögð niður. „100%“, það ætti að hafa áhrif á versnandi ástand Afríku. Margir segja: „Páll Magnússon hefði ekki hunsað þetta ef um mitt lag hefði verið að ræða.“ Dustið rykið úr augunum. Þið eruð ekki jafn áhugaverð og Silvía Nótt. Hún stendur skrefi framar en flestir vegna þess að hún er nú þegar góður performer sem að land og þjóð er ánægð með, að meirihluta. Allir þessir Idol-þættir lcelandairer ömurlegt Úlfur Uggason skrifar: Ég flaug með Icelandair nýlega. Hef aldrei á ævi minni borgað svo mikið og fengið svo lítið í staðinn. Flugið tók þrjá, fjóra tíma og kostaði frá 25-50 þúsund á mann. A meðan á flugi stóð fékk ég svokall- aðan „mat“: eitt lítið brauð, smá kjúkling og hálft Twix í eftirrétt. Þarf maður virkilega að borga 80-100 þús. á Saga Class til að fá eitthvað almennilegt að borða? Er ekki nóg að borga 25 til 50 þúsund? Ætti maður ekki að eiga von á mat sem er allavefja 1000 kallsíýirbi;- Maturinn sem okkur var boðið upp á var svona um það bil 300 króna virði. Þetta er óásættanlegt. Væri ekki hægt að til dæmis bjóða manni að kaupa ferð fyrir þúsund krónur í viðbót og framreiða einhvern al- mennilegan mat í staðinn. Fyrir utan þetta þurfti vélin síð- an að bíða í klukkutíma á flugvellin- um eftir að við lentum. Ástæðan er að Icelandair kaupir lélegasta og ódýrasta innganginn. Við ættum ekki að sætta okkur við þetta. Við eyðum og eyðum og lcelandair „Ætti maðurekki að eiga von á mat sem er allavega 1000 kalls virði. Matur- inn sem okkur var boðiö upp á var svona 300 króna viröi,“segir Úlfur. erum talin rík þjóð. Látum stjórn- endur Icelandair heyra það, þeir eru Jóakim endur! Olís rændi mig Það er gömul og gild regla í fféttamennsku að ef hundur bítur mann er það ekki frétt, en hins veg- ar er það frétt ef maður bítur hund. Ég ætla því að skrifa ffétt í dag. Að vísu beit ég ekki neinn hund og veit ekki til þess að nokkur hafi gert það en ég var bitinn sem hundur, ef svo má að orði komast. Þannig var mál með vexti að ég fór á bensínstöð Olís við Sæbraut á þriðjudagsnóttina til þess að taka bensín. Þar sem þetta var 31. dagur mánaðarins hafði ég ekki fengið útborg- að og átti því eftir einar fimm hund- ruð krónur. Þær voru sérstaklega sparaðar til þess að eiga fyrir bens- íni svo ég kæmist leiða minna dag- inn eftir. Ég setti aleiguna í sjálfsal- ann þar og valdi dælu fímm. Þegar ég reyndi að dæla gerðist ekkert, og það þrátt fyrir að ég hefði hafið dæl- inguna löngu áður en þær þrjár mínútur sem sjálfsalinn veitti mér sem gálgafrest voru liðnar. Ég var sem sagt rændur af bensínstöðinni. Auðvitað varð ég hundfúll, og reyndi að finna myndavélar á plan- inu til þess að æsa mig framan í. Svo var ég ekki með sfmann á mér til að hringja í þá. Hélt ég því hundfúll heim og ætlaði sko að láta þessa þjófa heyra það næsta dag. Þá var ég hættur að láta þetta fara í taugarnar á mér og ákvað að sleppa öllum frekari aðgerðum. Já, svona er maður! Lætur ræna sig af bensínstöð og gerir ekkert í málinu, eins og hundsgreyið sem bitið er af manninum. Hvað á maður annars að gera? Jú, forðast Olís eins og hundurinn forðast kvalara sinn en ekkert meir. Svona er líf mitt sem hundur. Elskar íslenskt tónlistarlíf og orku „Ég er að læra íslensku en það er stundum erfitt að tala hana þegar ég er að flýta mér,“ segir Kurt Kopecky, hljómlistarstjóri íslensku ópemnnar. Hann hefur verið hér siðan haustið 2003 með konu sinni. Þegar Kurt spjallar yið blaðamann er hann í stuttri þásu frá æfingum fyrir ftum- sýningu Óperunnar á Öskubusku eft- ir Ossini, sem ffumflutt var í gær. „Við hjónin elskum bæði landið og fólkið héma. Orkan er einstök héma og náttúran frábær. Ég er alltaf innilokaður í vinnunni þannig að þegar færi gefst fer ég út úr bænum og anda að mér fjallaloftinu. Ég fór til dæmis út á land með foreldrum mín- um sem vom héma í síðustu viku og urðu ástfangnir af landinu. Það er lík- legast því að þakka að þau fengu sex sólardaga og halda núna að það sé sumar allan ársins hring á Islandi. Tónlist og listalíf er mjög öflugt héma og því hvergi betra að vera fyrir ungan íónlistarstjóra," segir Kurt sem er 32 ára og bætir við að hljómsveitarstjór- ar em taldir ungir fram undir sextugt svo hann á langan feril framundan. Kurt segir Finrtland einnig heilla, sérstaklega þar sem kona hans er ftnnsk. Hann vonast til þess jafnvel að komast þangað í störf í framtíðinni; en tekur ffam að ekkert sé ráðið í þeim efnum. Kurt kom hingað fyrir tilstilli Dav- íðs Ólafssonar söngvara sem var með honum við nám í Vín og tekur nú þátt í uppsetningu Öskubusku. „Við Davíð héldum góðu sam- bandi eftir námið þótt leiðir okkar skildu. Hann fór til Þýskalands og ég til Sviss. Einn daginn fæ ég tölvupóst ffá honum þar sem hann segist hafa verið fastráðinn við Ópemna og þeir væm að leita að tónlistarstjóra. Þeir „Þau fengu sex sól- ardaga og halda núna að það sé sum- ar allan ársins hríng á íslandi gerðu mér síðan tilboð sem ég stökk á og sé ekki eftir. Þrátt fyrir að húsnæði Ópemnnar sé lítið er ótrúlega góður andi héma og frábært starfsfólk sem vinnur héma, atvinnumenn fram í fingurgóma." Kurt gefur lítið fyrir hjátrú þá sem virðist loða við listamenn í faginu. „Þetta er náttúrulega fyrst og ffemst mikil vinna, en heppnin verður líka að vera til staðar." Kurt er fæddur og uppalinn í Austurríki, sonur þeirra Kurt Kopecky og Rosu Munde. Hann hóf að læra á píanó fyrir sitt eigið tilstilli sjö ára gamall. Kurt út- skrifaðist sem hljómsveitarstjóri frá University of Music í Vín árið 2000. Að námi loknu var hann ráðinn til óperuhúss í Biel í Sviss og vann þar í fjögur ár. Hann hefur verið píanóæfinga- og hljómsveitarstjóri Óperunnar frá 2003.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.