Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Side 10
I 10 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Kostir & Gallar Gunnar þykir sterkur leiðtogi, traustur og áreiðanlegur. Hann er kraftmikill og ósér- hlífinn stjórnmáiamaður, húmoristi og skemmtilegur fé- lagi. Gunnar þykir stundum of stjórnsamur og mætti temja sér að vera heflaðri í tali.' Hann þykir vinna ofmikið. „Gunnar er framsýnn, sem hann hefur sannarlega sýnt í starfi sínu í sveitarstjórnar- málum og uppbygg- ingu Kópavogsbæjar. Fólksfjölgunin í Kópa- vogi hefur orðið vegna þess aö hann var tilbúinn með lausnirnar. Gunnarer traustur og áreiðanlegur maður og á það til að sýna ágætis húmor. Gallar hans eru að hann vinnur alltof mikiö.“ Kristlnn H. Gunnarsson, alþingismaður og bróðlr Gunnars. „Hann er hörkuduglegur og ósérhlífinn og mjög vinnusam- ur. Þaö er gott að vinna með honum, hann er fljótur að hugsa og fljótur að ákveða sig. Hann virkarásuma kaldur en er mjög hlýr inn við beinið. Gunnar er raunagóður maður. Galli hans sem getur líka verið kostur er hversu stjórn- samurhann er." Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþlngismaður og sltur einnlg I bæjarstjórn Kópavogs. „Hann hefur upplag sterks leið- toga, áræðinn og sókndjarfur. Sem sterkur leiötogi skyggirhann stundum á samferðamenn sína og er gagnrýndur fyrir að vera einráður. Hann er raungóður og hjarta hans slær meö lítilmagnanum. Gunn- ar er tryggur vinur og skemmti- legur félagi þegar maður kynn- ist honum betur. Hann þarfað temja sér heflaðri framsetningu á málisínu." Hrafnkell Karlsson bóndl. Gunnar Ingi Birgisson er fæddur 30. sept- ember 1947. Hann lauk stúdentsprófi frá MR, verkfræöi frá Háskóla íslands, bygg- ingaverkfræði frá Edinborgarháskóla og lauk doktorsnámi í jarövegsverkfræði frá Háskólanum IMissouri. Gunnar starfaöi sem verkfræöingur I mörg ár, og alþingis- maÖur Sjálfstæöisflokksins frá 1999. Hann er formaöur bæjarráös Kópavogs frá 1990 og er í dag bæjarstjóri Kópavogsbæjar. Kennir skák í febrúarmánuði heim- sækir Henrik Danielsen, skólastjóri Hróksins, alla skóla í Hafnarfirði og kenn- ir skák í öllum árgöngum. í síðasta mánuði var bærinn formlega útnefndur Skák- bærinn Hafnarfjörður við hátíðlega athöfn í Strand- bergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. í lok þessa mánaðar, sunnudag- inn 26. febrúar, verður haldið Skólaskákmeistara- mót Hafnarfjarðar. Mótið fer fram í Strandbergi og hefst kl. 14 að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. Þorrablót var haldið í félagsheimilinu Staðarfelli skammt frá Búðardal um helgina. Yfir hundrað manns blótuðu þorrann en vofveiflegt atvik setti mark sitt á stemning- una. Maður á sjötugsaldri hneig niður fyrir utan félagsheimilið þegar hjarta hans hætti að slá. Lögreglumennirnir Jóhannes Björgvinsson og Kristinn Jónsson voru á staðnum, björguðu lífi mannsins og komu honum undir læknishendur. Lögreglumenn bjnrnuðu bóndn í hjartastnppi „Þetta er ein af þeim stundum þar sem er afskaplega ánægju- legt að vera í lögreglunni," segir Jóhannes Björgvinsson, varðstjóri Lögreglunnar í Búð- ardal. Hann ásamt héraðslög- reglumanninum Kristni Jóns- syni kom bónda á sjötugsaldri til hjálpar þar sem hann hneig niður fyrir utan félagsheimilið Staðarfell aðfaranótt sunnu- dagsins. Þorrblót var á Staðar- felli og setti atburðurinn mark sitt á stemninguna. Lögreglan í Búðardal var við eftir- lit á þorrablótinu í félagsheimilinu Staðarfelli þegar beiðni um aðstoð barst frá gestum blótsins um tvöleytið, aðfaranótt sunnudags. Bóndi á sjötugsaldri hafði hnigið niður fyrir utan húsið. Lögreglu- mennirnir Jóhannes Björgvinsson og Kristinn Jónsson voru á vettvangi og komu honum til meðvitundar. Lögreglan nálægt „Við vorum staddir rétt við húsið þegar þetta gerðist," segir Jóhannes Björgvinsson, varðstjóri Lögregl- unnar í Búðardal. Bóndi á sjötugs- aldri hneig eins og áður segir niður fyrir utan staðinn og hafði fengið bæði hjarta- og öndunarstopp. Lög- reglumenn voru fljótir að koma honum til aðstoðar og hnoðaði Jó- hannes bóndann og kom honum til meðvitundar. Eftir það komu Jó- hannes og Kristinn honum upp í lögreglubíl og var ekið með hann til móts við sjúkrabíl og lækni frá Búð- ardal. Með neyðarbíl á gjörgæslu Lögreglubíllinn mætti lækninum og sjúkrabílnum í Hvammssveit, skammt frá Búðardal. Eftir að bónd- anum hafði verið komið undir lækn- ishendur var keyrt með hann á hrað- „Þetta er starfið manns, en afskaplega ánægjulegt þegar það endar svona." ferð til móts við neyðarbíl Slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins sem tók við í grennd við Kjós. Þar var ekið með bóndann rakleiðis á gjörgæslu- deild Landspítala - háskólasjúkra- húss og var hann illa haldinn á leið- inni. Ætla má að hann hafi verið kominn til Reykjavíkur milli fjögur og fimm í fyrrinótt. Ánægjulegur endir Jóhannes segir að betur hafi farið en á horfðist í fyrstu og að atvik sem þessi - sem enda vel - séu þau sem gera störfin í lögreglunni einkar ánægjuleg: „Þetta er ein af þeim stundum þar sem er afskaplega ánægjulegt að vera í lögreglunni. Þetta er starfið manns, en afskaplega ánægjulegt þegar það endar svona." Hann segir að síðan hann hóf störf sem varðstjóri í Búðardal hafi atvik sem þetta aldrei komið upp áður. Hann hafi þó lent í þessu áður - enda hafi hann sinnt lögreglustörf- um frá árinu 1979. Þorrablótið gekk vel Sveinn Gestsson, bóndi og staðarhald- ari á Staðarfelli, sagði í samtali við DV í gær að þorra- blótið i.f/UPEGLAM hafi tekist vel en atvikið hafi sett svip á stemninguna. Gestir á blótinu voru skiljanlega skelkaðir þegar atvikið átti sér stað en allt fór þó vel að lokum. Bóndinn dvelur nú á hjartadeild LSH og heilsast vel miðað við aðstæður. Að sögn Jó- hannesar bíða heima- menn nú eftir því að hann komi heim. gudmundur@dv.is StaÖarfell Þorrablót varhaldið aðfara nótt sunnudags f félagsheimilinu Stað- arfelli. Bóndi á sjötugsaldri fékk hjarta- stopp fyrir utan staðinn en betur fór en á horfðist.Hann dvelur núá LSH oger líðan hans góð miðað við aðstæður Sjúkrabíll Bóndanum varekið til Reykjavikur frá Staðarfelli. Fyrst i lögreglubll, þvi næst ísjúkrabll frá Búðardal og síðan Ineyðarbíl Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisin s - sem kom til móts við sjúkrabilinn frá Reykjavík. Jóhannes Björgvinsson Varðstjóri Lögreglunnar i Búð- ardal hnoðaði llfí I bóndann og kom honum til meðvitundar með hjálp félaga sins, Kristins Jónssonar lögreglumanns. Rottur koma þegar skolplögn bilar Rotta á stærð við kött Rottan Heimsóknir hennar á yfirborðið má oftast rekja til bilunar Iskolplögn. Skelkaður vegfarandi á Miklu- brautinni í Reykjavík hafði samband við DV í gær eftir að hafa séð rottu. Það átti þó ekki að vera nein venjuleg rotta eftir lýsingum heldur rotta á stærð við kött sem Jiljóp yfir veginn. Vegfarandinn vildi ólmur vita hvort rottum hafi fjölgað í skolpi Reykjavíkurborgar. „Nei, þeim er ekki að fjölga," segir Ómar F. Dabn- ey, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg. „Óftast þegar þær koma upp á yfirborð borgarinnar er hægt að tengja það við bil- un í skolplögn eða opið niðurfall einhvérs staðar sem liggur ofan lögnina. Þær kvartanir sem meindýraeyðar Reykjavíkurborgar hafa fengið segja okkur það að það er ekki mikið um rottugang núna. Þótt það sjáist eitt kvikindi á ferðinni þá förum við yfir- leitt á staðinn þegar okkur berast þessar tilkynningar. Við skoðum þá staðina og oftast getum við tengt þetta við biiun eða þá að ekki séu ristar í niðurföllum," segir ómar. „Rottan er komin upp á yfirborðið eins og skot ef það er op til þess. Þegar þær koma upp á yfirborðið fara þær á flakk og þær halda sig oftast nálægt þeim stað þar sem þær komu upp á yf- irborðið. Þær eiga það líka til að álpast dálíúð langt frá og þá geta þær verið að skokka á milli húsa til þess að finna einhvers staðar stað til þess að kom- ast aftur í lögnina," segir Ómar og bætir við að skolpið sé heimkynni rottunnar. „Holræsakerfi borgarinnar er þeirra heimkynni og þar viljum við hafa þær. Við erum með forvamar- starf allt sumarið. Allir holræsabrunn- ar Reykjavíkurborgar eru þá eitraðir að minnsta kosú tvisvar sinnum og það hefur borið mjög mikinn árang- ur,“ segir Ómar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.