Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Page 12
12 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Hass og spítt
Rétt fyrir klukkan sex í
gærmorgun höfðu lögreglu-
menn í Keflavík afskipti af
tveimur mönnum við reglu-
bundið eftirlit. Lögreglu-
mennirnir grunuðu aðilana
um fíkniefnamisferli og var
því ákveðið að leita á þeim.
Við leit á mönnunum fund-
ust sjö grömm af meintu
hassi og þrjú grömm af
meintu amfetamíni. Þeir
voru yfirheyrðir en sleppt
að því loknu.
„Þaö er feiknagóð stemning
hérá Selfossi, " segir Magrtús
Hlynur Hreiðarsson, frétta-
maður RÚV á Selfossi.„Hér er
svakalega mikið að gerast,
meðal
Landsíminn
mikiii
hiti að myndast fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar í vor.
Síðan eru væntaniegar strætó-
ferðir miiii Selfoss og Reykja-
víkur og þær verða þrettán á
dag. Annars er vor í lofti."
Nýtt líkhús
Fremur óvenjuleg form-
leg opnun átti sér stað í
Reykjanesbæ nú á dögun-
um. Þannig er mál með
vexti að Útfararþjónusta
Suðurnesja opnaði nýtt lík-
hús þar í bæ. Á vef Vflcur-
frétta er sagt að fjölmenni
hafl verið á opnuninni og
að líkhúsið sé glæsilegt.
Richard D. Woodhead, út-
fararstjóri hjá Útfararþjón-
ustu Suðurnesja, bauð
gestum upp á léttar veiting-
ar og blessaði séra Sigfús
Ingvason húsnæðið.
Óháðir
borgarar
Félag óháðra borgara í
Vestmannaeyjum hefur
verið stofnað. Markmið fé-
lagsins er að berjast fyrir
betra og öflugra samfélagi í
Vestmannaeyjum. Félagið
berst fyrir markmiði sínu
með hagsmuni allra íbúa
Vestmannaeyja fyrir aug-
um, án tillits til kynþáttar,
kynferðis, trúarbragða eða
stöðu þeirra að öðru leyti.
Markmiði þessu hyggst fé-
lagið ná með því að skapa
nýja framtíðarsýn fyrir
Vestmannaeyjar og finna
leiðir til að ná því mark-
miði að gera Vestmanna-
eyjar að fjölbreyttu og öfl-
ugu atvinnu- og fjölskyldu-
vænu samfélagi.
Þriðji hluti undankeppni Euro-
vision var haldinn á laugar-
dagskvöldið. Það var fyrirséð að
baráttan um athygli þjóðarinnar
stæði milli Silvíu Nóttar og Birgittu
Haukdal. Mikið hafði gengið á í
vikunni fyrir keppni eftir að lagi
Silvíu var lekið á netið og vildu
margir að henni yrði vísað úr
keppni. Hún fékk þó að taka þátt.
Stemningin í salnum fyrir
keppni var afslöppuð og horfðu
áhorfendur í mestu makindum á
spurningaþáttinn Tíminn líður
hratt undir stjórn Heiðu og Halla
úr Botnleðju. Það brustu á mikil
hlátrasköll þegar sýnd voru mynd-
brot úr gömlum undankeppnum
þar sem Björgvin Halldórsson söng
meirihluta laga. Einnig féll vel í
kramið þegar myndum af svart-
hærðum Pálma Gunnarssyni var
varpað á skjáinn.
Þegar þættinum hennar Heiðu
lauk var komið að Eyþóri Árnasyni
sem sá um að keyra upp stuðið í
salnum. Það gerir þetta enginn bet-
ur en Eyþór sem hefur séð um
þennan þátt í öllum stuðþáttum
landsins: Það var lagið, Idol-
Stjörnuleit og undankeppni
Eurovision. Þessi maður á að vera í
sjónvarpi.
Kynnarnir gengu svo á svið og
byrjaði Brynhildur á því að afsaka
fyrir áhorfendum að hún kæmi
ekki til með að horfa beint út í sal.
Hún yrði nefnilega að horfa til hlið-
ar til þess að geta lesið af skjánum.
Eftir það var kominn tími til að kýla
á fjörið.
Tímaskekkja reið á vaðið
Fyrst steig á stokk söngkonan
Rúna Stefánsdóttir sem flutti lag
Harðar G. Ólafssonar en sá maður
samdi einmitt lagið Eitt lag enn
sem átti lengi vel besta árangur ís-
lands í Eurovison þegar það náði
fjórða sæti í gömlu Júgóslavíu árið
1990. Það vantaði ekkert upp á ör-
yggið hjá Rúnu á sviðinu sem dans-
aði og söng af mikilli gleði. Þetta lag
er hins vegar sannkölluð tíma-
skekkja og virðist sem höfundur
lagsins hafí ekki þróað stíl sinn
mikið frá árinu 1990. Þó mætti ætla
að höfundur hafi gert sér grein fyr ir
því að stíll lagsins væri í eldri
kantinum og því brá hann á það ráð
að henda rappkafla inn lagið.
Rapparinn var enginn annar en
Brynjar Már, útvarpsmaður og
söngvari, sem er síst þekktur fyrir
rapphæfileika. Hefði ekki verið nær
að láta betri helming Brynjars,
Kristínu Ýr úr Igore, rappa þennan
kafla með öðrum áherslum? Þetta
kom út eins og samstarfsverkefni
hjá Geirmundi Valtýssyni og Vanilla
Ice. Skagfirsk sveifla og lélegur hvít-
ur rappari eiga ekki samleið.
Fjarlægt polkapopp
Eftir Geirmundargraðærið var
komið að lagi Sveins Rúnars Sig-
urðssonar, Útópíu. Það var Dísella
Lárusdóttir sem flutti lagið og sagði
höfundur í kynningarmyndbandi
að hún væri sú eina sem gæti sung-
ið lagið. Eflaust er margt til í því þar
sem Dísella sýndi frábæra takta og
söng lagið óaðfinnanlega. Aftur á
móti er þetta lag illskiljanlegt. Það
er líklegast samið með þann til-
gang að falla vel í kramið hjá aust-
anblokkinni sem ræður nú ríkjum í
þessari ágætu keppni. Krassandi
fiðluleikur og íburðarmikill kjóll
Dísellu er eitthvað sem hefði sóm-
að sér vel í höndum dívu frá Serbíu
og Svartfjallalandi. Hinn almenni
íslendingur og þetta annars ágæta
lag eiga ekki samleið.
Ástaratlot við myndavélar
Þeir félagar örlygur Smári og
Sigurður örn sem sömdu lagið Tell
Me mættu með lagið Á ég? Það var
gamla Verslóhetjan Bjartmar Þórð-
arson sem flutti lagið og það er
engum blöðum um það að fletta að
þessi strákur kann að koma fram.
Fyrir manninn í salnum var þetta
prýðisframmistaða en fyrir þá sem
hqima sátu var þettá dýrðlegt því
Bjartmar naut hreinlega ásta við
myndavélarnar. Viðlag lagsins er
grípandi en þó datt flutningurinn
niður um miðbikið en reis á ný
þegar dansararnir þustu inn á svið-
ið. Þá sýndi Bjartmar að hann er
ekki einungis afbragðssöngvari
heldur einnig ótrúlega fótafimur
dansari. Það er í raun óskiljanlegt
að þessi drengur skuli ekki vera
frægari en raun ber vitni. Stjarna er
fædd.
Til hamingju með sigurinn
Þá var komið að atriði kvöldsins.
Það fór kliður um salinn þegar tvær
bleikar stjömur vom bomar inn á
svið. Áhorfendur vissu hvað var í
vændum; drottningin Silvía var á
leiðinni inn á svið. Bakraddirnar
komu sér fyrir. Sigga Beinteins, Pétur
Jesús Guðmundsson og Gísli Magna
vom skæsleg þar sem þau stóðu við
míkrófónana. Silúettudansaramir
Hommi og Nammi komu sér fyrir
bakvið hvítt tjald en þeir em leiknir
af Birni Thors og Rúnari Frey Gísla-
syni. Þvílíkt lænöpp. Silvía Nótt gekk
inn á svið meðan kynningarmynd-
band Þorvaldar Bjama var spilað.
Það heyrðist ekkert í myndbandinu
fyrir öskrum áhorfenda. Síðan byrj-
aði lagið og ekki einn maður í saln-
um sem komst hjá því að fá gæsa-
húð. Þetta er eitthvert rosalegasta at-
riði sem sést hefúr á sviði hérlendis.
Þetta kom vel út í sjónvarpi en þó var
það ekki nema 30% af þeirri upplifun
sem gestir í sal fengu beint í æð.
Rosalegt atriði.
Svissneskt súkkulaði
Það er ekki hægt að óska sínum
versta óvini að koma á eftir Silvíu
Nótt ef hún er í þessu formi sem hún
var í á laugardagskvöldið. Það féll þó
í skaut Katy Þóm Winter sem kom
funheit frá Sviss til þess að flytja lag
Tómasar Hermannssonar, Meðan
hjartað slær. Katy Þóra er gullfalleg
og ber af sér mikinn þokka sem
komst vel til skila bæði í sjónvarpi og
í salnum. Þá var hún einstaklega
eggjandi í klæðaburði og stuttur
kjóllinn kveikti í karlpeningnum.
Hún var þó skjálfandi í röddinni á
köflum en náði engu að síður að skila
sínu með sóma. Lagið hlaut hins veg-
ar ekki náð fyrir eyrum þjóðarinnar
þó svo að alla aðra daga hefði það átt
frekar skilið að fara í úrslitaþáttinn en
lagið 100% serh af einhverjum ástæð-
um flaug inn í úrslitaþáttinn.
Fallegt en virkar ekki
Næst var komið að laginu Mig
langar að hafa þig hér eftir Hallgrím
Óskarsson sem samdi einnig lagið
Það sem verður sem Friðrik Ómar
söng inn í úrslitin í fýrsta þætti for-
keppninnar. Þetta lag er mjög hug-
ljúft og textinn einstaklega fallegur.
Þetta lag á þó engan veginn heima í
Eurovision frekar en Hægt og hljótt
átti á sínum tíma. Þetta lag myndi
sóma sér vel í útvarpsspilun á Létt
967. Sólveig söng vel og í raun ekkert
við þetta að athuga, þetta bara virk-
aði ekki.
Glatað grín
Rokkið hafði látið lítið fyrir sér
fara fyrri hluta kvölds en það breytt-
ist skyndilega. Roland Hartwell var
með lag í fyrsta hluta undankeppn-
innar og var hér mættur með annað
lag, Það var lagið. Kynningin á laginu
lofaði góðu en hugmyndin á bakvið
það er sú staðreynd að gæinn sem
lendir í öðru sæti verður oftar en ekki
frægari en sá sem vinnur. Kynning-
armyndbandið byggði upp vænting-
ar sem hrundu þégar lagið byrjaði.
Flytjendurnir mættu inn á svið með
hárkollur og í rokkaraklæðnaði. Það
verður nú bara að segjast eins og er-
þetta var ekkert fyndið. Þama var
verið að reyna að stæla glysrokkar-
ana í Wig Wam sem slógu í gegn í
Eurovision í fyrra en það tókst ekki.
Þeir fá þó stig fyrir viðleitni og Gunni
Óla fyrir Iron Maiden-bolinn. Það er
gaman þegar reynt er að: brjóta
normið. En því miður gekk þetta ekki,
upp.
Glæsilegri og fágaðri Birgitta
Stjarna Birgittu Haukdal virðist
aldrei ætla að hrapa. Stelpan hefur
látið lítið fyrir sér fara að undanförnu
en kemur nú inn í sviðsljósið af
krafti. Líklega hefur Þingeyingurinn
aldrei verið glæsilegri. Hún söng lag-
ið Mynd af þér eftir Svein Rúnar Sig-
urðsson sem samdi einnig
Eurovision-lagið Heaven. Hann fékk
réttu manneskjuna til að syngja
þetta lag. Hár, klæðaburður og öll
framkoma Birgittu verður fágaðri og
glæsilegri með hverju ári sem líður.
Lagið sem hún söng er grípandi og
skemmtilegt og var atriðið sjálft vel
æft og flott. Birgitta hefur mikinn
kjörþokka og ljóst er að val lands-
manna mun standa miUi hennar og
SUvíu Nóttar.
hjorvar@dv.is
soii@dv.is
Spenntur! Frosti
Logason mætti til að
horfa á vinkonu slna
Ágústu Evu syngja í
hlutverki Silvlu Nóttar.
Hommi og Nammi
Þeir voru flottir bræð
urnir þegar þeir
mættu á svæðið í
fylgd lífvarða.
Tveggja turna tal
Þriöji hluti forkeppni Eurovision fór fram á laugardaginn. Átta lög voru flutt þetta
kvöld en vitað var fyrirfram að baráttan stæði milli tveggja drottninga, Silvíu
Nóttar og Birgittu Haukdal.
Vinsael! Silvfa
Nóttþurfti fylgd
arliðtilað halda
aftur afæstum
aðdáendum.
Til hamingju ís-
land Silvía Nótt
eftir að úrslitin
voru kunngerð.
0
*
Silvia Nótt
Stuðningsmenn
Silvíu létu sitt
ekki eftir liggja.
uoð samhæf-
ing Birgitta
vann velmeð
dönsurunum.