Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 15
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 15
Skipstjóri egypsku ferjunnar sem sökk í Rauðahafið á leið milli Sádi-
Arabíu og Egyptalands er sagður hafa flúið skipið í björgunarbát
manna fyrstur og sinnt engu um afdrif farþega sinna. Tabð er að eld-
ur sem kviknaði út frá bíl í bílageymslu skipsins hafi orsakað slysið.
Vitni herma að áböfn skipsins hafi tekið björgunarvesti af farþegum
til eigin nota og fullvissað þá um að engin hætta væri á ferð.
"-*»***»
mmmmm
WNtesSÍ
Reiði og sorg Æff-
ingjarhinna látnu
öskra aö lögreglu sem
veitir litlar upplýsingar.
1------
1
'***'.«»' ■
Bugaðar af sorg
Tvær konur sem
misstu ættingja í
ferjuslysinu.
Likin hrannast upp
Taliðerað alltaðþús-
und manns hafi hlotið
vota gröf í Rauðahafi
aðfaranótt föstudags
Sökk eftir
árekstur
Allir skipverjar björguðust
þegar risaskipið ECE sökk undan
ströndum
Frakklands
eftir harðan
árekstur við
vöruflutninga-
skip. Skipið
sem innihélt
tíu þúsund
tonn af fosfór-
sýru liggur nú
á 70 metra
dýpi undan
ströndum Cherbourg í Frakk-
landi. Kafarar hafa rannsakað
flakið og komist að því að lítil
hætta sé á að stórfelld umhverf-
isspjöll hljótist af slysinu. Skipið
klessti á vöruflutningaskipið í
Ermasundinu. Vöruflutninga-
skipið þarfnaðist einungis smá-
viðgerða. Slysið er í rannsókn.
Hópur alræmdra hryðjuverkamanna flúðu á ævintýralegan hátt í Yemen á föstudaginn
Liðsmenn al-Kaída brutust út úr fangelsi
Þrettán alræmdir hryðjuverka-
menn úr röðum al-Kaída eru meðal
23 fanga sem brutust út úr fangelsi í
Yemen á föstudaginn. Interpol hefur
gefið út svokallaða appelsínugula
viðvörun vegna flóttans. Slík viðvör-
un er gefin út
og send um
allan heim
til að
vara við
hættum
eins og
póst-
búnum vopnum og ýmiskonar al-
þjóðlegri glæpastarfsemi. Interpol
hefur farið fram á að yfirvöld í
Yemen Iáti sér í té allar upplýsingar
um strokufangana því um sé að
ræða stórhættulega hryðjuverka-
menn.
Fangarnir sluppu úr fangelsinu
með því að grafa 140 metra löng
neðanjarðargöng og skríða í gegn
um þau. Þeir fengu hjálp einhverra
utan veggja fangelsins við gangna-
gerðina. Þeir leika nú lausum hala.
Yfirvöld í Yemen hafa staðfest að
meðal al-Kaída-hyðjuverkamann-
anna sem sluppu sé Jamal Ahmed
Badawi, heilinn á bak við
sprengjuárásina sem
gerð var á herskipið USS
Cole árið 2000. Badawi
sem er Jemeni hafði áður
strokið úr fangelsi en í
fyrra skiptið var það eftir
Jamal Ahmed
Badawi Einn hryðju-
verkamannanna sem
eru á flótta stóð fyrir
stórfelldri sprengjuárás
Fangarnir sluppu úr fangelsinu með þvlað grafa 140 metra löng neðanjarðargöng og
skrlða Igegn um þau.
skotbardaga við fangaverði og er
mikil hætta talin stafa af honum.
Annar strokufanganna, Fawaz Al-
Rabeei, er talinn einn þeirra sem
stóðu fyrir árásinni á franska skipið
Limburg á'rið 2002. Lögreglan í
Yemen fullvissar Interpol um að öll-
um ráðum sé beitt til að reyna að
hafa hendur í hári hryðjuverka-
mannanna.