Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2006, Blaðsíða 25
DV Lífíö sjálft
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 25
1
V
'
Ásinn eltir Dorrit
Dorrit Moussaieff
erfædd 12.01.50
Ufstala er reiknuð út frá
fæðingardegi. Hún tekur til eig-
inleika sem eiga öðru fremur að
móta lífviðkomandi.
Lífstala Dorritar er því 1
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu eru:
Frumkvæði, forsvar, sjálfstæði
og árangur - hættir til þrjósku sem er
reyndar góður kostur.
Árstala Dorritar 2006 er 3
Árstala Dorritar er hinsvegar reiknuð út
frá fæðingardegi hennar og þvl
ári sem við erum stödd á (2006).
Talan á að gefa vísbendingar um þau
tækifæri og hindranir sem árið færir
henni.
Rlkjandi þættir I þristinum eru: Félags-
legir sigrar, sköpun og velgengni. Það
segir að Dorrit mun eflast á árinu sem er
framundan og styrkjast.
Gleðin bergmálar í
söngnum hennar
Signý Sæ-
mundsdótt-
ir er 48 ára (
dag.
„Áhersla er lögð á að hún
gleymi ekki kostum sínum sem
eiga það á hættu að hverfa ef
of mikið af vellystingum um-
lýkur umhverfi hennar.
Gleðin er hljómurinn sem berg
málar í kringum hana og
mannleg samskipti veita henni
mikla gleði og færa sjálfið á
hærra stig," segir í stjörnuspá
hennar.
Þórdís förðunarmeistari Hún
var um tlma m'eð„Breytt útlit“í
Morgunsjónvarpi Stöðvar 2 og hef-
ur einnig skrifað greinar um förðun
og tlsku I blöð og tlmarit.A bakvið
hana stendur Björn Thors leikari.
Við fengum að skyggnast bak við tjöldin hjá kepp-
endum Söngvakeppni Sjónvarpsins um helgina og
fylgdumst með Þórdísi Þorleifsdóttur förðunar-
meistara og samstarfsfólki hennar sem bera
ábyrgð á förðun og hári keppenda. Þórdís segir
okkur frá stemningunni sem ríkti baksviðs.
„Stemningin hefur verið feyki-
lega góð og skemmtileg. Þetta er
upp til hópa yndislegt fólk og frá-
bærir listamenn. Það er gríðarlegur
metnaður og mikil vinna sem liggur
á bak við hvert og eitt atriði," svarar
Þórdís aðspurð um stemninguna
bak við tjöldin í söngvakeppni Sjón-
varpsins og heldur áfram: „Það eru
fjölmargir aðilar sem koma að
þessu og sttmda á bak við lista-
mennina sem við sjáum á sviðinu.
Einhver stjama íhópnum komiö
þér á óvart?
„Silvía Nótt. Ekki spurning og
allt fólkið í kringum atriðið hennar.
Þessi stelpa er algjör gullmoli. Hún
er yndisleg manneskja og alveg of-
boðslega hæfileikarík," segir Þórdís
sem er vissulega reynslunni ríkari
því hún hefur unnið að forsíðum
helstu tímarita landsins, tískuþátt-
um, sjónvarpsauglýsingum og nú
síðast MS herferðin sem er verið að
sýna á öllum helstu miðlum lands-
ins. „Silvía kom mér á óvart. Hún er
yndisleg og allir sem eru með henni
í þessu að sama skapi. Alveg frá-
bærir listamenn og fýrst og fremst
góðar manneskjur."
Talið berst að undirbúningi fyrir
keppni sem þessa. „Undirbúning-
urinn fyrir keppnina hefur staðið i
marga mánuði. Það eru tugir ef ekki
hundruðir manna sem koma að
verkefni sem þessu," útskýrir Þórdís
áhtigasöm um verkefnið og heldur
áffarn: „Base Camp hefur unnið
gríðarlega gott starf og staðið sig
mjög vel að mínu mati. Það hefur
fengið færasta fólkið í bransanum
til að leysa með sér þetta verkefni
og jafhframt haft kjark til að leyfa
nýju fólki að spreyta sig sumstaðar
sem hefur fyllilega staðið undir
væntingum."
Æfingar daglega
„Vikuna fyrir útsendingu eru æf-
ingar alla daga. Á föstudögum er svo
rennslið æft þar sem ég fýlgist með
og hitti keppendur og tek niður
punkta um hvemig mig langar til að
hafa lúkkið. Þetta geri ég í samvinnu
við listamennina og hárgreiðslu-
meistarann, hana Eddu. Svo ráðfæri
ég mig við pródusentinn og skrift-
una líka, þegar ég þarf að fá að vita
hvemig myndvinnslan á að vera.
Hvort þessi eða hinn verði mikið í
mynd, sjást til að mynda bakradd-
imar mikið eða eru dansaramir í
nærmynd og svo framvegis," segir
Þórdís sem þarf að huga að mörgu
fyrir stóra útsendingu sem þessa.
I Elín Reynisdóttir Lokayfirferö |
| á Sollu söngkonu.
Frábært fagfólk
„Það gefur auga leið að ég kemst
aldrei yfir að sminka allt þetta fólk
ein míns liðs. Ég er með frábærar
sminkur með mér. Elínu Reynis og
Sólveigu Bimu frá RÚV og Rakel
ömu frá NFS. Svo eru Friðrikka
Edda og Fanney Silla að sjá um hár- S
greiðslu keppenda. Þetta em hörku
duglegar stelpur og virkilega góðar í
sínu fagi. Þetta er mikil vinna og
langur dagur. Við byrjum að farða
klukkan 13 og emm að fram yfir út-
sendingu. „Spennan er strax farin
að magnast og mikil tilhlökkun í
hópnum. Undibúningur verður
svipaður og fýrir hina þættina. Við
þurfum hinsvegar að stækka aðeins
aðstöðuna okkar og ég þarf að ráða
fleiri sminkur með mér því það
verða líklega um 80 -90 manns sem
stíga á svið þetta kvöld sem þarf að
sminka og greiða og tilheyrandi,"
segir hún og spennan leynir sér ekki
enda er öllu tjaldað laugardags-
kvöldið 18. febrúar.
elly@dv.is
Silvía Nótt “Þessi stelpa
er algjör gullmoli, "segir
Þórdls sminka.
o
Vatnsberinn (20.jan.~i8. febrj
Ekki láta aðstæður sem birtast l
hér samhliða stjörnu þinni draga úr þér
allan mátt, hvort sem um einkalíf þitt er
að ræða, starf eða nám.
©Fiskarnir (19. febr.-20. mars)
Ef þú ert stödd/staddur í sjálf-
skoðun um þessar mundir ætt-
ir þú að horfast í augu við tilveru þína
með jákvæðum augum og deila draum-
um þínum með þeim sem þú treystir en
það eitt stuðlar að þroska þínum.
OHrúturinn (21.mars-19.aprH)
Þér er ráðlagt að verða sveigj-
anlegri og meðtaka nágrann-
ann eins og hann birtist þér. Styrkur
þinn er mikill og tilfinningalegur stöð-
ugleiki eflir þig þegar liðan þ(n er ann-
ars vegar. Þú býrð yfir þörf fyrir að næra
og annast þá sem þú unnir og elur af
þér sterka öryggiskennd sem gerir þér
fært að deila gleðinni með öðrum.
Nautið (20.april-20.mal)
Þú kýst að standa á eigin fót-
um sem þú reyndar gerir án efa dagana
framundan þar sem ókönnuð ævintýri
bíða þ(n.
©Tvíburarnirc;. mal-21.júnl)
Þú ættir ekki að missa trúna á
eigin verðleika því hér birtast vegamót
sem kreljast sjálfstjórnar. Lærðu fyrst og
fremst að þekkja þig og langanir þínar.
I
^rabbmn (22. júni-22.júii)_____
Athafnasemi þín er áberandi
og þrá þín eftir óheftu Iffi birt-
ist hér sömuleiðis. Farðu hiklaust yfir
hvern dag og hugaðu vel að því í hvað
þú eyðirtíma þínum.
LjÓnÍð (2}.júli-22. ágúst)
Hlustaðu vel á manneskjur
sem leiðbeina þér og hugsaðu þig vel
um áður en ákvörðun verður tekin. Þú
verður að gæta þess að ásetningur
þinn leiði alltaf til góðs.
Niey’jdin (23. ágúst-22.sept.)
Iju
Ef þú ert í fjárhagsörðugleik-
um ættir þú að skipuleggja fjárfestingar
þínar betur og stíga eitt skref í einu.
Einblíndu á réttar áherslur og hægðu á
þér ef þú ert ekki í jafnvægi.
Vogin (2lsept.-23.okt.)
Þú ert fær um að nýta þolin-
mæði þína til góðverka um þessar
mundir. Starf þitt eða nám er eflaust
um það bil að breytast mikið. Hér erfyr-
irboði skilaboða um góða heilsu og sig-
ur á keppinautum þínum.
Sporðdrekinn (24.oia.-21.n0v.)
Ef þú finnur fyrir miklu álagi
ættir þú að skipta um umhverfi um
t(ma og efla samskipti þín við ástvini
þína fremur en aðra. Friðsamlegar
stundir og ekki siður gleðilegar eru
framundan og samhliða þeim atburð-
um munt þú jafnvel breyta ákvörðun-
um þínum til góða fyrir náungann.
Bogmaðurinnp/.mív-ií.tej
Orka þín mun speglast marg-
falt til þ(n frá vinum þínum og fjöl-
skyldu. Gefðu af þér af alhug og
hlúðu að því sem þú telur sannarlega
i skipta máli. Bogmaðurfyllist
greinilega af jákvæðum krafti hér í
vikubyrjun.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Hér kemur sterklega fram að
þú ert nýjungagjörn/- gjarn
og virðist vera á góðri leið með að
flytja (nýtt húsnæði og takast á við
nýtt starf/nám sem veitir þér ómælda
ánægju. Hik er sama og tap, hugaðu
vel að því kæra steingeit.
W>
SPÁMAÐUR.IS