Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Page 16
76 MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR2006
Sport DV
KSÍ mótmælir
stjórn ÍSÍ
„Ársþing KSÍ mótmælir
harðlega þeim vinnu-
brögðum stjórnar ÍSÍ að
sniðganga knattspyrnu-
hreyfinguna við úthlutun
á sérstöku fjárframlagi
menntamálaráðherra til
sérsam-
banda.“
Þessi í^fiS§||H (
ályktun
var sam-
þykkt á
ársþingi
KSÍ um
helgina
en for-
maður sambandsins, Egg-
ert Magnússon, var harð-
orður gagnvart stjórn ÍSÍ
þar sem hann sagði KSÍ
ekki njóta réttlætis þegar
sameiginlegir fjármunir
íþróttahreyfingarinnar
væru greiddir út. Væri um
að ræða íþróttapólitík en
ekki jafnræðissjónarmið.
4
Ít
KSI
Malmö tapaði
fyrir Kolbotn
Þær systur Ásthildur og
Þóra Helgadætur léku um
helgina æfingaleik með
sænska úrvalsdeildarlið-
inu Malmö FF sem tapaði
á heimavelli fyrir norska
liðinu Kolbotn, 1-0. Ást-
hildur hefur leikið með
Malmö undanfarin ár en
hyggst koma heim í sumar
og leika með Þóru í
Breiðabliki. Hún mun þó
nokkra leiki með Malmö í
vor áður en hún kemur
heim og spilar í íslenska
boltanum á nýjan leik.
Þóra var fengin að láni f
leikinn og mun ekki skipta
um félag á næstunni.
Upplýalngar 1 alma 680 2626
Textavarp: Stöö 2 • 160*163
RÚV • 281,283 og284
Vinnlngatölur
Imigffrrfngfnn
10.2.2006
V W
n6nu>
Tvöfaldur 1. vinningur tám
nk. laugardag
Jökertttlur vlkunnar
2J)
mnn
Jóker | 5|2 |7 19 |51
Fyrsti vinningur gekk ekki út.
L8TT8
|Vinningstölur miðvikudaginn |
8.2.2006
Aðaltölur
Bónustölur Ofurtala
21 22 m
lókertölur vikunnar
msð (ynrvara um pranlvflijr
Lið Hauka og Stjörnunnar mætast í úrslitum SS bikarkeppni karla í Laugar-
dalshöllinni eftir tæpar tvær vikur en liðin báru sigurorð af andstæðing-
um sínum í undanúrslitum keppninnar um helgina. Haukar unnu topplið
Fram en Stjarnan vann ÍBV.
Páll Ólafsson þjálfari Hauka segir að sínir menn hafi saknað
þess að spila úrslitaleik bikarkeppninnar enda fjögur ár liðin
síðan Haukar voru þar síðast. Hans menn unnu topplið DHL-
deildarinnar á Ásvöllum um helgina á meðan Stjömumenn
sýndu hvers þeir em megnugir með góðum sigri á ÍBV.
Tvö af bestu liðum landsins
mættust á Ásvöllum þegar Haukar
tóku á móti Fram. Síðarnefnda
liðið er núverandi topplið DHL-
deildarinnar en Haukar eru ís-
landsmeistarar og hafa ríka hefð á
bak við sig. Þeir hafa þó ekki kom-
ist í bikarúrslitaleikinn í fjögur ár
og sagði Páll Ólafsson, þjálfari
Hauka, við DV Sport að liðið hefði
lagt ríka áherslu á að komast
þangað í ár, sérstaklega þar sem
engin úrslitakeppni er á dagskrá í
vor. Svo fór að Haukar unnu,
30-27.
„Það er mjög mikilvægt fyrir fé-
lagið að komast í bikarúrslitaleik-
inn og höfum við þar að auki
saknað þess að spila þann leik
enda stærsti einstaki leikur ársins.
Okkur langaði það mikið og okkur
tókst það,“ sagði Páll en Haukar
mættu HK í úrslitaleik bikarsins
árið 2001 og báru þar sigur úr být-
um.
Páll segir að hans menn hafi
breytt út frá sinni hefðbundinni
6:0 vörn og spilað með einn mann
fyrir framan vörnina til að taka út
Sigfús Pál Sigfússon. „Hann hefur
verið þeirra aðalmaður í vetur og
held ég að það hafi tekist bæri-
lega. Hitt gekk upp að mörgu leyti
þó svo að við höfum misnotað
fjögur víti í leiknum og farið með
fullt af góðum færum. En við vor-
um þó að skapa- okkur þessi færi
sem er vissulega mikilvægt."
Síðast titill 1989
Stjörnumenn kepptu síðast til
úrslita í bikarkeppninni í febrúar
árið 2000 þegar liðið tapaði fyrir
Fram. Síðast varð liðið bikar-
meistari árið 1998 eftir sigur á Vík-
ingum í úrslitaleik. Síðasti bikar
sem Stjarnan vann var árið 1989
og því óhætt að segja að Garðbæ-
inga hungri í annan titil. Þá var
Sigurður Bjarnason, sem nú er
þjálfari liðsins, leikmaður Stjörn-
unnar.
„Þetta var mjög skemmtilegt að
komast í úrslitaleikinn og
framundan er hörkuleikur við
Hauka. Ég tel að það verði fyrst og
fremst skemmtilegt fyrir hand-
boltaunnendur að fá þessi tvö lið í
úrslitin," sagði Sigurður.
Sigur Stjörnunnar á ÍBV var í
raun aldrei í hættu en Stjörnu-
menn koma greinlega jafn vel
stemmdir til leiks og þeir voru
þegar deildin fór í hlé fyrir jól.
Patrekur Jóhannesson og Tite
Kalandadze voru öflugir og skor-
uðu samtals sautján mörk í 36-32
sigri Stjörnunnar. „Þegar leik-
mennirnir í kringum þá eru að
spila þá vel uppi finna þeir sig
vel," sagði Sigurður. „En Patti er í
virkilega góðu formi og hefur
mjög gaman af þessu."
Roland Eradze gat ekkert spil-
að með Stjörnunni í gær vegna
meiðsla. „Við fengum hann
meiddan frá landsliðinu og próf-
uðum að vísu að nota hann gegn
Þór í vikunni en hann var kominn
með verk eftir tíu mínútur. Nú
munum við einbeita okkur að því
að ná honum 100% og taka þann
tíma til þess sem þarf."
Vilja spennu úrslitakeppn-
innar
Páll Ólafsson segir að hann hafi
alltaf verið talsmaður þess að
deildarkeppnin gefi af sér íslands-
meistara en ekki sæti í úrslita-
keppni. „En auðvitað saknar mað-
ur hennar. Það væri ef til vill gam-
an að fá einhverja aðra keppni þar
sem væri til dæmis keppt um pen-
ingaverðlaun - einhvers konar
fyrirtækjabikarkeppni," sagði Páll
en slíkt fyrirkomulag þekkist vit-
anlega vel í körfuboltanum og
hefur gefið góða raun.
eirikurst@dv.is
Fram og reynir hérskot. Hann,
ásamt Kára Kristjánssyni, var
markahæstur Hauka með sex
mÖrk. DV-mynd Stefán
Bikarlið Gróttu var stöðvað af Islandsmeisturum Hauka um helgina
Rauður dagur framundan í Laugardalshöilinni
Það var ekki einungis karlaiið
Hauka sem tryggði sér sæti í úrslita-
leik bikarkeppninnar um helgina því
kvennaliðið gerði það sama með
sigri á Gróttu, 25-22. Gróttustúlkur
hafa ekki verið meðal efstu liða í
deildarkeppninni en engu að síður
er liðið mikið bikarlið og sló meðal
annars út lið Stjörnunnar í fjórð-
ungsúrslitum. í fýrra komst liðið alla
Ieið í úrslitaleikinn eftir að það vann
óvænt lið ÍBV í undanúrslitum en þá
höfðu Eyjastúlkur unnið Hauka í
átta liða úrslitum. Haukar mæta
einmitt ÍBV á nýjan leik en nú í úr-
slitaleiknum.
„Það er rétt. Við töpuðum fyrir
þeim í bikarnum í fyrra," sagði Guð-
mundur Karlsson þjálfari Hauka við
DV Sport. „En við unnum þær í
deildinni og voru með betri árangur
þegar á heildina er litið. En mér líst
vel á þennan úrslitaleik. Þetta ætti
að verða jafn og spennandi leikur og
sennilega mun dagsformið skipta
sköpum í bikarleik sem þessum."
Guðmundur fagnaði því að karla-
liðið sé einnig í úrslitum bikarsins
en rauðklæddir stuðningsmenn
Hauka munu sjálfsagt setja mikinn
brag á úrslitadaginn í Laugardals-
höllinni.
„Við vorum þó ekki að leika vel
að mér fannst," sagði Guðmundur
um leikinn. „Það voru nokkrir ágæt-
ir leikkaflar en heilt á litið var
frammistaða okkar döpur. Við
brenndum til að mynda af fimm vít-
um en þrátt fyrir það fannst mér við
vera með yfirhöndina í leiknum."
Ramune Pekarskyte hefur verið
helsta skytta Hauka undanfarin ár
en hún á við meiðsli að stríða. „Hún
lék nokkrar sóknir í gær en er ekki
laus við meiðslin. Við munum þó
gera allt sem við getum til að hafa
hana klára í úrslitunum."
eirikurst@dv.is
Tvö mörk inga Fríða Tryggva-
dóttir skoraði tvö mörk fyrir Hauka
í Qeer en hér mætir hún varnar-
mönnum Gróttu. DV-mynd Stefán