Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Qupperneq 27
DV Bílar MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 27 gegn eða framhjá, en í sumum dempurum er flæðið stillanlegt, því mýkri verður dentparinn. I land- knúin reiðhjólapumpa hitnar við notkun vegna núningsviðnáms. Sama gildir um dempara. Sé lengi ekið á ójöfnum vegi hitnar dempar- inn þar til vökvinn sýður; loftbólur myndast og demparinn verður óvirkur. Minnka rná hitnun dernp- ara með auknu olíumagni, þ.e. stærri dempara sem þá verður þyngri og fyrirferðarmeiri. Æski- legra er að hækka suðumark olí- unnar í demparanum með því að auka þrýsting á vökvanum. Sé það gert með gasi, en gas öfugt við vökva þjappast, breytist virkni demparans ekki við að hitna; suðu- mark vökvans hækkar og álagsþol demparans eykst. Niturgas (köfn- unarefni) hentar vel í dempara þar sent það efnahverfist ekki nteð olí- unni né þéttist við kólnun. Hvað gerir PCV? „Positive Crancase Ventilation" er búnaður sem loftar innri hluta vélar (sveif- arhús) án þess að vaida mengun andrúmsloftsins; hringrásarkerfi með ein- stefnuloka sem flytur gufu frá sveifarhúsi og inn í soggrein vélarinnar. Þannig er vélin látin brenna þessunt gufum sent annars myndu menga andrúmsloftið. Hringrásinni stýrir þrýsiivirkur kúluloki, svonefndur PCV-loki, á ventlaloki vélar og er hann tengdur soggreininni með gúmmíslöngu. Liður í þjónustueftirliti bíls, t.d. á smurstöð, er að ganga úr skugga um að PCV-lokinn virki (kúlan á að hringla). Tepptur PCV-loki er hreinsaður eða endurnýjaður. Virki PCV-loki ekki getur það valdið gangtruilunum. Sé PCV-loki tepptur þéttist gufa innan í vélinni þegar ltún kólnar og myndar með útfellingum eitrað og tærandi skúm sem getur valdið ótímabærum og varanlegum skemmdum t.d. á kambás. er á lænra veöri , Sama hér? Margt bendir til að það sama sé uppi á teningnum hérlendis; að ís- lendingar kaupi jeppa fyrst og fremst til að auka öryggi sitt í um- ferðinni, hvort sem sú aukning er ímynduð eða raunveruleg en gildið sem stöðutákn komi því næst í röð- inni. Afstaða jeppaeigenda til um- hverfisins virðist vera sú að setja ör- yggið á oddinn (eins og með nagla- dekkin). Sé þetta rétt ályktað fæst bæði mikið öryggi og miki]l bíll fyrir peningana í þessum nýja Ford Ex- plorer af 3. kynslóð, sem er nýr bílf en ekki einungis andiitslyfting; grindin er ný, fjöðnm og stýrisgang- ur hefur verið endurbættur, t.d. með álagsnæmu aflstýri þannig að leik- andi létt er að leggja þessu volduga tæki; innréttingin er betur útfærð og vandaðri en í árgerð 2005 og síðast en ekki síst er þessi Explorer enn þægilegri ferðabíU en sá eldri og er þá miklu til jafnað. Sparneytni er afstæð Spameytni bfls er afstæð, t.d. er álitamál hvor sé spameytnari 7 manna 2 tonna Explorer sem eyðir 12 lítmm á hundraðið eða 4 manna smábfll sem vegur tonn og eyðir 6 lítrum. Eyðslan er hins vegar mæl- anleg í lítmm og peningum. Með 4 lítra 210 ha V6-vél og 5 gíra sjálf- skiptingu er Explorer nægilega afl- mikill til að vera þægilegur í borgar- umferð. Viðbragðið er um 9 sek. 0- 100 km/klst. Vélin er þrautreyndur vinnuhestur, sem verið hefur ára- tugi í jeppum og pahbflum frá Ford (12 ventla vél); þýðgeng, hljóðvær, viðbragðsgóð og spameytin. Meðal- eyðsla samkvæmt EPA-mælingu, en F08D EXPL0RER XLT2006 Snerpa, 0-100 km/klst 8,7 sek ★ ★★★ I Flutningsrýmið j Með aftursætiö fellt | \er það 2486 lítrar [ogmeð slétt gólf. ■ - . , ý„: I Nýi Explorerinn I Kostar einni milljón I minna en LandCruiser. I sú mæling er staðlað viðmið sem nota má við samanburð á bflum (raunveruleg eyðsla fer eftir aðstæð- um, aksturslagi, hleðslu o.fl.), er 15,5 lítrar í borgarakstri og 11,6 á þjóð- vegi. Samkeppnin skilar sér Hinn nýi Ford Explorer ber greinileg merki harðnandi sam- keppni á markaði fyrir þessa ákveðnu gerð bfla. Verðið hefur lækkað umtalsvert um leið og gæðin hafa verið aukin. Frágangur er betri, bfllinn betur hljóðeinangraður og meiri búnaður innifalinn. Nú er bara að sjá hve lengi verðið verður svona hagstætt. Ekki þarf að taka það ffarn að hérlendis er Explorer fjórhjóladrifinn með hátt og lágt drif. Millikassinn er rafskiptur. Stað- albúnaður er 5 sæti en bflinn má j Ford Explorer af ár- Jgerð 2006 Nýr bíll og I verulega endurbættur. einnig fá með sætum fyrir 6 eða 7. Þriðju sætaröðina er hægt að fá með rafknúnum fellibúnaði (sérbúnað- ur) en séu aftari sætaraðir felldar myndast gríðarlegt flutningsrými með nánast sléttu gólfi. Samanburður Athyghsvert er að bera nýja Ex- plorerinn saman við metsölujepp- ann hérlendis, Toyota LandCruiser með 39 hö öflugri V6-bensínvél og 5 gíra sjálfskiptingu, en sá kostar einni milljón kr. meira en Explorer. Töl- umar í svigum gilda fyrir Land- Cmiser. Explorer vegur 2000 kg (1950), heildarlengdin er 4912 mm (4810), breiddin 1872 mm (1790) og dráttargetan er mest 2680 kg (2800). Ford Explorer er næstum 7% stærri bfll en LandCruiser, með botnskugga 9,19 fermetra á móti 8,6. Stærðarmunurinn á bflunum er þó mun meiri að innanverðu en utan- verðu sem sést m.a. á því að farang- ursrýmið í 5 sæta Explorer er 1320 lítrar en 403 htrar í LandCruiser og þegar aftursætið hefur verið fellt niður í Explorer er flutningsrýmið 2486 lítrar en 1350 lítrar í Land- Cruiser. Ford Explorer er með sjálfstæða fjöðmn á öllum hjólum en Land- Cruiser á heilli afturhásingu. Inni- fahð í verði ódýmstu gerðarinnar af Explorer (XLT) er talsvert mikill búnaður, m.a. ABS-kerfi með átaks- miðlun, veltistýri, tölvustýrt fjór- hjóladrif, hahastýrð veltivöm og loftkælikerfi fyrir utan öryggisbún- aðinn, sem er, eins og við er að búast í amen'skum jeppa, af fullkomnustu gerð. Leó M. Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.