Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Side 17
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 7 7
F
Vinsæl Vefslðan MySpace.com
gefur fólki möguleika á að
skapa sitt eigið heimasvæði.
Siðan nýturmikilla vinsælda.
■
„Þetta snýst um hvernig krakkarnir
sjá sig i samfélaginu og hvernig
þeir vilja vera. Þetta er ný leið fyrir
krakka til þess að „hanga" saman.
Eru að skapa
tengsl Ungling-
areinangrast
ekki með þvi að
stunda netið,
heldurskapa
tengsl og skapa
sér imynd.
Deilur um sjónvarpsþáttinn Lærlinginn
Trump skýtur á Mörthu Stewart
Verkamenn Wembley-leikvangsins munu vinna veömál
Stórgræða á eigin seinagangi
Sjónvarpsstjörnurnar Martha
Stewart og Donald Trump deila nú
hart í bandarískum fjölmiðlum.
Martha Stewart hugðist taka við
Lærlingnum, sjónvarpsþættinum
Ætlaði að reka Trump Martha Stewart
ætlaði að segja hina frægu setning Donalds
Trumps:„Þú ert rekinnT'Átti Trump sjálfur að
taka pokann sinn.
sem Donald Trump kom á fótinn.
Trump átti að hætta með þátt-
inn, og sagðist Stewart ætla að reka
hann í fyrsta þættinum. Einnig átti
að breyta nafni þáttarins; setja
nafn Mörthu Stewart þar inn. Til-
raunaþættir voru gerðir síðasta
haust og átti að athuga hvort
Stewart væri hentugur arftaki. Eftir
nokkra þætti var ákveðið að hætta
við framleiðsluna. Segir sjónvarps-
konan fræga það hafa verið vegna
þess að Trump hafi ekki vilja hætta
með sinn þátt og ætlað í sam-
keppni við sig.
A þriðjudaginn útskýrði Trump
sína hlið málsins í bréfi sem hann
skrifaði til Stewart. „Frammistaða
þín í þáttunum var hræðileg.
Þættina skorti útgeislun, skemmt-
anagildi og margt fleira. Mér leist
ekki á blikuna," sagði Trump í bréf-
inu. „Þetta voru bara mistök, sér-
staklega fyrir NBC.“
Verkamenn sem vinna að bygg-
ingu Wembley-leikvangsins í
London lýstu því hversu heppnir
þeir voru við breska dagblaðið The
Sun í gær. Verkamennirnir gátu,
eins og aðrir, lagt undir í veðmáli
sem gekk út á hvort Wembley-leik-
vangurinn myndi opna á réttum
tíma, 13. maí. Veðmangararnir hjá
fyrirtækinu Paddy Power, sem sáu
um veðmálið, sáu ekki fyrir að
verkaménnirnir myndu leggja undir
í þessu veðmáli.
Verkamennirnir vissu að verkið
myndi aldrei klárast á réttum tíma.
Opnað var fyrir veðmál þann 30.
janúar, en þá hafði fyrirtækið sem
sér um uppbyggingu leikvangsins
gefið út að um 70 prósent líkur væru
á því að verkið kláraðist á réttum
tíma. Aðeins var opið fyrir veðmál í
tvo daga. Á þessum tveimur dögum
voru 12 milljónir lagðar undir. Tals-
maður fyrirtækisins sagði að mqnn
hefðu þá áttað sig á að mistök hefðu
verið að opna fyrir þetta veðmál.
„Við hefðum áttum að sjá þetta fyrir.
Þegar við sáum að verkamenn voru
að leggja undir í gríð og erg, í útibúi
okkar sem er nálægt Wembley, fór
okkur að gruna ýmislegt. Einnig
fannst okkur skrýtið að enginn hafði
lagt undir að verkið yrði klárað á
réttum tíma."
Verkamenn sem töluðu við The
Sun sögðust hafa vitað í marga mán-
uði að leikvangurinn yrði ekki opn-
aður á réttum tíma. Samt sem áður
lögðu fæstir þeirra háar fjárhæðir
undir í veðmálinu.