Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Qupperneq 18
78 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
Sport DV
71.þrennan
hans Kidd
Jason Kidd
var með flórðu
þreföldu tvennu
tímabilsins og
þá71. áferlin-
um þegar hann
skoraði 12 stig,
tók 12 fráköst og
gaf 13 stoðsend-
ingar í 89-85 sigri New Jers-
ey Nets á Milwaukee Bucks.
Vince Carter skoraði 45 stig
fyrir New Jersey, þar af 38
þeirra í seinni hálfleik. „Þeg-
ar skorari verður heitur eins
og Carter í þessum leik verð-
ur þú að koma boltanum til
hans,“ sagði Kidd eftir leik-
inn en hann átti fimm af
stoðsendingum sínum á
Carter.
Bogavac
spilarsinn
fyrsta leik
Ljubodrag
Bogavac hefur
fengið leikheimild
og spilar sinn
fyrsta leik með KR
þegar liðið heima-
sældr Hamar/Sel-
foss í Hveragerði í kvöld.
Bogavac er þrítugur og 204
sm kraftframherji sem hefur
mikla reynslu. „Mér líst
mjög vel á Bogie, en hann
hefur staðið sig vel á æfing-
um og er fjölhæfur leikmað-
ur sem kann leUdnn mjög
vel. Hann á eftir að styrkja
okkur í lokabaráttunni, enda
leikmaður með reynslu,"
sagði Herbert Arnarson í
viðtali við heimasíðu KR.
Blikastúlkur
Faxaflóa-
meistarar
Breiðablik tryggði sér á
þriðjudagskvöld
sigur í Faxaflóa-
móti meistara-
flokks kvenna
með því að vinna
1-0 sigur á
Stjörnunni á
Stjörnuvelli í
Garðabæ. Fyrir leikinn voru
liðin jöfn að stigum og ljóst
að það lið sem ynni sigur í
leiknum yrði Faxaflóameist-
ari. Vanja Stefanovic skoraði
sigurmarkið á 34. mínútu
leiksins. Blikar unnu alla
fimm leiki sína í mótinu
með markatölunni 30-2 og
liðið hélt Jireinu í fjórum
þessara leikja.
Raulfyrsturtil
að spila
lOOIeiki
Spánverjinn
Raul hjá Real Ma-
drid varð á þriðju-
dagskvöldið fyrsti
leikmaðurinn í
sögu meistara-
deildarinnar til
þess að leiki 100 leiki í
keppninni en hann kom þá
inn á sem varamaður í 0-1
tapi Madrídarliðsins fyrir
Arsenal. Félagar hans hjá
Real Madrid, Roberto Carlos
(98 leikir) og David Beck-
ham (96), gætu náð þessu
líka í ár en þá þarf Real-liðið
að sýna miklu betri leik í
seinni leiknum á Highbury.
Raul er einnig markahæsti
leikmaður meistaradeildar-
innar frá upphafi en hann
hefur skorað 51 mark í
keppninni.
18. umferð Iceland Express deildar karla fer fram í kvöld og stórleikur kvöldsins er
örugglega leikur liðanna í 2. og 4. sæti í Keflavík. Það er ekki nóg með að þetta sé
einn af úrslitaleikjum toppbaráttunnar heldur mættust liðin einnig í bikarúrslita-
leiknum í Laugardalshöll um síðustu helgi.
Réðu ekkert við Jeremiah
Jeremiah Johnson hjá Grindavík
var óstöðvandi í fyrri hálfleik bik-
arúrslitaleiksins þarsem 19 stig, 7
fiskaðar villur og 5 stoðsendingar
hans sáu tilþess að Grindavík fór
inn i klefa með 21 stigs forskot
gegn Keflavík.Johnson gafallt
sitt i leikinn og varlfka orðinn
þreyttur I seinni hálfleiknum.
: w
i'l *ri ya mm
mm
Spillir sigurvíman fyrir?
Ef marka má þróun mála undan-
farin ár hefur það reyrist nýkrýnd-
um bikarmeisturum oft erfitt að ná
sér niður fyrir næsta leik á eftir.
Fjórum sinnum á síðustu sex árum
hafa bikarmeistararnir tapað fyrsta
deildarleik sínum eftir bikarúrslit-
in. Keflavík (2004) og Njarðvík
(2002) eru einu bikarmeistararnir
til þess að vinna fyrsta leik sinn á
nýrri öld en í bæði sldptin mættu
þau liði sem féll úr deildinni seinna
um vorið.
Hafa ekki tapað heimaleik
í þrjú ár
Ef litið er framhjá kæru Hamars-
manna sem færði þeim tvö miJdl-
væg stig í fallbaráttunni hafa Kefl-
víkingar ekki tapað deildarleik á
Sunnubrautinni í rúmlega þrjú ár
eða síðan nágrannar þeirra í Njarð-
vík unnu þá 7. janúar 2003. Ham-
ars/Selfoss-menn kærðu leik og
unnu hann hjá dómstól KKÍ en ekki
inni á vellinum þar sem Keflavík
vann ellefu stiga sigur, 88-77. Kefla-
víkurliðið hefur með þessum leik
unnið 35 heimaleiki í röð og er
fimm leikjum frá því að jafna met
Njarðvíkur í úrvalsdeild en Njarðvík
vann 40 heimaleiki í röð á árunum
1986 til 1989.
Fimm aðrir leikir í kvöld
Allir hinir fimm leikir 18. um-
ferðarinnar fara fram í kvöld og
vekur væntanlega leikur Njarðvík-
Grindvíkingar tdku Keflvíkinga í kennslustund í Laugardals-
höllinni á laugardaginn og héldu áfram sigurgöngu sinni í
bikarúrslitaleikjum. Þrátt fyrir að Keflvíkingar hafi unnið alla
þrjá leiki liðanna í deild og deildabikar þegar kom að úrslita-
leiknum áttu þeir aldrei möguleika gegn grimmum Grindvík-
ingum sem áttu svör við öllu. Keflvíkingar geta hins vegar
glaðst yfir einu, þeir fá tækifæri til þess að leita hefnda eftir
aðeins fimm daga bið þegar liðin mætast í Iceland Express
deildinni í kvöld.
Sárt og sætt Leik-
menn Grindavíkur og
Keflavík upplifðu bikar-
úrslitaleikinn á misjafn-
an hátt.
DV-myndir Vilhelm
Það var eins og Keflavíkurliðið
hefði ekki komið til leiks í fyrri hálf-
leik bikarúrslitaleiksins og Grinda-
vík var komið 21 stigi yfir í hálfleik
og hafði haldið Keflavík í aðeins 34
stigum á fyrstu 20 mínútum leiks-
ins. Seinni hálfleikurinn var því
hálfgert formsatriði og Grindvík-
ingar unnu þar sinn fjórða bikarúr-
slitaleik í jafnmörgum leikjum.
Leikurinn í kvöld er gríðarlega
mikilvægur í baráttunni um eftir-
sóttustu sætin í úrslitakeppninni en
með átta stiga sigri eða stærri geta
Grindvíkingar komist upp fyrir
Keflavík í annað sætið. Keflvíkingar
eru með tveimur stigum meira og
eiga því enn möguleika á deildar-
meistaratitlinum en til þess þurfa
. þeir að vinna upp fjögurra stiga for-
skot Njarðvíkinga og 24 stiga óhag-
staðan innbyrðisleik frá 30. desem-
ber. Deildarmeistaratitillinn er því
elcki beint inni í myndinni en
Keflvíkingar þurfa sigur á bikar-
meisturunum í kvöld ætli þeir sér
að verja 2. sætið í þessari umferð.
inga á móti
Snæfelli í
Stykldshólmi
mesta eftir-
væntingu en
Njarðvíkingar
hafa nú unnið
tvo leiki í röð gegn Snæfelli
eftir sjö töp í röð þar á und-
an. Bæði lið hafa verið á
góðu róli, Njarðvíkingar
hafa unnið fimm leiki í röð
en Snæfell er með þrjá sig-
urleiki í röð. ÍR-ingar fá gott
tækifæri til þess að bæta stöðu sína
fyrir úrslitakeppnina þegar þeir fá
Skallagrím í heimsókn í Seljaskól-
ann og þá geta Haukar komist upp
úr fallsæti með sigri á Þór á Akur-
eyri. Hinir leikirnir eru viðureignir
Hamars/Selfoss og KR í Hveragerði
og Hattar og Fjölnis á Egilsstöðum.
ooj@dv.is
Deildarmeistarar Hauka taka á móti bikarmeisturum Stúdína
Nýjustu meistarar kvennakörfunnar mætast á Ásvöllum
Megan og Maria Megan Mahoney hjá Haukum og Maria Conlon hjá ÍS eru frábærir
ieikmenn og gera báðar lið sin betri.
Nýjustu meistaralið kvenna-
körfunnar mætast í kvöld á Ásvöll-
um í Iceland Express deild kvenna
en þá taka deildarmeistarar Hauka
á móti bikarmeisturum Stúdína.
Þessi leikur gæti vissulega flolckast
sem upphitunarviðureign fyrir
komandi úrslitakeppni því fátt get-
ur komið í veg fyrir að þessi lið
mætist þar í undanúrslitunum,
Haukar hafa tryggt sér 1. sætið og ÍS
er fjórum stigum á eftir Keflavík
sem er í 3. sætinu. Þetta er líka fyrsti
leikur liðanna eftir ótrúlegan 63-62
sigur ÍS í átta liða úrslitum bikar-
keppninnar þar sem Maria Conlon
skoraði þriggja stiga körfu um fjór-
um metrum fyrir utan línuna um
leið og flautan gall. Það er eina tap
Haukaliðsins gegn íslensku liði síð-
an í býrjun október en liðið er búið
að vinna 16 deildarleiki í röð.
Haukaliðið hefur ekkert spilað í
14 daga eða síðan liðið trýggði sér
deildarmeistaratitilinn með eins
stigs sigri á Grindavík í Grindavík 8.
febrúar síðastliðinn. Þjálfari liðsins
Ágúst Björgvinsson verður ekki með
í kvöld þar sein hanri er upptekinn
með karlalið Hauka sem spilar mik-
ilvægan fallbaráttuslag við Þór á Ak-
ureyri. Yngvi Gunnlaugssbn stjórnar
Haukaliðinu í kvöld líkt og hann
gerði í úrslitaleik Powerade-bikars-
ins þar sem Haukar unnu 14 stiga
sigur á Keflavík, 77-63.
ÍS hefur unnið síðustu sex leild í
deild og bikar og hefur bætt sinn leik
með hverjum leik. Bandaríski bak-
vörðurinn Maria Conlon hefur fallið
vel inn í liðið og er sterkur leikmað-
ur sem þekkir það vel hvað þarf til
þessa að vinna í körfubolta. Conlon
var með 25 stig og 14 stoðsendingar
í bikarúrslitaleiknum og er með 26
stig og 12,3 stoðsendingar að meðal-
tali í síðustu þremur leikjum þar
sem hún hefur nýtt 53% skota sinna
og 9 af 15 skotum fyrir utan þriggja
stiga línuna.