Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Page 29
UV Lífið
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 29
Atta liöa ursiu i ; * sisraði í fyrra en riensuuis
- »»— ”*•
andi i ár. —
Sigmar Guðmundsson
Kemur í stað Loga Berg-
mannssem spyrill og al-
mennur stuöpinni.
K-'
í kvöld keppa
lið Flensborgarskóla í Hafnarfirði og
Borgarholtsskóla í átta liða úrslitum
í Gettu betur. Borgarholtsskóli sigr-
aði á síðasta ári, en teflir fram ungu
og óreyndu liði í ár, þar sem sigur-
vegarar síðasta árs eru útskrifaðir.
Liðin unnu sínar viðureignir í út-
varpinu nokkuð örugglega, Borgó
lagði Framhaldsskólann að Laugum
og Flensborg keyrði niður Fram-
haldsskólann í Austur-Skaftafells-
sýslu.
Lenda í úrslitum á tíu ára
fresti
„Við stefnum á að vinna, alveg
klárlega," segirÁrni Stefán Guðjóns-
son liðsmaður Flensborgarskólans.
Allir meðlimir liðsins hafa áður
Hafsteinn Birgir,
yngsti meðlimur-
inn í liði Borgó Segir
það taka tima að
byggja upp gott lið.
DV-mynd Hari
keppt í keppninni, en koma
fram í sjónvarpi í fyrsta sinn í
kvöld. „Flensborg komst fyrst í
úrslit árið 1986 og svo aftur árið
1996, það er því aldrei að vita
hvað gerist í ár,“ segir Árni, en
Flensborg hefur ekki ennþá
unnið hinn ástsæla hljóðnema.
Ámi vill kalla þetta Liverpool-
taktíkina og lfldr því velgengni
liðsins við velgengni Liverpool í
bikarkeppninni f breska fótbolt-
Engin pressa á Borgó
„Nei, þetta er bara afslappað,
það krefst þess enginn að við
sigrum aftur," segir Hafsteinn
Birgir Einarsson, meðlimur í liði
Borgarholtsskóla, en
skólinn vann keppn-
ina í fyrra. „Það
tekur langan tíma
að byggja upp gott
lið, strákarnir í lið-
inu í fyrra voru til
dæmis allir á síð-
astaári," segir Haf-
steinn enn fremur.
Hafsteinn er yngsti
meðlimurinn í liðinu,
er bara á fyrsta ári, en
hann hefur næga
reynslu úr spurninga-
keppnum. „Já, ég tók
þátt í Spurninga-
keppni grunnskól-
anna og vann hana
árið 2004," segir Haf-
steinn, stoltur og til-
búinn f viðureignina
í kvöld.
Hverjir hafa unn-
ið Gettu betur?
FjölbrautaskóliSuðurlands1986
FjölbrautaskólinnlBrerOholti 1987
MenntaskolinnrReykiavrk.mS
MenntaskólinniKópavogl.1989
Menntaskálinn viðSund, 199
Menntaskólinn <1 Akureyn, 1991
MenntaskólinnaAkiireyn.1992
Menntaskólinn íReykjavik, 1993
MenntaskólinniReykiavik.1994
Menntoskolinn i Reykiavik, 199S
Menntaskólinn í Reyk/avik, 1996
MenntaskolinniReykjovlk, 1997
Menntaskóllnn I Reykjavik, I99B
MenntaskalínniReykiavik 1999
Menntaskólinn í Reyk)avlk, 2000
Menntaskólinn i Reykjavlk, 200 J
Menntaskolinn i Reykpivik, 2002
Menntaskólinn í Reykiavik, 2003
Verzlunarskóli islands, 2004
Borgorholtssköli, 2005
Úrslit seinni
umferðar.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 17
Verzlunarskóli islands
Menntaskólinn í Kópavogi 19
Menntaskólinn á Akureyn 2b
Menntaskólinn við Hamrahlið 25
Kvennaskólinn i Reykjavik 11
Borgarholtsskóli 20
Framhaldsskólinn á Laugum 16
Fjölbrautaskólinn i Gardabæ 27
Menntaskólinn við Sund 29
Menntaskólinn á Egilsstöðum 17
Menntaskólinn i Reykjavtk 26
Fjölbrautaskóli Norðurl. vestra 12
Fjölbrautaskóli Suðurlands 13
Framhaldssk. í A-Skaftaf.sýslu 15
Flensborgarskólinn iHafnarfirði 20
Gettu betur-lið Flens- f
borgarskólans Stefniríúr-1
slitin f ár. DV-mynd Hari. jí.
l
Anna Kristin
Jónsdóttir Sér um
að semja spurning-
arnar og dxma í
Gettu betur í ár.
Jónas Örn Helga-
son Byrjaði i Gettu
betur-liði MH og kepp
ir núna um milljónirl
Meistaranum.
Nær MR að komast á beinu
brautina?
Menntaskólinn í Reykjavík hefur
unnið keppnina 12 sinnum í heild-
ina. Hann hefur þó ekki sigrað
undanfarin tvö ár og á því harma
að hefna núna. Fleiri hættuleg
lið eru þó meðal þeirra átta
sem keppa um hljóðnemann,
en Menntaskólinn við
Hamrahlíð og Verzlunaskól-
inn þykja einnig luma á
góðum liðum sem og
Menntaskólinn á Akureyri
sem aldrei má vanmeta.
Gettu betur er á dagskrá
Sjónvarpsins klukkan 20.10
alla fimmtudaga fram á vor.
dori@dv.is
Krúttkynslóðin tryllti lýðinn í vel heppnaðri tónleikaferð til Berlínar
Heljarinnar Evróputúr í sumar
„Þetta var þannig að fjögur bönd
fóru út, Skakkamanage, Borko,
Hudson Wayne og Seabear og spil-
uðu tvenna tónleika á tveimur mjög
merkilegum og fínum klúbbum í
Berlín. Þangað mættu miklu fleiri
en við áttum von á,“ segir Svavar
Pétur Eysteinsson í hljómsveitinni
Skakkamanage. „Hinn tímann not-
uðum við til þess að skoða þessa
dýrindisborg sem sum okkar þekkja
mjög vel og aðrir minna. Berlín er
merkilegasta menningarborg Evr-
ópu og er gróskan í menningarlíf-
inu gríðarleg. Þannig að okkur
leiddist ekki."
Svavar segir það hafa verið gam-
an að sjá hversu ánægðir Þjóð-
verjarnir voru með tónleikana og að
þeir hafi f raun tryllst yfir íslensku
krúttkynslóðinni. Á milli atriða var
spilaður borðtennis sem þykir al-
gengt á betri skemmtistöðum borg-
Seabear
Kom fram á
tónleikunum
í Berlín.
arinnar.
„Það mynduðust mörg viðskipta-
sambönd í þessari ferð sem ekki
verður farið frekar út í hérna. En við
stefnum á heljarinnar Evróputúr í
sumar í kjölfarið á þessari ferð. Það
má líka búast við því að Senjórinn,
sem þessi ferð hét, muni reka inn á
íslandsstrendur fljótlega," segir
Svavar. Annars er Skakkamanage á
leið upp í bústað um helgina að taka
upp fyrir nýja plötu.
4K-