Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2006, Blaðsíða 10
7 0 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006
Fréttir OV
Kostir & Gallar
Kostirnir eru að Birgir er
skemmtiiegur, hreinskilinn og
Ijúfur drengur.
Ókostirnir eru helst þeir að
hann er hræðilegur bar-
þjónn og þrjóskur.
•jL
m
„Kostirnir eru að hann
erskemmtilegurog
hugmyndarikur. Hann
er líka með helvlti fín-
an aulahúmor sem ég
kann að meta. Hann er
skemmtilegur tónlistarmaður
og það er gaman að vinna með
honum, svo er flott hvernig
hann pródúsar hlutina.
Varðandi ókosti þá myndi ég
ekki mæla með honum sem
barþjóni miðað við drykkinn
sem hann var með í útgáfu-
partíinu sínu. Það var algjör
viðbjóður. Svo á hann það til að
tala stundum ofhratt."
Hildur Ingveldardóttir Guönadóttir
tónlistarmaður.
„Hann er ótrúlega
hreinskilinn og Ijúfur
drengur. Hann kemur
sínum skoðunum og
smekk í framkvæmd
þrátt fyrir mótmæli og mótbyr.
Það ergott að vinna með hon-
um og hann er vel skipulagður.
Ókostirnir eru þeir að hann er
stundum ofþrjóskur og áttar
sig ekki alltafá því sjálfur en
með hjálp góðra vina kemst
hann í gegnum þetta."
Þorvaldur H. Gröndal, tónllstarmaður
og vinur Curvers.
„Kostirnir eru þeir að
við Birgir komumst oft
aðsömu niðurstöðu án
þess að þurfa að fara i
gegnum hvert skreffyr-
ir sig. Hann hefur
einnig mikinn og flottan stll,
eiginlega svo mikinn að það er
rosalegt.
Það fer lltið fyrir ókostunum,
eiginlega bara ekki neitt."
Alex McNeil, söngvarl Klmono og vinur.
Birgir örn Thoroddsen eða Curver er
fæddur 1. febrúar 1976. Birgir hefur vakið
mikla athygli sem pródúser og fyrir eins
manns hljómsveit sína, Curver. Birgir hefur
komið víða við í tónlist og unnið með
fjöldamörgum þekktum tónlistarmönnum
og hljómsveitum. Eln'nig hefur hann hald-
ið listasýningar bæði I Klink og Bank og
Listasafni íslands. Mannanafnanefnd hef-
ur hafnað ósk Birgis um að fá að heita
Curver.
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
(ÍÁR^)
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem heimilar þeim sem í erfiðleikum
eiga með að kjósa að velja sér sjálfir aðstoðarmann í kjörklefa. Sævar Helgason, 1
Nýrri lífssjón, félagi þeirra sem misst hafa útlimi, telur að telja megi þá félags-
menn á fingrum annarrar handar sem ný lög gagnast.
Sævar Helgason Hérfyrir
framan Alþingishúsið þar sem
nýtt frumvarp hefur verið lagt
fram sem auðvelda á handa-
lausum og blindum að kjósa.
DV-Mynd Valli
m■■"■ ■
til hjalpar
ÉfeW.; z... __•
i æ-í v ' - •• • * >.
Mffl
Min
Sfcip
§r
j*
Ellefu þingmenn, með Sigurð Kára Kristjánsson í fararbroddi,
hafa lagt fram frumvarp til laga sem auðvelda á fólki að kjósa
sem fyrir á í erfiðleikum með það. Gengur frumvarpið út á að
handalausir, blindir og aðrir sem vegna atgervis síns lenda í
vandræðum í kjörklefanum, geti sjálfir tilnefnt aðstoðarmann
en hingað til hafa þeir þurft að notast við einhvern úr viðkom-
andi kjörstjórn.
„Vissulega er þetta til bóta en ég
held að telja megi félagsmenn okkar á
fingrum annarrar handar sem þetta
gagnast," segir Sævar Helgason, fé-
lagsmaður í Nýrri lífssjón, en það eru
samtök þeirra sem misst hafa útlimi.
„Sjálfúr er ég einhentur en get kosið
og reyndar gert næstum hvað sem
er," segir hann.
Missti hönd í New York
Sævar telur að nýja frumvarpið
komi frekar þeim til góða sem eru
lamaðir og bundnir við hjólastól og
geti sig vart hrært:
„Auðvitað er gott að slíkt fólk geti
valið einhvem til að aðstoða sig sem
það treystir vel og h'ður vel með," seg-
ir Sævar sem missti aðra höndina í
vinnuslysi um borð í íslensku skipi í
höfninni í New York fyrir 25 árum. Þar
í landi kynntist hann samtökum
þeirra sem misst hafa útiimi og stóð
að stofnun þeirra hér á landi fyrir átta
„Sjálfur er ég ein-
hentur en get kosið
og reyndar gert næst-
um hvað sem er.“
árum: „Það er oft sem fólk vill ekki
þiggja ráðleggingar nema frá þeim
sem sjáifir hafa lent í sömu
aðstæðum. f því felst styrkur samtaka
okkar; Nýrrar lífssjónar," segir hann.
80 félagar
Nú em félagsmenn í Nýrri lífssjón
um 80 taisins og em aðstandendur þá
taldir með: ,Ætii virkir félagar séu ekki
um 40 til 50 taisins," segir Sævar sem
nú starfar sem gagnastjóri hjá Fiski-
fréttum.
f fmmvarpi þingmannanna um
nýjar aðstæður og aðstoð fyrir þá sem
í vandræðum eiga með að kjósa, seg-
ir meðal annars:
Lagatextinn
„Ef kjósandi skýrir kjörstjóm svo
frá að hann sé eigi fær um að kjósa á
fyrirskipaðan hátt sakir sjónieysis eða
þess að honum sé hönd ónothæf skal
sá er kjósandi nefnir til veita honum
aðstoð til þess í kjörklefanum, enda er
sá sem aðstoðina veitir bundinn
þagnarheiti um að segja ekki ffá því
sem þeim fer þar á milli. Um aðstoð-
ina skal bóka í kjörbókina, að tif-
greindum ástæðum. Aðstoð skal því
aðeins veita að kjósandi geú sjáifúr
skýrt þeim er aðstoðina veitir frá því
hvemig hann vill greiða atkvæði sitt.
Óheimilt er að bjóða þeim aðstoð er
þannig þarfnast hjálpar."
Nýju vegabréfin koma um miðjan apríl
Ófalsanleg vegabréf með örflögu
„Við stefnum að því að nýju
vegabréfin verði gefin út frá og
með 12. apríl," segir Elín Arnþórs-
dóttir, deildarstjóri vegabréfaút-
gáfu hjá Útlendingastofnun, um
ný vegabréf með örflögu.
Nýju vegabréfin eru útlitslega í
litlu frábrugðin þeim gömlu en
tæknilega séð verða þau mun full-
komnari.
„Það á ekki að vera hægt að
falsa nýju vegabréfin því í þeim er
þykk plastsíða þar sem er að finna
litla örflögu sem geymir allar upp-
lýsingarnar sem eru á síðunum.
Tölva les það sem örflagan geymir
og það verður að stemma við það
sem stendur í vegabréfinu," segir
Elín.
Sá misskilningur hefur ríkt
meðai almennings að eftir að nýju
bréfin verða gefin út, falli þau
gömlu úr gildi. Elín segir að svo sé
alls ekki, þau gömlu gildi áfram og
menn þurfi ekki að fá sér ný fyrr en
þau gömlu renna út.
„Ekki þarf heldur sérstaka árit-
un til Bandaríkjanna eftir að þau
nýju taka gildi. Gömlu vegabréfin
eru með segulrönd sem er tölvu-
lesanleg en misskilnings hefur
gætt meðal almennings að gömlu
bréfin séu ekki tölvulesanleg. Þau
eru það en nýju bréfin verða bara
fullkomnari með tillitli til þess að
ekki verður hægt að falsa þau,"
segir Elín.
Nýju vegabréfin munu aðeins
gilda í fimm ár í stað tíu. Elín segir
það vera vegna þess að örflögurnar
dugi ekki lengur.
Til hefur staðið að inn í vega-
bréfin verði sett fingraför manna.
Þá verður hægt að bera saman
fmgraför í vegabréfinu og þess sem
á því heldur. Elín segir ekki hafa
verið ákveðið enn hvenær af þess-
ari breytingu verði sem ætti að
tryggja að enginn komist í gegn um
tollskoðun nema réttur handhafi
vegabréfsins.
Gömlu bréfin í fullu gildi
Nýju bréfin verða tæknilega
fullkomnari en þau gömlu
gilda áfram hvert á land sem
er, líka til BNA.