Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2006, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006
Fréttir DV
Tinni Sveinsson
• Þrátt fyrir að ósk-
arsverðlaunin hafi
ekki hoppað í faðm
Rúnars Rúnarssonar
á sunnudaginn fékk
annar íslenskur
kvikmyndagerðar-
maður verðlaun fyr-
ir mynd sína sama kvöld. Dagur
Kári bætti enn einni
rós í hnappagatið
þegar Bodil-verðlaun-
in voru veitt í Imperi-
al-kvikmyndahúsinu í
Kaupmannahöfn. Þar
fékk Voksne menn-
esker tvenn verðlaun, fyrir leik
Nicholtis Bro í aukahlutverki og fyr-
ir kvikmyndatöku Manuels Claro.
Þessa dagana er myndin annars í
aðalhlutverki á íslenskri kvik-
myndahátíð í Tókýó, þar sem
fimmtán myndir verða til sýnis
næstu vikurnar...
• Áhorfendur og gagnrýnendur
sem séð hafa Pétur Gaut í nýja
Kassa Þjóðleikhússins eiga það allir
Bsameiginlegt að
halda ekki vatni yfir
sýningunni. Sjaldan
sjást svo jákvæðir
dómar. Baltasar Kor-
mákur kann að velja
sér samstarfsfólk og
þykir allt frá leik-
mynd Gijetars Reynissonar til leiks
Bjöms Hlyns og
meðleikara lofsverð.
Orðið spyrst hratt út
og hefur miðasölu-
deild Þjóðleikhúss-
ins vart undan að
selja miða í nýja
Kassann. Fer brátt
hver að verða síðastur...
• Ekki er enn komið á hreint hvaða
Hollywood-stjörnur koma hingað
til lands í tökur á stórmyndinni
Stardust. Þessa dagana er leikstjór-
inn Matthew Vaughn úti í London
að fara yfir það með
samstarfsmönnum
sínum hvaða senur
er best að taka upp
hérlendis og hvern-
ig. Claire Danes og
Charlie Cox, sem
sést nú í bíó í Casa-
nova, em þó nokkuð ömgg í föru-
neytinu. Þau leika
aðalpersónur mynd-
arinnar, fallna
stjörnu og unga
manninn sem leitar
hennar. Nú bíða
margir spenntir eftir
því að sjá hvort hér
verði einnig teknar upp senur með
vondu norninni og skipstjóranum,
Michelle Pfeiffer og Robert
DeNiro...
• Þessa dagana er nýtt íslenskt út-
gáfufyrirtæki að myndast á vefsíð-
unni cod.is. Cod Music heitir það
og er í eigu nýsköpunarfyrirtækisins
D3. Frosti Logason er verkefnastjóri
útgáfunnar. Á
heimasíðunni em
tónlistarmenn
beðnir um að senda
sýnishorn. Nú þegar
hefur nokkmm ver-
ið plantað í hljóð-
ver. Ætlunin er að
ná að skapa eftir-
spurn eftir þeim á
netinu áður en eiginleg plata er
gefin út. Þetta tókst hjá Bretunum í
Arctic Monkeys, sem slógu gömul
Bítlamet þegar þeir gáfu út sína
fyrstu plötu á dögunum...
Jónína Benediktsdóttir hefur undir höndum 16 IP-tölur þeirra sem hafa farið mik-
inn í umfjöllun um menn og málefni á netinu. Níðingar sem Jónína kallar svo.
Víst er að nú fer um margan þann sem hefur látið hvað sem er vaða í skjóli dul-
nefnis. Nú kann að fara svo að dulnefnið reynist skammgóður vermir og bendir
ýmislegt til að Stefán Helgi, eigandi Málefnanna, hafi látið IP-tölurnar af hendi.
Nafnlausir Netverjar IP-
tölur 16 þeirra sem skrifa um
mann og annan á Málefnun■
um eru i höndum Jónínu.
Jðnína Benediktsdóttir er með IP-tölur 16 netverja sem hafa far-
ið mikinn undir dulnefni á spjallvefnum malefnin.com. í hádeg-
isviðtali NFS sagði Jónína þetta nafrilaus dusilmenni sem hefðu
veist að sér með óhróðri slíkum að helst mætti líkja við nauðgun.
DV hefur undir höndum not-
endanöfnin og hjá hvaða veffyrir-
tæki þau eru skráð. Einstaklingarnir
sem eiga eftirfarandi dulnefni mega
búast við
Jónína finni
burð:
Sparri hjá Símneti, Borgarfjarð-
armóri hjá alvaran.com, Hugsuður
hjá Símneti, Callahan' hjá Hafró.is,
Dagfinnur hjá Og Vodafone, íslend-
ingur hjá Og Vodafone, Auður hjá
Og Vodafone, Hawkl2 hjá GT Intell-
egent Network Servise, Franz Kafka
hjá Sími.is, Spitfire hjá Simnet.is,
rimrytS hjá hive.is, Container hjá
Schopang.Samskip.is, Hawk hjá
Verison.net, Hvalur hjá Simnet.is,
Assmodeus hjá XDSL.is og Hanzi
Thor.primus.ca.is.
Svikari í innsta hring?
Netheimar nötra vegna aðgerða
Jónínu. Sérfræðingar DV í tölvumál-
um segja enga leið aðra fyrir hana að
hafa komist yfir IP-tölurnar en þá að
Stefán Helgi Kristinsson, organisti á
Fárskrúðsfirði og eigandi Málefn-
anna, hafi afhent Jónínu þær. Lík-
legt má telja að það stangist á við
fjarskiptalög. En víst er að komi það
á daginn að Stefán Helgi hafi selt
Jónínu þessar upplýsingar gegn
griðum hefur hann sagt sig úr lög-
um við netverja. Ekki tókst að ná
í Stefán í gær vegna málsins.
Hróbjartur Jónatansson er
lögmaður Jónínu. Hann sagðist
ekki geta tjáð sig um það hvar
Jónína hefði fengið IP-tölurn-
ar. Það væri hennar mál. En
hann getur ekki séð neitt ólög-
mætt við afhendingu IP-talna
líkt og gert er úti í Bandaríkjun-
um. „Menn eru ekki í þessu til að
halda skjóh yfir einhverjum
net-níðingum. Ef menn mis
nota þá eru slíkar upplýs-
ingar gefnar út ytra.“
Magga refur svæld út
Hróbjartur hefur allar
klær úti sjálfur í leit að þeim
einstaklingi sem stendur að
síðunni þar sem einka- «
póstar Jónínu voru birtir.
Hróbjartur segir það ganga
merkilega vel að komast á slóð
þess einstaklings sem kallar sig
Magga Refur og á síðuna http://-
refur.blogsource.com/. Hann leit-
aði til netfyrirtækjanna sem reka
Blogsource og VillagePhotos sem
hefðu greiðlega afhent honum
IP-tölu viðkomandi.
„Á þessum síðum eru skil-
málar sem menn hér sem
halda úti slíkum síðum
mættu taka sér til fyrir-
myndar. Ef þessir skil
málar eru brotnir
dæmis með að birta einkamál,
dreifa rógi og slíkt megi
afhenda IP-töluna.
Kom mér þægilega
á óvart hversu
fljótt þeir brugð-
ust við og buðu
reyndar fram
allar þær upp-
lýsingar sem ég
vildi," segir
Hróbjartur.
jakob@dv.is
Stefán Helgi Ýmislegt
bendir til þess að hann hafi
afhent Jónínu IP-tölur en
ekki virðast aðrar leiðir. Ekki
náðist í Stefán í gær.
Hróbjartur Jónatansson Er
kominn með IP-tölu Möggu
Refs sem hélt úti sfðu þar sem
Jónínupóstar voru birtir.
Björn Bjarnason segir Evrópusambandið ekki geta fyllt skarð Bandaríkjamanna
ESB-aðild snýst ekki um varnarmál
„Evrópusambandið ræður ekki
yfir neinum herafla og getur ekki
fyllt skarð, sem myndaðist, ef
Bandaríkin og ísland hættu varn-
ársamstarfinu sínu. Aðild að Evr-
ópusambandinu snýst ekki um
varnarmál," segir Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra.
í frétt í DV í gær voru orð
Björns, sem hann lét falla á fundi í
Iðnskólanum í Reykjavík, rang-
túlkuð. Sagt var að hann væri því
ekki mótfallinn að ísland sækti um
aðild að ESB ef Bandaríkjamenn
hættu að ábyrgjast varnir landsins.
„Evrópusambandið ræður ekki
yfir neinum herafla og getur ekki
fyllt skarð, sem myndaðist, ef
Bandaríkin og ísland hættu varn-
arsamstarfinu sínu. Aðild að Evr-
ópusambandinu snýst ekki um
varnarmál. Atlantshafsbandalagið
(NATO) er enn sem fyrr þau al-
þjóðasamtök, þar sem hugað er að
öryggismálum á Norður-Atlants-
hafi. í því tilliti skiptir NATO okkur
meira máli en ESB,“ segir Björn.
Ráðherrann segir að tryggja
þurfi varnir á láði, legi og í lofti á
fslandi eins og annars staðar. Með
endurnýjun á tækjakosti til eftir-
lits með hafsvæðum umhverfis
landið sé verið að efla öryggi á
því sviði. Efling löggæslu og ný-
skipan hennar stuðli að auknu
öryggi á landi. Loftvarnir séu
best tryggðar með bandarísk-
um orrustuvélum hér á landi.