Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2006, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006
Sport DV
Eitt stærsta vanclamál í knattspyrnunni í dag er leikara
skapur. Sumir vilja þó ekki ganga svo langt og segja
leikaraskap hluta af leiknum. Þeir verða. þó æ faerri sen
halda því fram og raddir þeirra sem harí
ari refsingum fyrir leikaraskap verða háværari. Eitt
stærsta dagblað Bretlands, The Times, hefur hrint af
stað herferð gegn leikaraskap í knattspyrnu eða dýfing-
um eins og þær eru oft nefndar.
Cristiano Ronaldo Portúgalskím/ði
| arlelkmaöurlnn myndieflaust plumn ■
vel á fjölum leikhússlns. Dæmi um slik,
tnkta má finna I bikaruislltaleik
Manchester Umted og Newcastle i fyrr
El Hadji Diouf
Fiskaði eftirmlnni-
lega yltaspyrnu
gttgn fílackburn í
fyrra þegar hann
tét sig falla i telgn
um nánasl fyrir
varalaust.
Arjen Robben
fíobben lét sig
falla I leik Chel
sea og Liverpool
fyrríveturer
Jose Reina strauk
honum„blítt um
vanga". Hann
fékk rauöa
spjaldið fyrir.
Rivaldo Otiúleg
uppákoma á HM
2002. Hakan Unsal,
leikmaður Tyrklands,
sparkaöi boltanum i
fátlegg fíivaldo en sá
brasillski féll með til-
þrifum oghélt„sár-
þjáður" um andlitið.
Umræðan um dýfmgar eða al-
mennan leikaraskap á knattspymu-
vellinum tekur sennilega seint enda.
En hún er misáberandi í umræð-
unni og kemst hún yfirleitt á flug
þegar hreinn og klár leikaraskapur á
sér stað í keppni bestu liða heims.
Slflct var upp á teningnum til að
mynda þegar Liverpool og Chelsea
mættust í ensku úrvalsdeildinni fyrr
á árinu og Arjen Robben lét sig eftir-
minnilega detta eftir að Jose Reina,
markvörður Liverpool, strauk hon-
um um vanga.
Orðaleikur Mourinho
Reina fékk að lfta rauða spjaldið
fyrir og stóð það þrátt fyrir aö
myndbandsupptökur og ljós-
myndir sýndu svo ekki væri um
villst að Robben hefði látið sig
detta. Ákvörðun dómarans í leikn-
um stendur og varð f þessu tilviki
ekki haggað.
Enn nærtækara dæmi er þegar
að Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, viðhafði þessi orð á
blaðamannafundi. „Hvernig segir
maður leikari á katalónsku." Mour-
inho vildi þá meina að Lionel
Messi, hinn ungi leikmaður
Barcelona, hefði látið sig detta þeg-
ar Asier Del Horno keyrði inn í
hann f fyrri leik liðanna í 16-liða úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu.
Mourinho vildi ekki vekja reiði
knattspyrnusambands Evrópu og
talaði því undir rós á sinn einstaka
máta. En engum duldist hvað hann
átti við og finnst mörgum nóg.
Eins og skotinn
Jeff Winter, fyrrum dómari í
ensku úrvalsdeildinni, sagði að til-
þrif Robben gegn Liverpool hafi
verið „110 sinnum verri" en það
sem átti sér stað í tilviki Messi.
„Þetta er alveg ótrúlegt," sagði
Winter. „Aðeins þremur vikum
áður lét Robben eins og hann hafi
verið skotinn í andlitið þegar Jose
Reina snerti hann og nú vill hann
saka leikmann úr liði andstæðings-
ins um leikaraskap."
Mourinho hefur löngum þótt
lævís en mönnum er nóg boðið
þegar hann vænir aðra um leikara-
skap í þeim tilgangi að réttlæta tap
liðsins síns. I augum margra er það
engu betra en þegar leikmenn sýna
dýfingalistir sínar á vellinum.
Sigri fagnað
Áhugamenn um knattspyrnu
eru búnir að fá sig fullsadda af
þessari s'kuggahlið knattspyrnunn-
ar og nú fyrr á árinu hóf enska stór-
blaðið The Times herferð gegn dýf-
ingum á knattspyrnuvellinum. Og
blaðamenn Times hcifa fagnað
sigri. Brian Barwick, formaður
enska knattspyrnusambandsins,
ritaði ekki fyrir löngu bréf þar sem
hann óskar eftir stuðningi samtaka
knattspyrnumanna í Englandi í
átaki sambandsins sem á að draga
úr þessari iðju.
Hvort það er nóg til að fá menn
til að standast freistinguna að næla
í vítaspyrnu eða fiska rautt spjald á
andstæðinginn í hita leiksins verð-
ur tíminn að leiða í ljós. En eins og
sést á þessum meðfylgjandi mynd-
um hafa margir af fremstu knatt-
spyrnumönnum heims gert sig
seka um ótrúlegan leikaraskap og
skiptir þá engu þó það sé vitað mál
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
að ótal sjónvarpsvélar myndi allt
sem gerist frá mörgum sjónarhom-
eirikurst@dv.is
Roberto Rojas Fáirhafa lagstjafn
lágt og Roberto fíojas, markvörður
Chile, ileik Brasilíu og Chile iund-
ankeppni HM árið 1989. Hann henti
sér á litinn flugeld sem var á vellin-
um, dró út rakvélablað og skar í
hausinn á sér, til að fá leiknum aflýst.