Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUOAGUR 25. APRÍL 2006 11
SiSSWWWwww
NNWWWW
m\WWWW\w
Eggert Skúlason Talsmaður
Magnúsar Þorsteinssonar
ferðast helst umá reiðhjóli.
Magnús Þorsteinsson Ferfyrir
hópi íslenskra auðmanna sem íhuga
flugvélakaup til eigin þarfa.
Björgólfur Guðmundsson Lítur
einkaþotuna íflugskýli I hýru auga.
Eðvald segir Dani og innflytjend-
ur hafa rifist heiftarlega fyrir utan
skemmtistaðinn eftir þetta en lögregl-
an hefur gefið út að árásarmaðurinn
sé innfiytjandi.
Bjöm Thomsen, faðir Tue, segir
í viðtali við B.T. í Danmörku að hann
sé vel þjálfaður í að missa ástvini og
syrgja þá. Stóri bróðir Tue lést á Lanz-
arote árið 1997 í köfúnarslysi þegar
hraðbátur keyrði á hann.
Tue hafði komið til íslands fyr-
ir um tveimur árum að hitta skyld-
menni sín hér á landi. Hann átti von
á bami í september og var, rétt fyrir
dauða sinn, að skipuleggja box bar-
daga með gömlum hnefaleikakemp-
um í Danmörku.
atli@dv.is
Omega í kristlegri útrás um gervihnetti
Endurvarpar Billy Graham til Evrópu
Sjónvarpsstöðin Omega ánú sam-
starf við nokkra sjónvarpspredikara
vestan hafs um afnot af gervihnatta-
rásum stöðvar-
innar til Evrópu.
Þeirra þekktast-
ur er Billy Gra-
ham en Omega
endurvarpar efni
frá sjónvarpsstöð
hans um rásir sín-
ar. „Þetta er sam-
vinnuverkefni milli
okkar þar sem
Ivið send-
Eiríkur Sveinbjörnsson Erf
útrás með fagnaðarerindið.
um fagn-
aðarer-
indi þeirra um þær gervihnattarásir
sem við höfum aðgang að,“ segir Ei-
ríkur Sveinbjörnsson, sjónvarps-
stjóri Omega.
Fram kemur í máli Eiríks að
gervihnattasendingar séu oft eina
leiðin til að koma kristilegum boð-
skap á framfæri í þeim löndum sem
vilja loka fyrir slíkt. „Við flytjum heill-
andi og fallegan boðskap til þeirra
þjóða sem þurfa á slíkri upplyftingu
að halda," segir Eiríkur.
Aðspurður segist hann sjálfur
ekki hafa rætt við Billy Graham held-
ur aðstoðarfólk hans er samvinnu
milli þeirra var komið á. Billy Gra-
ham sé orðinn 84 ára gamall og nú til
dags komi hann
ekki fram á stöð
sinni nema einu
sinni til tvisv-
ar á ári. „Það er
óhætt að segja að
Billy Graham hef-
ur skilað sínu
lífsstarfi og gott
betur," segir Ei-
ríkur.
*
Q
GO
Q
<
CúC
LL.
Munið að skila kauptilboðum fyrir kl. 16.15
fimmtudaginn 4. maí nk.
V_______________________________________
Úlfarsárdalur - nýlthverfi í mótun
Nánari upplýsingar í síma 411 8000 og á www.reykjavik.is/fs
ÚLFARSÁRDALUR
Lóðir fyrir 10 einbýlishús - útboð á byggingarrétti
Úlfarsárdalur er nýtt íbúðahverfi sunnan undir Úlfarsfelli í Reykjavík. Skipulag þess gerir ráð fyrir þéttri
byggð, þar sem blandast saman íbúðabyggð og atvinnustarfsemi, sem þrífst í nánd við íbúðahverfi,
og gefur möguleika á vistvænni byggð sem nýtir til fuilnustu náttúrulega kosti svæðisins.
Fyrsti hluti fyrirhugaðs hverfis hefur verið deiliskipulagður og verður í honum byggð með liðlega 900
íbúðum auk möguleika á nokkru atvinnuhúsnæði. Ennfremur verða þar grunnskóli, leikskóli og önnur
þjónusta, en megin verslunarmiðstöð hverfisins alls verður við Leirtjörn. Byggðin er umlukin vinsælum
útivistarsvæðum. í suðri er Úlfarsá og handan hennar Grafarholtshverfið, í austri teygir Úlfarsárdalur
sig í átt að Hafravatni, í vestri er útsýni til sjávar og í norðri er Úlfarsfell. Gert er ráð fyrir að lóðir í fyrsta
áfanga verði byggingarhæfar í nóvember 2006.
Reykjavíkurborg auglýsir eftir kauptilboðum í byggingarrétt
fyrir 10 einbýlishús við Gefjunarbrunn og Iðunnarbrunn.
Útboðsskilmálar, tilboðseyðublöð, deiliskipulagsskilmálar og almennir lóðaskilmálar verða afhent í
þjónustuveri Framkvæmdasviðs í Skúlatúni 2. Þessi gögn fást endurgjaldslaust á geisladiskum eða
útprentuð gegn 2.500 króna gjaldi. Þau er einnig að finna á vefsvæði Framkvæmdasviðs,
www.reykjavik.is/fs, undir málaflokknum lóðir. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 411 8000.
Brýnt er fyrir bjóðendum að kynna sér vel alla þessa skilmála.
Einstaklingar (ekki lögaðilar) geta gert kauptilboð í framangreindan byggingarrétt. Tilboðum skal skila
í lokuðum umslögum, merktum „Úlfarsárdalur - kauptilboð", til Frámkvæmdasviðs fyrir kl. 16.15
fimmtudaginn 4. maí nk. Tilboðum verður veitt móttaka í þjónustuveri Framkvæmdasviðs gegn greiðslu
tilboðstryggingar, 250.000 kr. vegna hvers bjóðanda. Tilboðin verða opnuð 4. maí kl. 17:00 í Skúlatúni 2,
5. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.