Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Blaðsíða 25
DV Sviðsljós ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2006 25 Margir af helstu fræðingum internetsins koma til landsins til að halda fyrlestur á fyrstu ráðstenu Samtaka Vefiðnaðarins mmsm rrjálsíþróttahöllin Fyllistaf forriturum, verkefnastjórum og öðrum vefurum um helgina. Hugi Þórðarson Færtilsln þekktustu fyrirlesara vef- bransans um helgina og segir aðra biða írööum. f inn. Ekki bara at I vinnufólk. .ita.v wm^\Urfamr ’YUí'Í-MÆF fim „Þetta er fyrsta stóra verkefn- ið sem samtökin ráðast í," segir Hugi Þórðarson, for- maður Samtaka Vefiðnaðarins, eða SVEF. Á fimmtudaginn verður sett ráðstefnan Ice Web 2006. Á hana ætlar lungi vefhönnuða og forritara landsins að mæta enda verða fyrir- lestrar í höndum heimsþekktra hönnuða, sem koma hingað til lands á ráðstefnuna. „Samtökin voru stofnuð í desem- ber í fyrra. Þá voru meðlimir í kring- um 40 en núna eru þeir vel yfir hundrað," segir Hugi. Hlestu fræðing- ar netsins „Átta af færustu fyrirlesurum í bransanum koma hingað til lands. Þetta er allt fólk sem hefur skrifað þekktar bæk- ur og haldið ótal fyrirlestra," segir Hugi og nefnir þar helst Eric Meyer. Hann segir samtökin einnig hafa fengið bréf frá fjölda annarra fyrir- JHim—r lesara, HSSSjj WUl | sem vilja ^lKlíhrlsíífc-f-í ólmir fá að koma hingað til lands. „Ráðstefnan er bæði fyrir forrit- ara og verkefnastjóra," segir Hugi en tekur þó fram að ráðstefnan og sam- tökin séu fyrir allt áhugafólk um vef- 45 þúsund krónur inn Valgerður Sverris- dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mun setja ráðstefnuna á fimmtudagsmorgun klukkan níu en ráðstefnan er í tvo daga og fer fram í nýju Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Hægt er að nálgast miða í gegnum svef.is og það kostar 40 þús- und krónur fyrir meðlimi en annars 45 þúsund. „Það hafa á bilinu 150 til 200 manns þegar skráð sig á ráðstefn- una," segir Hugi og tekur fram að einnig sé hægt að skrá í samtökin á síðunni. asgeir@dv. Ungur maður hefur kært Snoop Dogg og fleiri rappara eftir að lífverðir þeirra gengu í skrokk á honum á tónleikum á síðasta ári Bandarísku vesturstrandarrapp- aramir Snoop Dogg, The Game, Kur- upt, Soopafly og Daz Dillinger hafa allir verið nefndir í skaðabótamáli sem er höfðað af hinum 25 ára gamla Richard Monroe II. Ákæran kemur í kjölfarið á því að hópur manna, þar á meðal lífverðir Snoop og Soopafly, börðu Richards til óbóta á tónleikum í maí á síðasta ári. Richard fór upp á svið, reyndi að faðma einn rapparanna og uppskar eins og áður sagði. Hann segir þó að ekkert sem hann gerði eða sagði hafi bent til ofbeldisfullrar hegðunar og geti afsakað þær andlegu og líkam- legu meiðingar sem hann hlaut að launum. Richard fer fram á 22 millj- ónir dala í skaðabætur, eða um 1700 milljónir króna. Talsmaður Snoop Dogg segir að € Richard hafi komist upp á svið og hlaupið rakleiðis í áttina að Snoop. Talsmaðurinn segir / miklar varúðarráðstafanir _J~~ '' hafa verið í gangi, einkum Jar x vegna þess að stuttu áður tj . hafi gítarhetjan Darrell iSr » fm „Dimebag" Abbott verið skotinn til bana á tónleik- m /f'i um. A y; Það má þakka góðri gæslu og lukku að enginn Islendingur í ölæði hljóp upp á svið í Egilshöllinni, Jm því að þeir sern sáu lífverði Snoop tóku einnig eftir því að þeir hefðu getað rifið mann í tvennt með berum höndum. Snoop Dogg Þad ereins gottað enginn fór upg á svið ÍEgilshöllinni. í Leifstöð Öruggur ífylgd lögreglunnarog lif- varðasmna þegar hann kom til landsins í fyrra t«f gjif frá fyrrverandi kærustu Brett Ratner, leikstjóri Rush Hour- myndanna, er sagður vera að hitta litlu Lindsay Lohan þrátt fyrir dá- góðan aldursmun. Um daginn gaf hann henni 900 dollara Hermes- veski, sem var gjöf til hans frá leikkonunni Zetu Graff. Brett hafði greinilega ekki opnað veskið því inni i því var mynd af Zetu i bikini og aftan á myndinni stóð: „Þegar ég er ekki nálægt til að halda þér heitum." Lindsay var að sjálfsögðu brugðið en ekki er vitað hvað hún gerði í mál- inu. Það er ekki gaman að deita nisk- an gaur. Oprah vor- kennir Juliu Stjörnurnar í Hollywood mættu allar á frumsýningu Juliu Roberts á Broad- way fyrir stuttu þar sem hún leikur í verkinu Three Days of Rain. Ekki fékk Julia greyið góða dóma fyrir hlutverk sitt og var henni líkt við talandi Ijósa- staur. Oprah Winfrey, ein af bestu vinkonum hennar, hringdi í Juliu og mætti heim til hennar og hughreysti eftir að gagnrýnin var birt í helstu blöðum. Kunnugir segja að heim- sóknin hafi verið vorkunnarheim- sókn og ekkert annað. Rappari með fjármáiaráðgjöf Rappstjaman LL Cool J hélt fyrirlest- ur um helgina á hiphop-ráðstefnu, sem var haldin af milljónamæringn- um og athafnamanninum Russell Simmons. Þar hvatti Cool J aðdáend- ur sína til að fara variega með pen- inga og sagði meðal annars: „Stærsta blekkingin kemur kannski úr hiphop-heiminum sjálfum um að peningar vari að eilifu." Á ráðstefn- unni var ráðgjöf stjarna og fjármála- ráðgjafa fyrir heimilin og einstak- linga blandað saman. i ___ ^^«^3 n- Látift okkur vera Brad Pitt og Angelina Jolie, verðandi foreldrar, hafa komið sér vel fyrir í Namibíu og hafa beðið fjölmiðla um að vinsamlegast að láta sig i friði. Þau hafa gengið svo langt að biðja stjórnvöld þar i landi að ganga í mál- ið - sem þeir gerðu - og hefur þrem- ur Ijósmyndurum frá The Sunday Times verið vísað úr landi hingað til.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.