Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Page 18
7 8 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2006
Lífsstíll DV
9HHr W Jœ m m v-.V. j£$gr&
Hógværð reynist
honum vel
Garðar Bergmann Gunnlaugsson, fyrirsæta og fótbolta-
maður, er 23 ára í dag 25. apríl
„Maðurinn tekur sinn tíma við að starfa í þágu fólks af
sanngirni og auðmýkt. Hógværð hans reynist honum vel
þegar fram í sækir og er án efa heillandi eiginleiki í fari
mannsins. Innra auga hans sér og skilur að náunginn
skiptir ekki ávallt mestu máli þegar stærra samhengi er
ggm skoðað. Hér kemur fram að hann bæði vill og óttast
1 náin kynni og óttast þau án efa vegna hættunnar á
H að afhjúpa sig en það breytist þegar hann eldist og
þroskast."
dSl Mnsberm (20. jan.-U.febr.)
■ pp ----------------------------------
Breytingar eiga við stjörnu
þína. Þá jafnvel breytingar sem eiga sér
stað innra með þér frekar en í umhverfi
þínu. Þú ættir ekki að skelfast þessar
breytingar sem leiða til þess að þú
þroskast til þess skilnings sem þú leitar.
Þú virðist hafa lagt þig fram við að
greiða úr flækju sem einkenndi tilveru
þína á einhvern máta.
Fiskarnir m febr-20. man)
(dag er komið inn á gleðina
sem hljómar allt í kringum þig og innra
með þér og sannleikann. Ef þú ert
fædd/ur undir stjörnu fiska veist þú að
sannleikurinn á sér mörg stig.
Hrúxumn (21.mars-19.aprll)
Silfurlitur birtist í dag þegar
stjarna þín er skoðuð. Umtalaðar litur er
litur tungu og tjáskipta. Þú ert minnt/ur
á að hagræða ekki sannleikanum eða af-
neita honum á nokkurn máta því þegar
sannleikanum er hagrætt verður þessi
fallegi silfraði litur stálgrár.
Nautið (20. aprb-20. maí)
Þegar undirritaður hugar að
árum fólks þá birtist Ijós. Hins vegar
þegar mannvera birtist í klemmdri sál
(líður illa og á í barátttu) þá birtist Ijósið
daufara í áru þess. Af hverju það er
komið inn á þetta í spánni þinni kaéra
naut er svo þú áttir þig á því að þegar
sál birtist, þá birtist Ijós.
Tvíburamir f27. mal-21.jání)
Um þessar mundir hlustar þú
eflaust á margar raddir sem búa innra
með þér (eins og við öll gerum). Þú finn-
ur eflaust fyrir rödd þrjóskunnar hér í
byrjun vikunnar miðað við stjörnu þína
og einnlg rödd óttans, mótsagnarinnar
og jafnvel bræðinnar.
K<(Mm(22.júnl-22.júll)
Sérhver upplýst sál er máttug
kæri krabbi. Þetta veistu vel en í dag
ertu minn/ur á að fella ekki dóm yfir
sjálfinu þegar þú bregður út af því sem
þú heldur að sé fullkomnun.
Ljónið (23. júli-22. ágústj
Þú ert fær um að búa þér til
unaðsreit kæra Ijón. Þú veist þetta vel
en ég minni þig á þetta nær vikulega og
mun halda því áfram svo lengi sem sþá-
maður.is heldur velli.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
BÍi v ----------------------------------
1 Heilun er það sem rætt verð-
ur í spá þinni í dag. Heilun getur átt sér
stað samstundis og horfst er í augu við
orsök þess sem heila skal. Þegar þú
kýst að laga eitthvað eða heila skaltu
standa andspænis því sem þú vilt helst
ekki horfast í augu við á sviðum hugar
og tilfinninga (það er ef þú ætlar að
laga eitthvað í eigin fari).
\lOqm (23. sept.-23.okt.)
Ef þú ert haldin/n sektarkennd
er þér ráðlagt að hreinsa umtalaða tilfinn-
ingu úr hjarta þínu og huga sem fýrst.
©Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Hér finnur þú eflaust fyrir þörf-
inni að kenna. Þörfin fyrir að hughreysta
kemur einnig sterklega fram í dag þeg-
ar stjarna þín er tekin fyrir.
Bogmaðurinn (22.n6v.-2ua.)
Þú veist að í fjölskyldum er
ekki annað hægt en að þroskast og vaxa
og þess vegna varfjölskyldan sem stofn-
un innbyggð íjarðlífið ef svo má að orði
komast.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Það er áberandi hérna hvað
þú ert sátt/ur og ánægð/ur. Hér birtist
innra með þér sterk og ástríðuþungin
rödd sem er án efa einn mesti styrkur
þinn og þú ættir ekki að hika við að
nota hana dagana framundan.
Nú þegar sumarið er gengið í garð liggur beinast við að heyra í garðyrkjufræðing-
um hvaða blóm íslendingar kjósa og hvort það sé rétt að okkur beri að tala við
blómin okkar svo þau dafni og vaxi.
Jóhanna Hilmarsdóttir
deildarstjóri blómadeildar
Garðheima
„Það er algengast að fólk leiti um
þessar mundir eftir glaðlegum lit-
um,“ svarar Jóhanna í Garðheimum
þegar við spyrjum hana hvað ís-
lendingar kjósi af blómum og hún
heldur áfram: „Það er áberandi að
fólk er að pæla í appelsínugulum,
gulum og rauðum lituðum blómum
og blandar saman litunum. Þetta
eru sterkir, fallegir litir sem passa
vel saman."
Túlípanar á undanhaldi
„Túlípanarnir hafa verið vinsælir
en eru núna á undanhaldi. Nú er
sumarið hafið og þá er tími þeirra
búinn. Nú taka túlípanarnir Við úti f
garði hjá fólki. Annars er búið að
vera áberandi í kringum ferming-
arnar að fólk leggur áherslu á skæra
liti við val á blómum og mikið af
þeim. Þá eru það skærir litir og mik-
ið af þeim. Litum er blandað sam-
an. Þá helst lime, orange, bleikur,
og blár. Það má segja að aldrei hef-
ur verið eins mikil litagleði í blóm-.
um.“
Karlar að kaupa blóm handa
konunum sínum?
„Það er alltaf," svarar Jóhanna og
bætir við: „Þeir koma alltaf. Það er
sætt. Þeir virðast hafa gaman af því
að gleðja konurnar sínar með rós-
um. Fólk er farið að kaupa meira á
heimilin fyrir sjálft sig. Kaupa fal-
legar plöntur eða vendi til að gleðja
sig og aðra fjölskyldumeðlimi."
Forrækt á vorlaukum hefst
inni við
„í byrjun sumars eru begoníur,
liljur, gladíólur og alls konar vor-
laukar vinsælir sem fólk byrjar að
forrækta inni hjá sér. Þá setur það
laukana í potta inni og ræktar þá.
Síðan eru þeir settir út þegar hlýnar
í sumar," segir hún og bætir við að
garðyrkjufræðingar eru ávallt í
Garðheimum til að ráðleggja fólki
hvað það varðar.
„Um leið og þú talar
við inniblómin þín
sýnir þú þeim áhuga
og gleymir þeim ekki.
Þetta skiptir máli af
því að þá hugsar þú
um plönturnar af
gætni og alúð og
gleymir þar afleið-
andi ekki að vökva
Við biðjum Jóhönnu um góð ráð
til handa fólki sem veit lítið sem
ekkert um afskorin blóm. „Þegar
rósir eru settar í vasa er oftar en ekki
ráðlagt að setja mikið vatn því sum-
ar rósir drekka rosalega mikið. En
passa að laufin séu ekki ofan í vatn-
inu því það getur valdið sjúkdóma-
hættu. Svo ber að geta þess að nær-
ingin sem fylgir með afskornum
blómum er góð. Hún er rosalega
góð með öllum blómum. En lauk-
blómin eru ekki sérstaklega hrifin af
því (liljur, gladíólur, túlípanar).
Þetta er sérstaldega gott fyrir rósim-
ar. Sum blom eins og gerberur til
dæmis þurfa sótthreinsað vatn og
þá er gott að setja einn til tvo dropa
af klóri í vatnið. Það er líka nauð-
synlegt að fólk hreinsi vasana eftir
hverja notkun áður en ný blóm eru
þau"
sett í þá. Blóm em viðkvæm og eiga
það tU að stíflast ef vasamir em ekki
hreinsaðir."
Ráðlegt að tala við blómin?
„Já, það er alveg nauðsynlegt,"
svarar hún hlæjandi þegar spurt er
og heldur áfram: „Ég túlka þetta á
einfaldan máta: Um leið og þú talar
við inniblómin þín sýnir þú þeim
áhuga og gleymir þeim ekki. Þetta
skiptir máli af því að þá hugsar þú
um plönturnar af gæmi og alúð og
gleymir þar af leiðandi ekki að
vökva þau."
Rósir „Nauðsynlegt að fólk hreinsi
vasana eftirhverja notkun óðuren
ný blóm eru sett íþd. Blóm eru við-
kvæm og eiga það til að stíflast ef
vasarnir eru ekki hreinsaðir. “