Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Síða 2
2 FÖ5TUDAGUR 21. JÚLÍ2006
Fyrst og fremst DV
Fyrst og fremst
Viðskipti
“iviku/ok
Þannig for fyrir marglofaðri ís-
lenskri bændamenningu í höndum
Framsóknarflokksins að úr varð það
sem Svíar kalla íslandskæfu.
í henni er svo myglað kjöt að hún
breytir daglega um bragð og lit. Kæf-
unni verður ekki bjargað með sama
hætti og þegar margrétarmörnum
var skellt í Alþýðubandalagsstrokk-
inn og út honum valt fúrðusmjörs-
kakan Samfylkingin.
Allir vilja samt bjarga.
Væri haldin atkvæðasöfnun fyrir
Framsóknarflokk-
. inn á Rás 2 fengi
hann eflaust
( innhringingar
með loforð um
i JW! f fimmtí“ miUj-
& onir atkvæða en
ekkert kæmi síð-
an upp úr kjör-
kössunum.
fslensk
Bls
46
47
Islandskæfan
Friðgerður
Eyjafjarðarsól
góðgerðastarfsemi er víst þannig.
Vandinn héldi áfram að vera sá,
að þingmenn flokksins hafa of lengi
hrópað já og amen út um buxna-
klaufina á Bush.
Úr því súra búri hefur hrópað
hæst manneskjan sem veldur mest-
um flokksvanda, en ekki má hrófla
við, enda heilög og heitir hvorki
meira né minna en Friðgerður Eyja-
fjarðarsól. Hún er snillingur í því
sem hægt er að flokka og skilgreina
undir nafninu hliðstæða andstæðn-
anna í íslensku þjóðlífi. Til að mynda
rekur hún rammíslenskar rollur úr
lyngi á heiðum og reisir í staðinn raf-
orkuver.
Það sem meira er í ætt við hlið-
stæðu andstæðnanna er afrekið að
byggja verksmiðju í eigu ameríska
auðvaldsins fyrir áður náttúrubörn
og kanahatara á Austfjörðum, nú af-
byggða kommúnista sem lofsungu
blómalautir og tinda Pamírfjalla á
meðan Sovétið var og hét fyrirheitna
landið en Ameríka hæli glæpalýðs úr
Wall Street.
Nú blessa afbyggðir bolsar álver
og flokka sig eftir kerjum þess. Þeir
hafa vaknað af dvala og séð að hvorki
var heil brú í hugsjóninni né bókinni
Að breyta fjalli eftir látinn þingmann
þeirra.
Og þess vegna spyrja þeir á
morgnana: Félagi góður, við hvaða
álkersnúmer ætli Friðgerður Eyja-
fjaröarsól láti þig standa í dag? F
laginn svarar: Hún hefur fellt ni
ur númer, enda frumleg í hugsu
og fengið hverju keri eittlivert na
hinna ástkæru austfirsku fjalla. Ko
ur geta það ef þær taka sig samai
höfðinu.
Þannig sýndi Friðgerður ættjai
arást sína í gær umbúðaiaust út u
klaufina á Bush.
Guðbergur Bergsson rithöfundur
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjóri:
Páll Baldvin Baldvinsson - pbb@dv.is
Aðstoðarritstjóri:
Freyr Einarsson - freyr@dv.is
Fréttastjóri:
Óskar Flrafn Þorvaldsson - oskar@dv.is
Efnisyfirlit
Bls.4
Bls. 6 í
EiðuiBRliM«»u
á^Ölmilironir
í Fossvogsdal
tm.
Bls. 12
Bs. 18
Bls. 20
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir- anna@dv.is
Ásgeir Jónsson - asgeir@dv.is
Edda Jóhannsdóttir - edda@dv.is
Friðrik Indriðason - fridrik@dv.is
Garðar Úlfarsson - gardar@dv.is
Guðmundur Steinþórsson -
gudmundur@dv.is
Hanna Eiríksdóttir- hanna@dv.is
Indíana Ása Hreinsdóttir- indiana@dv.is
Jakob BjarnarGrétarsson -jakob@dv.is
Jón Mýrdal - myrdal@dv.is
Kormákur Hjálmarsson kormakur@dv.is
Óttar M. Norðfjörð - ottar@dv.is
Reynir Bragason - reynir@dv.is
Þórarinn Ingi Jónsson - toti@dv.is
DV Sport:
Óskar Ófeigur Jónsson
Hjörvar Hafliðason - hjorvar@dv.is
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is
Auglýsingar: auglysingar@dv.is.
Umbrot: 365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf. - dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
biaðsins [ stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds.
Þegar blessuð sólin skín
Páll Baldvin Baldvinsson
Þá er ekki þörf að kvarta, seg-
ir í kvæðinu. Nú er mestur
gúrkutími í fjölmiðlaheim-
um og blaðasnápar og fréttafólk
kreista tíðindi úr þjóðlífinu. Þar
er heldur ekki þörf á að kvarta -
stórtíðindi eru spurð á hverjum
degi vikunnar.
Þannig hafa íbúar í Grafar-
voginum stigið fram og látið í sér
heyra með eftirminnilegum hætti
um hvernig þeir vilja sjá umferð
komið fyrir um voga og strendur í
hverfinu. í Grafarvoginum mæld-
ist fylgi mest við Sjálfstæðis-
flokkinn í nýafstöðnum kosning-
um svo nú er eins gott að þeirra
menn taki mark á kjósendum sín-
um og fylgi. Tillögur Vegagerðar-
manna og embættismannaliðs
borgarinnar vilja íbúarnir ekki sjá
eða heyra. Athyglisvert er hversu
rík áhersla er í ályktun Grafar-
vogsbúa á umhverfis- og náttúru-
verndarsjónarmið þegar rök eru
talin upp fyrir göngum og nýju
flotbrúarstæði. Vitaskuld eiga
borgarstjórnarmenn og þing-
menn Reykjavíkur að sýna stór-
læti - taka málið allt upp og leita
nýrra leiða í samgöngubótum á
þessu svæði.
S8ÉBS ?
s -
> :*■
Þá er ekki hægt annað en sam-
fagna eldri borgurum og ríkis-
stjórn aö nú skuli hafa náðst sam-
komulag um málsbætur til handa
öldruðum. Gjalda ber varhug við
prósentutölum í hækkunum, en
hvert skref sem stigið er til góðs
í þessum mikilvæga og flókna
málaflokki er fagnaðarefni.
Hagstofustjóri gekk fram fyrir
skjöldu og lagði fram greinargerð
um matarverð á landinu. Framtak
hans er lofsvert og bregður skýru
ljósi á hversu einörð framganga
embættismanna fellur vel í kram-
ið hjá umbjóðendum þeirra mæli
þeir fyrir almannaheill. Þá er aft-
ur spurning hverjar framkvæmdir
pólitískra fulltrúa verða. Það sem
af er vikunni verður ekki sagt að
viðbrögð þeirra hafi verið sam-
hljóma eindregnum vilja lands-
manna sem nú á tímum mæla
hagi sína á mælistikum annarra
þjóða í áffunni.
Síðast en ekki síst í framfara-
málum undangenginna daga eru
tillögur til endurbóta á framhalds-
skólanum sem komu fram í blóra
við áætlanir ráðherra mennta-
mála, þó sú mæta frú hafi skynjað
þessi pólitísku skil og fagnað til-
fögunum.
Þannig getur sá tími ársins
sem menn vænta fæstra hræringa
í samfélaginu orðið tíðindamik-
ill og fært okkur vissu um gróandi
þjóðlíf.
Hvað er enda hægt þeg-
ar bjart er yfir landinu og hitinn
vermir skjólsæla staði? Tíðin gef-
ur mannlífinu bjartari svip, fas-
ið breytist og lundin verður ör og
hugurinn fyllist von og styrk.
imiMfái xssssms-*
Færeyingar Danir Englendingar Bandaríkjamenn frakar
Vilja sjálfir stækka við sig og Brennt barn forðast eldinn. Spældir eftir þorskastríðin. Það er bara einn kóngur og Fúlir út afdrápum okkar á
eignast Island. hann heitirekki Bubbi. Iröskum almenningi.