Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 21. JÚLl2006 Fréttir DV Jakob Bjarnar Grétarsson • Slúðurfréttamiðill- inn Orðið á götunni segir Landsbankann salla inn á launaskrá ungu frjálshyggju- fólki af vefmiðlinum Deiglunni. Fara þar fyrir flokki Þórlindur Kjartansson og Borgar Þór Einars- son. Ónefndur er einn sem starfar af miklum krafti í markaðsdeild bank- ans. Sá hefur að vísu ekki fengist við pólitísk skrif né talist sérstak- ur taglhnýtingur Sjálfstæðisflokks- ins: Jóhannes Ásbjörnsson betur þekktur sem Jói í Idol... • Sigurjón Magnús Egilsson hefiir lyft Grettistaki og gert blaðið Blaðið frísk- legra. Hins vegar hef- ur SME ekki komist til þess enn að taka til í því sem má heita sjálfsagt á betri bæjum: Aðgrein- ing auglýsinga og efnis. Enn veð- ur öflugur auglýsingastjóri yfir allt sem sæmilegt telst í þeim efnum. í vikunni var Blaðið með sérkálf um veiði og er þar ljómandi fín úttekt á veiðistöðum fyrir austan. Hængur- inn er sá að um copy/paste blaða- mennsku er að ræða - textinn tek- inn beint af Veiðikortinu... • Og áfram um að- greiningu efnis og auglýsinga og starfs- menn Blaðsins. Fréttablaðið grein- ir frá því að Kol- brún Bergþórsdótt- ir blaðamaður hafi unnið pítumáltíð í auglýsingaleik Rásar tvö, fyrir sig og samstarfs- menn. Jafnframt segir að hún hafi verið fengin tif þess af Eddu að rita seinna bindi ævisögu Jóns Bald- vins Hannibalssonar. Virðist sem búið sé að grafa stríðsaxir. Brynd- ísi Schram, eiginkonu Jóns, þótti á sínum tíma sérkennilegt að Kolbrún og Jón deildu með sér ritfaunum - Bryndísi þótti sýnt að Kolbrún hefði verið í hlutverki einkaritara fremur en ævisagnaritara. Hafði hún á orði að frekar skrifaði hún framhaldið sjálf en að láta Kolbrúnu í það verk. Hvort samningar hafi verið endur- skoðaðir fylgir ekki sögunni... • Starfsmenn NFS brugðu sér í Heið- mörk á miðviku- dag í kvöldgrill með börn sín. Skemmtu menn sér við blak og þegar leikar stóðu sem hæst æpti hinn föngulegi spjallþáttagerðarmaður Friðrika Geirsdóttir upp yfir sig. Hún saknaði nýfengins demants- hrings af baugfingri sínum. Voru góð ráð dýr, leiksvæðið rýmt og valinlcunnir fréttahaukar lögðust á fjóra í leit að fingurgullinu. Ekkert fannst í gulum sandinum og voru fréttahaukar teknir að Jrringja eftir málmleitartækjum þegar ein dóttir Láru Ómarsdóttur vatt sér að leit- armönnum og lcvaðst myndu finna hringinn, svipaðist í sjónhendingu yfir svæðið og sjá - fann gullið um- svifalaust... • Sá vinstri græni at- hafnamaður Grím- ur Atlason er orðinn bæjarstjóri í Bolunga- vík. Þar með er Helga Vala Skúladóttir orðin bæjarstjórafrú fyrir vestan og óhætt að spá verulegum uppgangi í menn- ingarlífi þar á næstunni... Hjónin Eiður Smári Guðjohnsen og Ragnhildur Sveinsdóttir hafa keypt einbýlishús í Fossvoginum. Fyrir áttu þau íbúö í Kópavogi og fyrirheit um stóra einbýlishúsalóð þar í bæ. Kaupverðið á villunni í Fossvoginum er 80 milljónir króna. Eiður Smári í 80 milljóna villu í Fossvogsdalnum Haðaland 20 Einbýlishús Eiös J Smára er byggt 1972 og er 207 H fermetrar auk 27 fermetra | bílskúrs. DV-Mynd: Stefán. Ragnhildur og eldri drengirnir Eiginkona Eiðs Smára og eldri synirnir. Eins og sjá má styðja drengirnir HK i Kópavogi. DV- Mynd: Ingólfur Arnarsson. Hamingjusöm fjölskylda Arnór Guðjohnsen á góðri stund með synmum Eiði Smára og tengdadótturinni Ragnhildi ásamtelsta syni þeirra Sveini Aroni og Daniel Tristan, sem eryngsti sonur hjónanna og jafnframt nýjasti Guðjohnsen- inn, aðeins rúmlega fjögurra og hálfs mánaðar gamall. DV-Mynd: GVA. Þaðværimjög ánægjulegt fyrir okk- ur Víkinga efstrák- Eiður Smári Guðjohnsen hefur keypt einbýlishús í Víkingshverf- inu þar sem Arnór faðir hans var á sínum tíma uppgötvaður og keyptur til atvinnumennsku í Belgíu. „Hann Eiður Smári á heima hérna," segja krakkarnir í Haðalandi stoltir við gesti og gangandi á göngu- stígnum í Fossvogsdal og benda yfir gróskumikla rifsberjarunna að fal- legu einbýlishúsi. Ogþannigerþað. Knattspyrnuhetj- an Eiður Smári Guðjohnsen I og kona hans Ragnhildur Sveinsdóttir hafa keypt einbýl- ishúsið í Haða- landi 20. M Borguðu 80 milijónir Húsið keyptu hjónin í nóvember síðastliðnum og fengu það afhent í maí samkvæmt kaupsamningi við seljandann, Ernu Sveinbjörnsdóttur, sem í sinn hlut fékk sléttar 80 millj- ónir króna. Ef til vill há upphæð fyr- ir einbýlishús sem er ekki stærra en 207 fermetrar auk 27 fermetra bíl- skúrs en sennilega er þetta fé aðeins rúmlega dropi í hafið fyrir Eið Smára sem verið hefur á svimandi háum launum hjá enska úrvalsdeildarlið- inu Chelsea. Og varla verður Eiður Smári á lágmarkstaxta hjá stórliðinu Barcelona sem hann gerði samning viðí júní. Þór Símon Ragnarsson Formaður VikingsfagnarkomuEiðsSmárai Fossvogshverfiö og segist ekki myndu slá hendinni á móti þvl að nýta krafta | drengjanna hans á knattspyrnuvellinum. DV-Mynd: Hrönn. f hverfið hans pabba Faðir Eiðs Smára, Arnór Guðjohnsen, gerði á árum áður garðinn frægan með knattspyrnuliði Víkings áður en hann hélt til Belgíu aðeins sautján ára garnall og gerðist at- vinnumaður í íþrótt sinni. Það sama ár, árið 1978, fæddist Eiður Smári. Nú er hann sjálfur fluttur í Víkings- hverfið með konuna og synina þrjá sem allt bendir til að muni láta ræki- lega að sér kveða í fótboltanum. Víkingar vilja synina Þór Símon Ragnarsson, formaður aðalstjórnar Víkings, segist ekki hafa frétt afþví fyrr að Eiður Smári og fjöl- skylda væri flutt á áhrifasvæði Vík- ings. „En það væri mjög ánægjulegt fyrir okkur Víkinga ef strákarnir hans Eiðs Smára myndu ganga til liðs við félagið," viðurkennir formaðurinn sem verður að horfast í augu við að eldri drengirnir tveir leika með HK í Kópavogi sem verið hefur heimabær fjölskyldunnar hér á íslandi. Lóð og íbúð í Kópavogi Eðli málsins samkvæmt hafa Eið- ur Smári og Ragnhildur þurft að halda heimili bæði í London og á arnir hans Eiðs Smára myndu ganga til liðs við félagið." íslandi. Og nú flytur fjölskyldan til Barcelona. Þrátt fyrir að hafa keypt húsið í Haðalandi eiga Eiður Smári og Ragn- hildur enn íbúð sína í Álfatúni í Kópa- vogi og sömuleiðis einbýlishúsalóð- ina sem þau fengu úthlutað í fyrra í Hólmaþingi sem einnig er í Kópa- vogi. Þar í götunni fengu Arnór Guð- johnsen og seinni kona hans, Anna Borg, sömuleiðis úthlutað lóð. Enn hafa ekki verið lagðar fram teikning- ar að húsum á þessum lóðum. Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs Smára á íslandi, segist ekkert vita um húsnæðismál umbjóðanda síns. Óljóst er því hvort Eiður og Ragn- hildur hyggjast búa til lengri tíma í Fossvoginum eða flytja í Kópavog- inn þegar einbýlishús verður risið á lóð þeirra í Hólmaþingi. gar@dv.is - myrdal@dv.is Ómar Ragnarsson styður Gay Pride af heilum hug og sýnir það í verki. Býður hommum og lesbíum bílinn og sig „Ég ætla reynar ekki að fara sjálfur í drag," segir stórfrétta- maðurinn Ómar Ragnarsson með meiru. Ómar er einarður stuðnings- maður samkynhneigðra og hyggst taka þátt í Gay Pride 2006 sem er 12. ágúst. „Ég er að bjóða fram nýja bílinn rninn," segir Omar. „Stærsta og flottasta dragdrottningin fær ekki betri bíl til að vera í. Hún á eftir að skína svo fallega í þessum pínulitla bíl. Hann verður svona eins og smár fótstallur." Ómar vís- ar til Fíat-bifreiðar sem hann festi nýverið kaup á og er talinn minnsti bíll á íslandi. Og er þakið opið og Ómar telur því bílinn tilvalinn í skrúðgönguna miklu og af sínum alkunna höfðingsskap hefur hann boðið hommum og lesbíum bílinn ogsig með sem ekil. Ómar hefur farið í kvengerfi þegar hann söng Kinks-lagið Sunny Afternoon. Þá sem kona sem bauð sig fram í hjúskaparmiðlun bænda á skemmtun Sumargleðinnar árið 1966 og svo aftur 1994. Og hon- um fannst það hálfgert drag þegar hann var með Ella prestsins á svið- inu f fáránlegum Elvis-búningi - og hlær sínum fræga hlátri við upp- rifjunina. Og tekur bakföll. „Þeir mega alveg skreyta bílinn ef þeir vilja. Jafnvel setja eitthvað bleikt á hann. En annars þá er bíll- inn gulur sem mér finnst vera góð- ur millilitur á milli blás og bleiks. Dragdrottingin og bílinn yrðu svona bisexualdæmi," segir Ómar sem á annan bfl. Með einkanúm- erinu „STREIT" númer sem Ómar fékk að gjöf þegar hann varð sex- tugur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.