Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ2006
Fréttir DV
Konukvöl
kemursaman
Hljómsveitin Konu-
kvöl spilar næstkomandi
Iaugardag á Mamma Mía í
Sandgerði. Hljómsveitin var
nokkuð áberandi í tónlist-
arlífi á Suðurnesjum fyr-
ir nokkrum árum og voru
skemmtanir þeirra þekkt-
ar fyrir gleði, frumleika og
kraft. Meðlimir sveitarinn-
ar hafa verið dreifðir um
heiminn undanfarin ár að
sinna mismunandi verkefn-
um en eru nú allir stadd-
ir á sama stað á sama tíma
og verður tækifærið notað
til að bjóða upp á magn-
aða stemningu á Mamma
Mía. Konukvöl gaf út plöt-
una Mjólk er góð árið 1998
og innihélt hún meðal ann-
ars lögin Ég vil harðan jóla-
pakka og Bulldog.
Þoka hindrar
sjúkraflug
Á aðafaranótt fimmtu-
dags þurfti sjúkraflugvél
Mýflugs að lenda á Sauð-
árkróki til að ná í mikið
veikan sjúkling frá Akur-
eyri. Hann var fluttur með
sjúkrabíl frá Akureyri á flug-
völlinn á Sauðárkróki ásamt
lækni. Að sögn lögreglunn-
ar var sjúkraflugvélin stödd
í Reykjavík eftir sjúkraflug
á ísafjörð í fyrrakvöld en
komst ekki til baka til Akur-
eyrar vegna þoku.
Heifar lóðir í
Vesturhöfn
Faxaflóahafnir hafa
auglýst nokkrar lóðir til út-
hlutunar í Vesturhöfninni
í Reykjavík. Hafnarblaðið
greinir frá því að síminn á
skrifstofu Faxaflóahafna
hafi verið rauðglóandi síð-
an lóðirnar voru auglýstar.
Um er að ræða byggingar-
svæði á landfyllingu vestan
við Fiskislóð en á þessu
svæði hefur þegar verið
úthlutað nokkrum lóðum
m.a. til BYKO og Smára-
garðs en síðarnefnda fyrir-
tækið hyggst byggja þarna
stórmarkað undir merki
Krónunnar.
Talinn viðrið-
innþrjúrán
Arthur Geir Ball, átján
ára drengur úr Mosfells-
bæ, er grunaður um að
vera höfuðpaur í ráni
sem framið var í Krón-
unni í Mosfells-
bæ um síðustu
helgi. Arthur var
einnig í bílnum
sem notaðurvarí
Esso-ráninu í mars og hefur
einnig verið dæmdur fyrir
aðild að öðru vopnuðu ráni.
Samkvæmt upplýsingum
DV er Arthur á skilorði en
hann hlaut síðast dóm fyr-
ir fíkniefnasölu árið 2005.
Tveimur meintum sam-
verkamönnum Arthurs hef-
ur verið sleppt.
Litháar hafa aö undanförnu verið mikið í fréttum hér á landi vegna innílutnings og
hugsanlegrar framleiðslu á amfetamíni. Lögreglufulltrúinn Mindaugas Petrauskas,
hjá alþjóðadeild litháísku lögreglunnar, segir að litháískir glæpahópar séu í útrás og
starfi lítt í landinu. Markaður Vestur-Evrópu heilli þá mun meira.
f Vilnius Hérséstfangelsið IVilnius.
Lögreglufulltrúinn Mindaugas Petrauskas
segir litháíska glæpahópa hafa I miklum
mæli herjað á önnur lönd en sitt eigið.
—------------t": ^".'i.
f dag verður kveðinn upp dómur yfir tveimur mönnum frá Lithá-
en sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Frá áramót-
um hafa fimm Litháar verið handteknir í tengslum við amfetam-
íninnflutning og hafa yfirvöld komið í veg fyrir að ríflega fjörutíu
kíló af amfetamíni kæmust á íslenskan fíkniefnamarkað. Lög-
reglufulltrúi hjá alþjóðadeild litháísku lögreglunnar segir Litháa
vera í útrás.
Mindaugas Petrauskas er lög-
reglufulltrúi hjá alþjóðadeild lithá-
ísku lögreglunnar. Hann segir
litháíska glæpahópa hafa fært fram-
leiðslu sína á amfetamíni og öðrum
ólöglegum efnum frá landinu. „Upp-
runinn er ekki lengur í Litháen. Þeir
herja á markað Vestur-Evrópu," segir
Mindaugas.
Ógna okkurekki
Mindaugas segir það tvírætt að
hægt sé að tala um mafíu í Lithá-
en. „Mafía er eitthvað sem fólk vill
oft tengja við Austur-Evrópu en hér
erum við meira að tala um tíu til tut-
tugu glæpamenn sem vinna skipu-
lega saman," segir hann og heldur
áfram: „Það er ekki einn maður hér
í Vilníus sem stjórnar stórum hóp-
um glæpamanna. Þeir eru flestir
aðskildir þessir hópar og innihalda
10-20 manns," segir Mindaugas og
bendir á að oft starfi aðalmennirnir
fyrir utan Litháen.
„Þessir hópar ógna okkur ekki -
þeir eru núna ógn fyrir kollega okkar
í Evrópu," segir hann.
Framleiðslan flutt frá Litháen
Að hans sögn hefur starfsemi
íjórtán verksmiðja, þar sem amf-
etamín og önnur ólögleg efni voru
framieidd, verið stöðvuð á síðustu
fimm árum. „í þeim verksmiðjum
höfum við lagt hald á yfir hundrað
„/þeim verksmiðjum
höfum við lagt hald á
yfirhundrað kíló afefn
um og hráefnum:
kfló af efnum og hráefnum," segir
Mindaugas.
Hann segir verksmiðjum hafa
farið fækkandi síðustu ár. Það megi
rekja til þess að þessir glæpahóp
ar hafi ílutt starfsemi sína frá Lit-
háen. „Við lendum ekki í þeim
sjálfir í svo miklum mæli.
Við erum meira í því að •
hjálpa kollegum okk- '
ar í Vestur-Evrópu
við öflun upplýs-
inga um menn sem
hafa verið teknir
stórum málum
hjá þeim," segir
hann.
Fram-
leiðsla á
íslandi?
„Við
höfum
upplýs-
ingarum
að þessir
hópar hafi
komið sér
fyrir víðs
vegar í Evrópu," segir Mindaugas
og heldur áfram: „Þeir herja á nýja
markaði og Vestur-Evrópa er bita-
stæður markaður."
í september á síðasta ári var Lit-
hái fyrst tekinn með brennisteins-
sýru í Leifsstöð og vakti það grun-
semdir yfirvalda um
skipulagða fram-
leiðslu á am-
fetamíni. Síðan
þá hafa tveir
verið
V
Með fljótandi efni Romas
Kosakovskis vardæmdur fyrir
að hafa flutt hingað til iands
fljótandi amfetamín og
brennisteinssýru.
Dómur í dag Fjölskipaður héraðsdóm
ur mun i dag kveða upp dóm yfir
Litháunum Arvydas Maciulskis og
Saulius Prusinskas.
handteknir með amfetamínbasa í
fórum sínum í Leifsstöð og enn fleiri
með tilbúið efni. Hörður Jóhann-
esson, yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, segir að innflutningur á fljót-
andi efnum hafi vakið grunsemdir
lögreglunnar á að menn hafi hug á
framleiðslu hér á landi.
Orð lögreglufulltrúans Mindaug-
as haldast einnig í hendur við þróun-
ina í haldlögðum efnum hér á landi.
Að Litháar herji á íslenska markað-
qudmundur@dv.is
Tilviljun?
30.júni2005
Tveir Litháar, Emanueiis Kaukanauk-
as og Romanas Strabeika teknir í
Norrænu á Seyðisfirði með fjögur
kíló af tilbúnu efni. Dæmdir til
þriggja ára fangelsisvistar.
22. ágúst 2005
Lithái tekinn með tæpa tvo lítra af
brennisteinssýru í farangri sínum.
Var síðar sýknaður í héraðsdómi
Reykjavíkur vegna ónógra sönnunar-
gagna.
4. febrúar 2006
Saulíus Prúsinskas tekinn í Leifsstöð.
Með amfetamínbasa sem hefði getað
gefið af sér á þrettánda kíló af hreinu
efni. Arvydas Maciulskis, Lithái sem
búsettur er hér á landi, handtekinn
og grunaður um aðild að málinu.
Dómur fellur í þeirra máli í dag.
26. febrúar 2006
Romas Kosakovskis tekinn í Leifsstöð
með amfetamínbasa og brennisteins-
sýru sem hefði dugað til framleiðslu
á allt að sautján kilóum af amfeta-
míni til sölu. Dæmdur til tveggja og
hálfs árs fangelsisvistar f héraði.
6.JÚII 2006
Tveir Litháar teknir í Norrænu á
Seyðisfirði með tólf kíló af amfeta-
míni. Málið er í rannsókn.
Litháar koma víða við sögu í glæpaheimi Danmerkur
Tveir teknir með 8 kíló af metamfetamíni
Litháar koma víða við sögu í
glæpaheimi Danmerkur. Má nefna
sem dæmi að fyrr í ár var hald lagt
á 8 kíló af metamfetamíni og 87.000
töflur af rohypnol, sem er þekkt sem
„nauðgunarlyf". Tveir Litháar voru
handteknir og hafa verið ákærðir fyr-
ir smygl á þessum fíkniefnum. Sam-
kvæmt ársskýrslu ríkislögregluemb-
ættisins í Kaupmannahöfn í fyrra er
í Danmörku stórtæk klíka litháískra
glæpamanna sem stundar þjófnaði
á dýrum fólksbflum og vörubílum,
innbrot á heimili og rán. En Litháar
eru þó einkum þekktir fyrir að stunda
umfangsmikið smygl á sígarettum til
Danmerkur. Þetta smygl er oft skipu-
lagt með Litháum sem búsettir eru í
Danmörku. í sumum tilvika var efn-
unum smyglað gegnum Danmörku.
„Smygl á háskattavörum, eink-
um sígarettum, er að hluta til skipu-
lagt á alþjóðavísu," segir í skýrslunni.
„Á árinu 2005 var smygl á sígarett-
um í samvinnu danskra og lithá-
ískra glæpamanna sem búsettir eru
í Danmörku. Þeir síðarnefndu áttu
svo samstarf að einhverju marki við
önnur austurevrópsk glæpasamtök.
Sígarettum er einkum smyglað til
Danmerkur með vörubflum þar sem
þær eru faldar innan um aðra frakt.
í nokkrum tilvikum var sígarettum
smyglað sjóleiðina frá Klaipeda í
Litháen til Danmerkur. Það hefur
orðið aukning í málum þar sem síg-
arettum er smyglað í gámum til Dan-
merkur, einkum frá Kína og Rúss-
landi. Talið er að „rockergrupper"
(Hells Angels og Bandidos) komi við
sögu í þeim málum."
Og nefna má að aukning á smygli
á amfetamíni er ekki bundin við ís-
land. Sem dæmi má nefna að árið
2004 lagði lögreglan í Danmörku
hald á rúmlega 63 kfló af amfetam-
íni. í fyrra nam magnið hins vegar
195 kflóum.
Metamfetamín Tveir Litháar voru nýlega
teknir I Kaupmannahöfn með 8 kíló af
metamfetamíni, það sterkasta á markaðinum.
Þeir voru einnig með 87.000 rophynol-töflur
sem er þekkt sem „nauðgunarlyf"