Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ2006
Fréttir DV
Minnast
fyrsta íslenska
biskupsins
I ár eru liðin 950 ár frá
vígslu fyrsta íslenska bisk-
upsins, ísleifs Gissurar-
sonar. Vígslunnar verður
minnst á Skálholtshátíð nú
um helgina. „Sá atburður
var mikill atburður í sögu
þjóðarinnar og markaði
þau tímamót, að með því að
gera ísland að biskupsdæmi
í miðaldakirkjunni var ís-
land komið inn á landabréf
Evrópu þess tíma," segir á
vef Skálholts.
Hafnatilboðum
í Miðgarð
Stjórn Eigna-
sjóðs Skagaíjarð-
ar hafnaði báðum
tilboðunum sem
bárust sveitar-
félaginu vegna
endurbóta á
menningarhús-
inu Miðgarði. Til-
boðin voru bæði yfir kostn-
aðaráætlun. Endurmeta
á framkvæmdina og ræða
síðan við annan tilboðs-
gjafann, Lambeyri ehf., á
grundvelli tilboðs fyrirtæk-
isins. Einn stjórnarmanna,
Bjarni Jónsson, taldi að
meðþessu væri núverandi
hönnun á Miðgarði sett í
uppnám, verkið tafið og
kostnaður gæti hækkað.
fí
Vegabætur í
Axarfirði
Að því er segir á detti-
foss.is er vegagerð nú hafin
á fúllu frá Núpsmýri að
Magnavíkurási í Axarflrði.
Framkvæmdum við þennan
áfanga á að ljúka í haust.
Heimamenn telja að betur
megi ef duga skúli. „Því mið-
ur verða samt enn eftir um
fimm kílómetrar af óbundnu
slitíagi tfl Kópaskers þegar
þessum áfanga lýkur. Allt er
í óvissu hvenær það verður
klárað," segir á dettifoss.is.
Myndin er frá Reyðarfirði.
Wessman má
stækka húsið
Róbert Wess-
man, forstjóri
lyfjarisans Actavis,
og kona hans hafa
nú fengið um-
beðið leyfi bygg-
ingaryfirvalda í
Reykjavík til að
stækka hús sitt í
Lálandi í Fossvogi um 36
fermetra. Byggja á við húsið
og stækka kjallarann. Fleiri
íbúar í Lálandi vilja stækka
hús sín. Þannig hafa önnur
hjón í Lálandi sótt um leyfi
til að stækka sitt hús um 68
fermetra. Afgreiðslu þess
máls var frestað á síðasta
fundi byggingarfulltrúa.
Um síðustu helgi drukknaði lítil stúlka í tjörn. Sex ára bróðir hennar tók hárrétta
ákvörðun þegar hann ákvað að reyna ekki björgun, en kalla þess í stað á fullorðna. Litla
stúlkan skottaðist um Barnaspítala Hringsins sama kvöld.
Lítið kraftaverk
Þrír sjúkrabflar og tveir lögreglubflar þustu að heimili í Hafnar-
firði á laugardag í síðustu viku. Tveggja ára telpa, Guðný Olga Sig-
urbjörnsdóttir, hafði farið að skoða garð við hlið húss afa síns, þar
sem hún datt ofan í tjörn og drukknaði. Sex ára bróðir hennar,
Guðjón Vilberg, brást skjótt við og kallaði í foreldra sína. Faðir-
inn, Sigurbjörn Árnason, hóf þegar lífgunartilraunir á dóttur
sinni. Við þeim tók eiginkona afa stúlkunnar, Andrea ísólfsdóttir,
sem nýverið sótti námskeið í skyndihjálp. Lífi litlu stúlkunnar var
bjargað og í vikunni var haldið upp á tveggja ára afmæli hennar.
Kraftaverk Hetjan Guðjón Vilberg sex ára brást skjótt við og bjargaö llfi systur sinnar. Árni
Fannberg þriggja ára er farinn að átta sig á alvarleika málsins. Bræðurnirpassa vel upp á systur
slna, Guðnýju Olgu sem varð tveggja ára I vikunni. Mynd Erla Berglind Antonsdóttir.
„Það er ekki hægt að lýsa þeirri
skelfingu sem greip mig þegar Guð-
jón Vilberg kallaði til okkar að systir
sín hefði dottið í vatnið," segir móðir
barnanna, Erla Bergfind Antonsdótt-
ir. Auk Guðjóns Vilbergs og Guðnýjar
Olgu eiga þau hj ónin Árna Fannberg,
þriggja ára. „Þegar ég sá að „vamið"
var djúp tjörn sem barnið mitt flaut
í, greip mig ólýsanieg skelfing. Vissu-
lega hafði ég einhvern tíma leitt hug-
ann að því að ég, eins og aðrir, gæti
misst barnið mitt, en þeirri hugsun
vék ég á brott samstundis. Guðný
Olga var meðvitundarlaus í tvær til
þrjár mínútur, en í okkar augum var
sá tími heil eilífð. Það er ekki hægt að
lýsa með orðum tilfinningunni þegar
hún byrjaði að anda aftur."
Lífgjöfina þakkar Erla Berglind
ekki síst sex ára syninum Guðjóni
Vilberg, sem í stað þess að reyna að
bjarga systur sinni sjálfur kallaði um-
svifalaust á fullorðna fólkið.
Hetjan Guðjón Vilberg sex ára
„Kona tengdapabba míns, Andr-
ea ísólfsdóttir, hafði nýlega farið á
námskeið í skyndihjálp og það gerði
útslagið. Sjálf fór ég á slíkt námskeið
fyrir nokkrum árum, en þetta at-
vik sýnir mér að það er fuii þörf á að
ég drífi mig aftur. Atvikið hefur haft
mikil áhrif á bræðurna, enda eru
þau systídnin afskaplega hænd hvert
að öðru og miklir vinir. Guðjón Vil-
berg sagði eftir á að ef pabbi hans
hefði ekki komið um leið, hefði hann
sjálfur farið út í tjörnina. Við gætum
þess að láta hann vita oft á dag af
því hversu mikil hetja hann er. Ami
Fannberg varð þriggja ára 1. júlí og
þeir bræður ræða þessa reynslu mik-
ið sín á milli. Árni Fannberg sagði
reyndar fyrstu dagana að honum
hafi þótt mest spennandi að sjá þrjá
sjúkrabfla og tvo löggubfla, en í gær-
kvöldi fór hann allt í einu að tala um
að systir sín hefði getað dáið."
Guðný Olga var flutt á bráðamót-
töku Landspítalans í Fossvogi og það-
an á Barnaspítala Hringsins.
„Hún varð ótrúlega hress strax
á laugardagskvöldið eftir að nær-
ing í æð var tekin úr henni," segir
Erla BergUnd. „Hún fór að skottast
um spítalann með bræðrum sín-
um og ffændum. Eina hættan var sú
að hún gæti fengið lungnabólgu, en
það hefur ekki bólað á neinum ein-
kennum. Við héldum upp á tveggja
ára afmælið hennar í sumarbústað í
Brekkuskógi á miðvikudaginn, með
rjómatertum, pönnukökum, mjólk
og pepsí. Þangað kom öll fjölskyld-
an, enda hafði slysið mikil áhrif á
okkur öll og við höfðum því marg-
falda ástæðu til að gleðjast. Það er
rétt að taka það fram hér að tjörnin
var tæmd strax daginn eftir og eig-
endur garðsins komu strax að hitta
okkur á sunnudaginn. Þetta var þeim
erfið reynsla."
Daginn eftir slysið fengu foreldr-
ar Guðnýjar Olgu og brceður áfalla-
hjálp:
„Það er mikil þörf á slflcri aðstoð,
því það er skelfilegt að upplifa smnd
það augnablik að horfa á barnið sitt
við dauðans dyr," segir Erla Berglind.
„Rósa Kristjánsdóttir, djákni á Land-
spítalanum hefur reynst okkur afar
vel, sem og allt starfsfólk Barnaspít-
ala Hringsins og við hjónin vorum að
koma frá Rósu aftur núna. Starfsfóik
spítalans segir okkur að Guðný Olga
sé lítið kraftaverk. Hún hefði getað
farið og hún hefði getað orðið fyrir
óbætanlegum súrefiiisskorti til heil-
ans. Ég trúi því að það sé vakað yfir
henni."
annakristine@dv.is