Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 21. JÚLl2006
Veiðimál DV
Umsjón: Jón Mýrdal (myrdal@dv.isj
Allar ábendingar eru vel þegnar; veiðisögur,
óvænt veiði, hverjir voru hvar við veiðar...
alltsem viðkemur veiðum og veiðimennsku.
Fjórir laxar á 45 mínútum
„Menn hafa verið að hringja í okkur og segjast hafa
tekið kvóta sinn á 45 mínútum," segir Edda Dungal á
skrifstofu Stangaveiðifélags Reykjavíkur um veiðina í
Elliðaánum. Kvótinn úr ánni er fjórir laxar á dag.
„Ain er komin í 389 laxa en var í fyrra í 379. Þannig
að þetta er allt á réttri leið," segir Edda og tekur það
fram að leyfi séu ófáanleg á þessu sumri.
„Það detta stundum inn lausir dagar og þá setjum
við það beint á vefinn hjá okkur. Menn verða bara að
fylgjast vel með ef þeir ætla að krækja sér í leyfi."
Hverjir voru hvor...
við veiðar?
• Hin heimsþekkta óperusöng-
kona Klrl te Kanava var við veiðar
í vikunni en hún hyggst vera með
stöngina á lofti í hálfan mán-
uð á íslandi. Meðal ann-
ars fer hún í Rangá. Eins
og mönnum má kunnugt
vera er Kiri mikill íslands-
vinur og einn skjólstæð-
inga umboðsmannsins Ein-
ars Bárðarsonar...
-
-
• ÓttarFeUxHauks-
son er einn af slyngari
bleikjuveiðimönnum
landsins. Hann er nú að
taka saman veiðidótið sitt
og stefnir ótrauður til veiða
ásamt vini sínum Bjöggaltall-
dórs og fleirum. Er förinni heitið í
Fljótá fyrir norðan en áin sú er fræg
bleikjuá en jafnframt er lax í ánni.
Óttar kýs hins vegar frekar bleikju
en lax á sína stöng...
• Laxveiðar og stórforstjórar ríma
(einhvern veginn) og Veiði-
málin hafa fyrir því stað-
festar heimildir að Arl
Edwald forstjóri 365
verði í Blöndu um helg-
ina. Ari hefur þó verið
duglegur í laxveiðinni í
sumar og heftir meðal annars verið
í Norðurá og Kjarrá...
• Tóti tönn, Þórarlnn Sigþórs-
son tannlækir og veiðigeggjari,
var við veiðar í Rússlandi ásamt
ónefndum atvinnuveiðimanni
frá sænska veiðibúnaðarfyrirtæk-
inu Loop. Sá var talsvert yngri en
Tóti og voru þeir saman í holli. Tóti
veiddi miklu meira en atvinnu-
maðurinn og á þriðja degi var at-
vinnumaðurinn ungi svo fúll yfir
því að Tóti væri búinn að veiða yfir
hann, að hann labbaði til byggða,
en veiðimenn eru ferjaðir í þyrlu
á veiðistað. Loop-maðurinn skildi
ekki hvernig maður á sjötugsaldri
gæti veitt svo
mikið sem raun
ber vitni ogþó
honum væri
tjáð að þar færi
einn mesti lax-
veiðimaður ís-
lands, þá hristi
sá ungi bara
hausinn...
Á Akureyri er starfrækt allsérstætt veiðifélag sem ber nafnið „Bíttá helvítið þitt“.
Sveinn Elmar Magnússon er einn foringja félagsins og hann upplýsir að félagsmenn
megi ekki verja nema afar takmörkuðu fé í veiðibúnað sinn - helst kaupa hann á bens-
ínstöð.
Bíttá helvítið þitt
„Já, þetta virðist vera að virka,"
segir Sveinn Elmar Magnússon
þegar umsjónarmaður veiði-
opnu DV spurði hann um hinar
gríðarlegu vinsældir vefs veiði-
félagsins Bíttá helvítið þitt.
Veiðifélagið Bíttá helvítið þitt er
staðsett á Akureyri og rekur um-
fangsmikinn vef í tengslum við
starfsemi sína: myblog.is/bitta. Þar
getur að líta veiðimyndir, veiðitöl-
ur og frásagnir af afrekum félags-
manna. Hinn vel þekkti gorgeir
norðanmanna er síður en svo fjarri
góðu gamni.
Ekkert„veiðaogsleppa" fjas
„Við vorum bara að fíflast til að
byrja með. Veiða með okkar ódýru
Essóstöngum, ég og Matti, en hann
er stofnandi ásamt mér," segir
Sveinn. Inntökuskilyrði eru þau að
vera með sem allra ódýrastan bún-
að. Og félagarnir drepa allt sem þeir
veiða. Ekkert „veiðaogsleppa" við-
horf er uppi innan félagsins.
„Við höfum þurft að neita einum
sem var með of dýran búnað um
inngöngu," segir Sveinn. Og bendir
á að sá hafi verið með eitthvert fjas
um að „veiðaogsleppa".
Risableikja á ryðgaðan spún
Norðanmenn í félaginu eru ein-
dregið þeirrar skoðunar að veiðar
séu ekki lífsstíll heldur einfaldlega
manninum áskapaðar tíl að komast
af í hinum harða heimi.
„Maður á að borða það sem mað-
ur veiðir," segir Sveinn ákveðinn.
Gildir meðlimir í veiðifélaginu
eru í dag tíu og má sjá á vefsíðunni
að flestir hafa verið að veiða nokkuð
vel á sínar ódýru stangir.
„Já, við Björn Þór fórum í Hrauns-
Sveinn Elmar
Meðlimir veiðifélagsins verða að
undirgangast það að verja ekki miklu fé I
dýran veiðibúnað.
mm
vatn. Sem er hérna fyrir norðan. Og
hann stimplaði sig inn í félagið með
því að ná í eina 10 punda bleikju á
ryðgaðan spún," segir Sveinn.
Sveinn upplýsir að í Hraunsvatni
séu mestmegnis murtur en innan
um leynast stórar bleikjur.
„Það er svolítið labb þarna
upp eftir en það borgaði sig," segir
Sveinn.
Ódýrt ekki alltaf best
Sveinn segir það hafa sína ókosti
að kaupa ódýran búnað líkt og áskil-
ið er. Til dæmis hefur hann þurft að
skipta þrisvar sinnum um veiðihjól.
Eins hafi þeir félagar pantað
sér fluguveiðisett frá Bandaríkjun-
um og það hafi virkað nokkuð vel
en lína sem fylgdi með hafi ver-
ið drasl. Og þurftí Sveinn að kaupa
sér nýja línu sem kostaði þrefalt það
sem settíð kostaði. En þeir í Bíttá
helvítið þitt sýna og sanna að ekki
er það dýr og vandaður búnaður
sem öllu skiptir heldur áhuginn, að
ógleymdum besta vini veiðimanns-
ins - heppninni.
Björn Þór
Stimplaði sig inn I klúbbinn með því að ná
einni 10 punda bieikju á ryðgaðan spún.
Bleikjustofninn hruninn í Dölunum
Lax kemur þá bleikjan fer
„Já, það er rétt, bleikjustofninn
er hruninn héma í Dölunum," segir
Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlög-
maður og leigutaki Miðár í Dölum.
Lúðvík hefur haft Miðá á leigu í
rúm tíu ár eftir að Stangaveiðifélag
Reykjavíkur hafði gefið hana upp
á bátinn. Hann þekkir því vel til
og getur miðað við liðna tíð þegar
bleikjan óð upp ár í Dölunum. Hins
vegar hefur uppgangur lax verið
nokkur síðustu ár. Þar ræður vatna-
búskapur miklu og almennt tíðar-
far.
„í fyrra veiddust í Miðá um 270
laxar og það þótti gott. Lax veidd-
ist á hverjum degi," segir Lúðvík og
má vel greina að hann er ánægður
með það.
„Málið var að fyrir 10 árum komu
menn frá Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur og skoðuðu ána. Þeir sáu lít-
ið af laxi þannig að þeir ákváðu að
taka hana ekki á leigu. Þannig að ég
skellti mér bara á hana. Fyrirkomu-
lagið á veiðileyfum hefur verið
þannig að ég hringdi í þá sem höfðu
verið að veiða mest og bauð þeim
að taka viku og viku. Það hefur verið
þannig síðan," segir Lúðvík.
En laxinn er eitt - bleikjan er
annað. Að sögn Lúðvíks, og reynd-
ar fleiri heimildarmanna DV, virð-
ist bleikjustofninn hrmrinn í Döl-
unum. Og hafa menn ekki neinar
skýringar. Unnsteinn Arason veiði-
vörður í Haukadalsá hefur þetta að
segja um bleikjuna:
„Ég náði þó nokkrum bleikj-
um í vor en annars hefur þetta ver-
ið afskaplega dauft. Það eru komnir
um 100 laxar á land hér í Hauka-
dalsá og er það talsvert minna en í
fyrra," segir Urmsteinn. Hann bind-
ur þó við það vonir að bleikjan sé að
koma til.
Svisslendingar hafa verið með
Haukadalsána á leigu í mörg ár og
veiða aðallega útlendingar í
ánni.
„Þetta eru yfirleitt sömu
mennirnir og sumir hafa verið
héma í mörg ár. Einn átti meira
að segja 81 árs afmæli um dag-
inn," segir Unnsteinn. Og bætir því
við að áin selji sig
sjálf enda ein
af laxveiði-
perlum ís-
lands þótt
hún hafi
einhverra
hlutavegna
farið itljótt í
fjölmiðlum.
Lúðvík Gizurarson
Hefur verið með Miðá
eftir að Stangaveiðifé-
lag Reykjavíkur gaf
hana frá sér.
Haukadalsá
Laxveiðiperla sem
ekki hefur farið hátt
um í fjöimiðium.