Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 21. JÚLl2006
Fréttir DV
Margir af lykilmönnum úr stjórnkerfi R-listans láta sig nú hverfa úr Ráðhúsinu eða reyna að komast burt
áður en þeim verður bolað burt. Stjórnarandstaðan í borginni segir skipulagsbreytingar sjálfstæðis- og fram-
sóknarmanna eingöngu gerðar til rýma til fyrir gæðingum úr flokkum meirihlutans
Flóttinn úr Ráðhúsinu
Borgarfulltrúinn og Samfylking-
armaðurinn Dagur B. Eggertsson
spyr á heimasíðu sinni hvort tími
pólitískra ráðninga sé runninn upp á
„ný“. Lykilmenn sem R-listinn réði í
stjórnkerfi borgarinnar eru margir á
leið úr Ráðhúsinu eða þegar farnir.
Jafnréttisráðgjafi lagður niður
Hildur Jónsdóttir jafnréttisráð-
gjafi sagði nýlega upp störfum enda
ljóst að hennar staða yrði lögð niður
í þeirri mynd sem verið hafði. Strax
í kjölfarið samþykkti meirihlutinn
að setja á fót mannréttindanefnd hjá
borginni í stað stöðu jafnréttisfull-
trúa. Hugmyndin er reyndar frá R-
listanum, sem áformaði að stækka
starfsvið mannréttindamála, sér í
lagi í ljósi fjölgunar innflytjenda og
nýbúa í borginni.
Borgarritari austur á land
Helga Jónsdóttir borgarritari hef-
ur lengi reynt að komast úr Ráð-
húsinu og hefur nú verið ráðin sem
bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Eiríkur
Hjálmarsson, aðstoðarmaður borg-
arstjóra, hefur flutt sig um set og
gerst blaðafulltrúi Orkuveitunnar,
hrókering sem kom mörgum Orku-
veitumönnum á óvart enda Helgi
Pétursson gegnt því starfi með sóma
og hæpið að þörf væri fýrir tvo menn
í þá stöðu.
Þá hefur verið gerður starfsloka-
samningur við Láru Björnsdóttur fé-
lagsmálastjóra, sem reyndar er eini
sviðstjóri borgarinnar, sem eftir er
frá valdatíma Sjálfstæðisflokks
ins og ráðin var til borgarinn
ar 1994 skömmu fyrir kosn-
ingar.
Liðsmenn borgarstjóra
hverfa
Kristín Árnadótt-
ir skrifstofustjóri á skrif-
stofu borgarstjóra er farin
í leyfl og Magnús Gylfa-
son, starfsmaður
Sjálfstæðisflokksins, kominn í henn-
ar stað. Staðan var ekki auglýst eins
og Dagur heldur ffam að hafi verið
venjubundið verldag hjá R-listanum.
Reyndar er því haldið fram í Blað-
inu síðastliðinn mánudag að staða
Kristínar hafi verið búin til af Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur í borgar-
stjóratíð hennar og klæðskerasniðin
handa Kristínu. Margir hafa reyndar
lýst efasemdum um að hún snúi til
baka úr námsleyfi sínu.
Þá er Anna Margrét Guðjónsdótt-
ir, sérfræðingur á skrifstofu borgar-
stjóra, hætt störfum og á leið til Brus-
sel þar sem hún mun veita forstöðu
skrifstofu fyrir Samband íslenskra
sveitarfélaga.
Jafnframt hefur ritari borgarstjóra
Ellen J. Calmon hætt störfum.
Borgarkerfið blásið út
AJlir sviðstjórar borgarinnar sem
nú sitja fundi borgarstjórnar eru
ráðnir af R-listanum nema Gunnar
Eydal, sem ráðinn var af fyrrverandi
vinstri meirihluta 1978-82.
„Það er reyndar ekkert við það
að athuga að hæft og þróttmikið fólk
sem á allra kosta völ skiptí um starf
öðru hvoru en ef einhver alvarlegur
atgervisflótti á sér stað úr Ráðhúsinu
er það auðvitað alvarlegt mál og mik-
il blóðtaka fyrir borgina," segir Dagur
B. Eggertsson í viðtali við DV.
„Það er búið að byggja upp mikla
fagmennsku og þekkingu innan
stjórnkerfis borgarinnar og innleiða
nútímavinnubrögð, sem önnursveit-
arfélög og rfldð líta til og sjá
sem fyrirmynd," seg-
ir Dagur. „Mér finnst
áætlanir meirihlut-
ans um stjórnkerfis-
breytingar bæði
óljós-
arog
„Hvorki meira né
minna enþrjú störfí
borgarkerfinu hafa ver-
ið skraddarasaumuð
fyrir hana enda sam-
starfskona Ingibjargar
Sólrúnar allt frá tímum
Kvennalistans."
ómarkvissar og einna helst vera
fólgnar í því að blása út borgarkerf-
ið, búa til ný eða endurvelcja gömul
embætti."
Broslegt upphlaup
„Mér finnst þetta upphlaup Dags
B. Eggertssonar heldur broslegt í ljósi
þess hve klárlega pólitísk viðhorf
hafa ráðið miklu við mannaráðn-
ingar í tíð R-listans, sérstaklega hef-
ur Samfylkingin verið frek til fjörsins
í því efni," segir Kjartan Magnússon
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
samtali við DV:
„Það er til dæmis óhugsandi að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði látið við-
gangast að embættismenn borgar-
innar gengu í flokk-
inn til að styðja
ákveðinn stjórn-
málamann til
formannsemb-
ættis í flokknum
eins og gerðist S <0
þegar Ingibjörg
Sólrún bauð sig
fram til formanns í '
Samfýlkingunni.
Flóttinn byrjaði fyrir kosningar
„Hvað varðar ráðningu Magnús-
ar Gylfasonar í afleysingarstörf fyrir
Kristínu Ámadóttur má benda á að
hvorki meira né minna en þrjú störf í
borgarkerfinu hafa verið skraddara-
saumuð fýrir hana enda samstarfs-
kona Ingibjargar Sólrúnar allt frá
tímum Kvennalistans," segir Kjartan.
Að áliti Kjartans má segja að ef
einhver atgervisflótti hafi átt sér stað
frá Ráðhúsinu þá hafi hann byrj-
að löngu fyrir kosningar. Hjörleifur
Kvaran borgarlögmaður hafi flutt sig
yfir til Orkuveitunnar, Anna Þórðar-
dóttír fjármálastjóri hafi hætt og Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson hafi hætt
sem borgarlögmaður nánast jafn
skjótt og hann byrjaði.
í lagi að hafa pólitíska
reynslu
„Og ekki flentist eins
frábær maður og
Björn Ingi Sveins-
son nema eitt ár \
sem borgarverk- >
fræðingur. Þar að
auki má benda á
að pólitískur að-
stoðarmaður borg-
arstjóra í fýrrver- '
andi meirihluta,
Eiríkur Hjálmars-
son, hættí fyrir kosn-
ingar og fluttist
yfir á Orkuveit-
una þar sem ný
staða var búin
tíl fyrir hann.
Ég sé hins veg-
ar engan sérstak-
an meinbug á því að
menn sem ráðnir eru
til borgarinn-
ar hafi reynslu úr pólitík. Það getur
oft komið sér vel og er þar að auki
alls ekki slæm reynsla," segir Kjart-
an og tekur firam að samstarf hans
við embættismenn borgarinnar hafi
gengið mjög vel. Hann telji heldur
ekki að minnihlutanum hafi verið
sinnt öðruvísi af þeirra hálfu:
„Langflestir eru hæfir starfsmenn
og duglegt fólk. Mér er heldur ekki
kunnugt um að fleiri starfsmenn
hyggi á uppsögn en hér hefur kom-
ið fram."
kormakur@dv.is
Kjartan Magnússon
Borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks segir óhætt að hafa
pólitíska reynslu.
Hetga Jonsdottir
Borgarritari er orðinn
bæjarstjóri i Fjarðabyggð
'cm
Wk
Lara Bjornsdottir
Félagsmálastjóri \
borgarinnar hefurgert
starfslokasamning.
s ' Wt
Anna Margrét
í Guðjónsdóttir
! Sérfræðingur á skrifstofu
I borgarstjórafertilBrussel
Bjorn Ingi Svetnsson
Borgarverkfræðingur
hætti eftir eins árs starf.
’ '
Eirikur Hjalmarsson
Aðstoðarmaður tveggja
fyrrverandi borgarstjóra er
kominn f hús hjá Orkuveitunni
f m 1
Kristín Árnadóttir
%: Skrifstofustjórinn hjá
borgarstjóra er farin I
námsleyfi.
Ellen Calmon
Ritari borgar-
stjóra er hætt.
Gunnar Eydal
Eini sviðstjórinn sem ekki
varráðinn afR-listanum.
Hr ISÍf
Dagur B. Eggertsson
Borgaarfulltrúi Samfylking- ‘
ar býst við póltiskum
ráðningum I borgarkerfinu. I
Magnus Þór Gylfason
Starfsmaður borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins stýr-
ir nú skrifstofu borgarstjóra.
Ingibjorg Sólrun Gfsladóttir
Nánustu samstarfsmennirnir
yfirgefa ráðhúsið hver aföðrum
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Borgarlögmaður í örfáa
mánuði I tlð R-listans.