Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 21. JÚU2006
Helgin PV
Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktarfröm-
uður mun halda Heilsuhátíðina Fusion
Fitness Festival í World Class í haust. Þetta
er í íjórða skiptið sem Unnur stendur fyrir
hátíðinni en í ár mun hún fá sex heims-
þekkta kennara til landsins. Sá frægasti
þeirra, Milo Levell, hefur meðal annars
unnið með Michael Jackson, Juliu Ro-
berts og Jessicu Alba auk þess sem hann
hefur dansað fyrir sjálfan páfann. Unnur
hvetur alla sem eru að þróa eitthvað nýtt í
líkamsræktarbransanum til að hafa sam-
band því þetta tækifæri er einstakt.
Flott saman
Hafdls Jónsdóttir, eða Dísa í World Class eins
og hún þekkist best, starfar með Unni að
nýjum tlmum. Hér eru þær ásamt Páli Óskari
sem veröur plötusnúður á hátlðinni.
„Þetta er í íjórða sinn sem ég held
þessa heilsuhátíð en hún hefur allt-
af gengið vonum ffamar," segir Unn-
ur Pálmarsdóttir líkamsræktarfföm-
uður sem mun halda Heilsuhátíðina
Fusion Fitness Festival í World Class
í haust, dagana 29. september til 1.
október. Fyrir tveimur árum mættu
um 80 manns á hátíðina en í fyrra var
Qöldi gesta orðinn 170 og Unnur er
bjartsýn á þátttöku í þetta skiptið.
„í fyrra var ég með fimm þekkta
gestakennara en í ár verða þeir sex
talsins. Má þar nefrta Ceri Hannan,
Bianca Karel, Steve Watson, Neil Bat-
es og af íslenskum fyrirlesurum má
nefna önnu Sigríði doktor í næring-
arfræði, Valgeir sjúkraþjálfara, Ólaf
frá Einkaþjálfaraskóla World Class
og fleiri góða fræðimenn.
Dansaði fyrir páfann
Sá þekktasti af erlendu kennur-
unum er hinn heimsþekkti dans-
höfundur Milo Levell sem er lifandi
goðsögn í dansheiminum. Hann er
búinn að dansa í meira en 25 ár og
er afar virtur," segir Unnur en Milo
hefur meðal annars starfað með
Michael Jackson, leikkonunum Juliu
Roberts og Jessicu Alba og leikaran-
um Blair Underwood.
„Milo hefur líka sett upp sýning-
ar fyrir bæði Stevie Wonder og Di-
önu Ross og dansaði fyrir páfann
árið 2000 á sérstakri hátíð í Vatík-
aninu." Unnur kynntist Milo á ráð-
stefnu í Bretlandi í fyrra og féll strax
fyrir kennsluaðferðum hans. „Hann
er alveg ótrúlegur og fær alla til að
dansa, sama hvort þeir eru nýbyrjað-
ir eða búnir að stunda dansinn lengi.
Hann kennir þetta svo vel að allir
ná þessu um leið." Milo Levell mun
halda danssýningu á Salatbarnum
þar sem hann mun velja einhverja úr
tfmunum til að dansa með sér. „Hann
hélt sýningu í Bretlandi í fyrra og það
var alveg magnað að sjá hann," segir
Unnur brosandi.
Nýjasta æðið á Spáni
Unnur hvetur alla sem eru að
þróa og hanna einhverja nýja hluti í
líkamsrækt til að setja sig í samband
við hana. „Ég er alltaf að leita að fólld
til að gera þetta með mér. Við Dísa í
World Class erum til dæmis að hanna
nýja tíma sem við ætlum að kynna á
hátíðinni og munu verða settir inn í
dagskrá World Class í haust."
Meðal þessara tíma er Batuka
sem er það heitasta í líkamsrækt-
inni á Spáni. „Batuka er ný hreyfing
þar sem salsa og kikkboxi er blandað
saman. Þetta er orðið að algjöru æði
á Spáni. Við ætlum að byrja þetta í
World Class þann 4. september en
munum hafa prufutíma á heilsuhá-
tíðinni."
Unnur segir marga verða kæru-
lausari á sumrin en að í sumar eigi
það ekld við. „Kannski er það veðrið
en mér hefur fundist fólk duglegt að
mæta í ræktina í sumar. Hér í World
Class í Laugum er alltaf fullt af fólki
að æfa. Ég held líka að við séum allt-
af að verða meðvitaðri og hugsum
sífellt betur um heilsuna. Við vitum
að okkur líður betur ef við hreyfum
okkur meira. Líkamsræktin er líka
orðin mildu fjölskylduvænni. f boði
eru tímar fyrir börnin og svo er hægt
að setja þau í pössun eða mæta með
þau með sér í tímana. Það duga eng-
ar afsakanir lengur," segir hún og það
er greinilegt að þetta málefni skiptir
hana mikfu máli.
Unnur Pálmarsdóttir
„Peningahliðin eralltaferfíð og ég erþvl að leita að
sponsurum til að styrkja þetta. Flestir eru þetta góðir vinir
mlnir og vilja ólmir koma hingað enda er istand vinsælt land:
Einangrun á íslandi
„Við búum líka í einangrun á þess-
ari eyju og getum því ekki skotist upp
í bíl og keyrt til næsta lands. Okkur
er því nauðsynlegt að fá útrás fyrir
tilfinningar, bæði andlega og líkam-
lega, og útrásina fáum við með því
að hreyfa okkur. Við þurfum bara að
finna líkamsrækt og hreyfingu sem
hentar oJdatr. Það þýðir ekkert að
sitja bara inni í stofu og sér í lagi þeg-
ar okkur líður illa. Þá er besta ráðið
að fara út og hreyfa sig."
Tækifæri fyrir þá sem þora
Aðspurð segir Unnur eldd erfitt að
fá þessi frægu nöfn til íslands. „Pen-
ingahliðin er alltaf erfið og ég er því
að leita að sponsurum til að styrkja
þetta til að hjálpa mér að fá þessa
aðila til íslands. Markmið mitt er að
fá erlenda ferðamenn til að koma á
Heilsuhátíðina Fusion Fitness Festi-
val í ffamtíðinni. Flestir eru þetta
góðir vinir mínir og vilja ólmir koma
hingað enda er fsland vinsælt land.
Það eru mun fleiri sem vildu koma
en því miður er ekki hægt að fá alla.
Það er því mikilvægt fyrir fólk í þess-
um bransa að koma og sýna það sem
það er að gera því þeir sem hingað
koma eru með rosalegt tengslanet og
þessu fylgir því tækifæri til að koma
sér á framfæri erlendis. Við erum
með góðan efnivið, það er bara von-
andi að fólk þori."
Heilsuhátíðin fer fram í World
Class í Laugum og hægt er að lesa
allt um hana á fusion.eu.com. Hægt
er að skrá sig á hátíðina í afgreiðsl-
unni í Laugum eða með því að senda
tölvupóst á Unni á netfangið unn-
ur@fusion.eu.com.
indiana@dv.is
Hressir kennarar
Þessir kennarar heimsóttu Unni I fyrra.
Margir þeirra munu koma aftur I haust.
Milo Levell
Milo hefur meðal annars starfað
með Michael Jackson, leikkonunum
Juliu Roberts og Jessicu Alba og
leikaranum Blair Underwood.
Unnur og Bianca Karel
Bianca Karel frá Hollandi mun
koma aftur en hún kenndi með
Unni á hátiðinni I fyrra.
w & i 1
1 *■ ■ 1 Í""
Hr V 1 fite