Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 39
I
Dagur B. Eggertsson
BORGARFULLTRÚI
Ég er að koma úr erfiðri kosninga-
baráttu og því hafa bækurnar sem
ég vil lesa þyrpst upp í kringum
mig. Um þessar mundir er ég að
lesa Draumalandið eftir Andra Snæ
Magnason og get fullyrt að þar er
mikil hugvekja á ferð. Næst á dag-
skrá er svo að lesa ævisögu Lynd-
ons B. Johnson sem kom út fýrir
skemmstu, en hún er í fjórum bind-
um og þykir mjög góð. Ég hlákka því
tíl. En skáldsögurnar bíða í haug-
um. Ég fæ kvíðahnút í magann yfir
magninu!
Katrín Jakobsdóttir
BÓKMENNTAFRÆBINGUR
í sumarfríinu las ég When Nietzsche
Wept sem íjallar um vináttu heim-
spekingsins Friedrichs Nietzsche við
sálgreinandann Josef Breuer. Ég var
mjög hrifin, tekist á við sígildar spum-
ingar um tilgang lífsins með hæfilegri
blöndu af kveini og tilvistarstefnu. Svo
þrælaði ég mér líka í gegnum sögu
umhverfisins á 20. öld, Something
New Under the Sun. Feykilega áhuga-
verð bók sem sýnir hversu gríðarleg
áhrif mannskepnan hefur haft á um-
hverfið. Nú er ég að byrja á Nætur-
vaktinni eftir Kirino Natsuo, japanskri
glæpasögu sem segir frá konu sem
myrðir manninn sinn, en slíkar bækur
er öllum konum hollt að lesa reglulega
tíl að fá hæfilegan skammt af útrás!
Mér líst vel á hana enda glæpasagna-
fíkill og les slíkar sögur í bílförmum á
ári hverju.
Soffía Karlsdóttir
SÖNGKONA
Ég er að lesa Hroka og hleypidóma.
Ég hef lesið hana á ensku og líkaði
mjög vel, en vildi sjá hvort ég skildi
bókina öðruvísi á íslensku. Þar á
undan las ég Ótuktina eftír Önnu
Pálínu Árnadóttur heitna. Hún er al-
veg ótrúleg, ég kláraði hana í einum
rykk. Þessi bók fær mann til að líta
lífið nýju ljósi og hætta að kvarta yfir
litlu hlutunum. Næsta bók á dagskrá
er Mýrin eftír Arnald Indriðason.
Mig langar til að lesa hana áður en
myndin kemur.
FÖSTUDAGUR21. JÚLl2006 51
Náði hæstu einkunn
Svanur Davíð Vilbergsson er 24
ára gítarleikari. Hann lauk nýverið
einleikaraprófi í klassískum gítar-
leik frá Conservatorium Maastr-
icht með hæstu einkunn ársins.
Hann fékk 9,5 sem er ekki algeng
einkunn að sögn Davíðs. Skólinn
tók fjögur ár, en hann hafði áður
lagt stund á gítamám í Bretíandi
og á Spáni. Svanur er nú kominn
heim og hefur nú þegar haldið
marga tónleika, eins og á Eskifirði
og Stöðvarfirði. Fyrirhugaðir eru
svo tónleikar á Selfossi í byrjun
ágústmánuðar og á Mallorca 14.
ágúst í gítartónleikaseríu. Davíð
er á leið í mastersnám í Maastr-
icht í klassískum gítarleik hjá Carlo
Marchione, þekktum gítarsnillingi
sem sérhæfir sig í barokktónlist og
nútímatónlist.
Frábær árangur
Gríms Hákonarsonar
Stuttmyndin Slavek the Shit eftír Grím Hákonarson - lokaverkefni
hans úr FAMU-kvikmyndaskólanum í Prag - hefur farið víða á und-
anförnum mánuðum. Hún var heimsfrumsýnd á Cannes á síðasta
ári og hefur síðan þá tekið þátt í fjölmörgum kvikmyndahátíðum,
eins og í Pusan í Suður-Kóreu, sem er með þeim stærri í Asíu, Leeds
Internatíon Film Festival, Qurense Short Film Festíval og Barcelona
Short Film Festival. Bestum árangri hefur hún náð á ítalíu, en hún
hefur unnið fimm verðlaun í landinu, nú síðast aðalverðlaun í stutt-
myndakeppni Arcipelago-stuttmyndahátíðarinnar í Róm. Myndin
er rómantísk ástarsaga sem íjallar um klósettvörðinn Slavek og ger-
ist að mestu inni á almenningssalerni í miðborg Prag.
Þrír útskrifaðir nemendur úr hinum heimsþekkta sirkusskóla
Circus Circör munu koma fram á L.ung.A á Seyðisfirði um helgina
og sjá um listasmiðju. Þau Ola, Henna og Petri starfsrækja sirkus-
hóp sem ber nafnið Med andra ord og hefur getið sér gott orð fyrir
ótrúlega leikni, eins og að spranga í hringum eða standa á höndum
á handstatífum. Þau munu kenna „grunnatriði í sirkustækni, joggl-
ing, leik með eld og fleiri klæki" eins og segir á heimsasíðu L.ung.A.
Þar með gefst áhugasömum tækifæri til að læra erfiðar sirkuskúnstir
sem skemmtilegt gæti verið að setja inn í leiksýningar eða götuleik-
hús. Þess má geta að kennararnir þrír unnu með leikhópnum Vest-
urportí síðastliðið sumar, en hann hefur einmitt notast mikið við
sirkustækni í uppsetningum sínum.
i