Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 40
52 FÖSTUDAGUR 2 I. JÚU2006 Helgin DV itegundir af jpúðri. láskotnaðist Nivea-sólarp Púður Kanebo „Kanebo- púðrið hyiur sem ég vil hylja, en er samt létt." Sólarpúður frá Nivea „Ég hef reyndar ekki prófað margar af sólar- Mér svona og hef haldið mig við Það hentar ágætlega og er gott til að fríska upp á útlitið." Maskari frá Clinique „Mér finnst frekar erfitt að finna góðan maskara. Hef átt þá nokkra gegnum tíðina, en þessi er prýði- legur." rra nourjois „Þetta gloss er í ljósrauðum lit og ég set það á mig daglega." Augnabrúna- litur frá Body Shop „Þessi er borinn á með og sparar að lita oft! Augnskugga nota ég eftir því sem hentar hverju sinni. Það fer eftir skapi, veðri, vindum og tilefni hvaða liti ég ber á augnlokin." Elfa Dröfn Stefánsdóttir er kaffibarþjónn hjá Te og kaffi aö Laugavegi 24. Hún er vanur kaffiþjónn og lenti I fimmta sæti í keppni landsliðs kaffibarþjóna í apríl sið- astllðnum. Eftirlætiskaffidrykkurinn hennar er cappuccino, sem hún segir reyndar þann vinsælasta almennt hjá viðskiptavinum líkt og kaffi latte. Á sólríkum sumar- dögum er það hins vegar frappuccino sem slær allt út, en það segir Elfa Dröfn að sé nokkurs konar fskaffi sem er sett í blandara ásamt sýrópi og fleiru og sé svalandi drykkur I sumarhitanum. Hún hefur starfað hjá Te og kaffi í rúmt ár og líkar afar vel f vinnunni. „Skemmtilegast flnnst mér að laga kaffidrykkina, sérstak- lega cappuccino." Elfu Dröfn fannst sjálfsagt að lofa okkur að kíkja I snyrtibudd- una sfna, en hún segir að sér finnist ómissandi að setja á sig létt púður, maskara og smá roða á kinnarnar, án þess þó að verða of mikið förðuð. Athafnakonan Helga Snorradóttir er glæsileg kona sem hafði í tuttugu og íimm ár starfað sem skrifstofustúlka, þar af síðustu tíu árin sem ritari, gjaldkeri og aðalgjaldkeri hjá sýslu- manninum í Kópavogi. Þegar hún var á ferð um Þýskaland með manninum sínum fyrir nokkrum árum sá hún hins vegar fatnað sem hún féll fyrir og hugmyndin að því að fara að selja vönduð kvenföt fæddist. Þannig varð verslunin Ysja til. Íelga Snorradóttlt i áherslu á að hafa búðina heimilislega. Saknar sýslumannsins í Kópavogi „Ég hélt áfram í starfi mínu hjá sýslumanninum, en hóf að selja kvenfatnað heima," segir hún. „Við vorum með fyrirtæki á kennitölu þannig að byrjunin var auðveld. Fatnaðurinn sem ég er með er frá þýska fyrirtækinu „Street One", af- skaplega vandaðar flíkur. Ég bauð konum að koma á kvöldin og um helgar að versla og orðið sem fór af þessum vörum var svo gott að starf- semin jókst mun meira en ég hafði átt von á. Þá ákvað ég að opna verslun og fékk húsnæði hér að Grensásvegi 22. Kosturinn við Grensásveginn er sá að hér er gott að fá stæði og ég finn að það skiptir fólk miklu máli." Nafn verslunarinnar er óvenju- legt: Ysja. „Ég leitaði að góðu nafni í ís- lenskri orðabók, en oft þegar ég fann falleg nöfn reyndist merkingin að baki þeim ekki eins góð. Þegar ég fann svo nafnið Ysja og sá að það þýðir meðal annars „fasmikil kona", var nafn verslunarinnar ákveðið." Helga fer út mánaöarlega að panta inn og segir kostinn við vör- urnar sem hún selur vera þann að hér sé á ferðinni góður fatnaður á þokkalegu verði og það koma aldrei fleiri en átta stykki afsömu flíkinni, auk þess sem nýjar vörur komi tvisvar til þrisvar í mánuði. Versl- unin er einstaklega hlýlega innrétt- uð og líkist í raun ekki fatabúð heldur kósí heimili. „Já, ég lagði áherslu á að hafa heimilislegt hér," segir hún. „Hér eru borð og stólar og fólk getur því sest niður og fengið sér smá tár og heitt kaffi, jafnvel lesið blöð ef verið er að bíða eftir einhverjum sem er að máta. Stærðirnar eru frá 36 upp í 44 en ég er að vinna að því að fá umboð frá jafn góðum framleið- anda í stærri stærðum," segir hún þegar stærðavandamál í íslenskum kvenfataverslunum er rætt. Þótt Helga væri orðin verslunar- eigandi hélt hún áfram starfí sínu hjá sýslumanninum íKópavogi. „Eg var í hlutastarfi þar og hluta- starfi hér. Dætur mínar hafa reynst mér mjög hjálplegar á álagstímum, en búðin hefirr gengið betur en björtustu vonir mínar sögðu til um þannig að ég hætti hjá sýslumann- inum fyrir tveimur mánuðum." Saknarðu þess? „Starfsins? Ég sakna sýslu- mannsins í Kópavogi!" segir Helga skellihlæjandi. „Það er í raun ekki mikill munur á því að sinna skrif- stofustörfum eða vera með eigin rekstur. Ég er rösk þegar ég er að vinna, alveg sama hvaða starf það er, og hvíli mig vel á milli. í frítím- um les ég mikið, var að ljúka við Hulduslóð og Friðland eftir Lisu Marklund. Svo reyni ég að vera eins mikið með barnabörnunum og ég get, en þau eru sex á aldrinum fimm ára upp í fjórtán ára. Ég fór í hálfs mánaðar sumarfrí til Mallorca í maí og stefni á vikufrí á sólar- strönd í haust. í febrúar er það svo skíðaferð..." Ertu skíðakona? „Nei, nei, elskan mín, það er ég ekki! Maðurinn minn er hins vegar góður skíðamaður. Ég geri allt fyrir hann og elti hann því bara í skíða- ferðirnar!" annakristine@dv.is BYLTING í SVEFNLAUSNUM FRÍ LEGUGREINING OG FAGLEG RÁÐGJÖF www.rumgott.is Rúmgott er leiðandi í þróun og framleiðslu á heilsudýnum og rúmbotnum undir vöru- merkinu EZ-sleep á íslandi. Við höfum yfir að ráða fullkomnum tækjabúnaði til að mæla þrýstijöfnun á líkama hvers einstaklings sem gerir okkur kleift að framleiða svæðaskiptar heilsudýnur sniðnar að viðkomandi. Húsgagnavinnutitofu Kll Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.