Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Qupperneq 48
60 FÖSTUDAGUR 2I. JÚLl2006 Helgin DV „Á yfirborðinu var allt gott. Ég bjó í húsi í úthverfi með konu, grill og þvottavél. Sólin skein stöðugt, ströndin var í fimm mínútna göngufjarlægð frá húsinu, ísbíllinn kom á hverjum fimmtudegi.“ Valur Gunnarsson er enn staddur í Finnlandi. Á yfirborðinu var allt gott. Ég bjó í húsi í úthverfi með konu, grill og þvottavél. Sólin skein stöðugt, ströndin var í fimm mínútna +=■ Permanent d HairColorant ____ v/ith Acfrvc -1-- Vegetöble Ingreciíents br fiOOíGreycover MOtmk náttúrulegt göngufjarlægð frá húsinu, ísbíll- inn kom á hverjum fimmtudegi. Ég vaknaði þegar mig langaði til og var að vinna við bók sem ég hafði verið að skrifa meira og minna það sem af var öldinni og virtist loksins vera að klárast. En rétt eins og með gaurinn í White Power-bolnum á Hverfisbarnum var eitthvað ekki alveg rétt. Verkamannaparadís og svartpulsur Kannski var það staðsetningin. Gatan hét Insinöörikatu, Verkfræð- ingagata. Það miðstéttarhelvíti sem ég var staddur í var að minnsta kosti vel merkt. 1 20 mínútna rútu- fjarlægð risu reykháfar Tampere, verkamannaborgar Finnlands, og stærstu borgar Norðurlanda sem liggur ekki við sjó. Þar eru bæði Mustamakkaran, svartpulsan sem leggur jafnvel hraustustu menn að velli, og Manse-rokkið, en Tampere er kölluð Manchester Finnlands, upprunnin. Verkamannastyttur prýða brúna sem tengir hina tvo hluta borgarinnar saman, þar hafði hin skammlífa kommúnistastjóm Finnlands höfuðstöðvar sínar þar til hún var kveðin niður af hvítlið- • 700% náttúrulegir jurtalitir • Engin skaðleg aukaefni • Ekkert ammóníak • Laust við festiefni (Resorcinoi) • Þægilegt og fljótlegt i notkun • 30 litir (Hægt að blanda fleiri) Einnig sjampó, hámæring o.fl. Fæst í heiisubúðum, apótekum, og heilsuhornum verslana DREIFING: JÓN KARLSSON • SlMI: 5610570 Helvíti barnanna En fátt er um svo fína drætti í úthverfinu Hervanta. Mitt á milli verkfræðinganna er búið að troða nokkrum félagsíbúðum, en íbú- ar þeirra manna bekkina á sumrin og minna millistéttarfólkið á það hvers vegna það eyðir ævi sinni á skrifstofum frekar en úti í sólinni. íbúð í úthverfi er draumurinn. 1 nútímaþjóðfélagi snýst allt um íslensk list er góð gjöf Gallerí Fold • Kringlunni og Rauðarárstíg--- Opi& í Kringiunni laugardaga kl. 10-18, Opið á Rau&arárstíg laugardaga kl. 11-16, Sjáumst í Galleríi Fold Rauðarárstíg 14, sími 551 0400 Kringlunni, simi 568 0400 ■ www.myndlist.is Karlar og konur í Finnlandi Valur Gunnarsson hittirskynsama konu í stórmarkaði I Finnlandi. fjárfestingar og íbúðin er stærsta fjárfesting sem flestir gera um æv- ina. Því er hún hið endanlega tak- mark, það sem segir öðru fremur hvort fólki hafi heppnast eða ekki, sé heppnað eða ekki. I skáldsögunni Skotgrafarvegur, eftir Kari Hotakainen, segir frá manni sem leggur allt í sölurnar til að eignast hús svo íjölskylda hans snúi aftur til hans. „Fjölskyldan er helvíti barnanna," sagði Strind- berg. í mínum augum er hún mun meira en það. Kippa af bjór eða handtaska Á föstudögum fer ég í einn af hinum þrem súpermörkuðum Hervanta og horfi spyrjandi aug- um á konuna hvort ég megi kaupa einni kippu meira af bjór, gráðosta- ídýfu og snakk. Ég er ekki eini mað- urinn í búðinni sem þarf að spyrja leyfis. Konan fær að bera titilinn „skynsami aðilinn", einmitt vegna þess að hún eyðir talsvert minna af ráðstöfunarfé sínu í skammtíma- vermi eins og áfengi. En samt get- ur hún keypt sér nýja handtösku fyrir tugþúsundir án þess að depla auga, jafnvel þótt hún eigi fjölmörg ílát undir veski og varalit fyrir, og taskan veiti henni engu varanlegri hamingju en bjórinn. Hinn kvenlegi kapítalismi Það er ekki skrýtið að allir mark- aðsfræðingar heimsins séu að fara yfir um á því að reyna að höfða til kvenna. Það er konan sem ræður hvernig peningum heimilisins er varið, eins og sést í augum þján- ingarbræðra minna í K-Marketi. Kapítalisminn er í sjálfu sér kven- legt fyrirbæri, enda hefur konum aldrei vegnað jafn vel og í mark- aðslýðræðisríkjum samtímans. I fyrstu þjóðfélögunum voru karl- menn veiðimenn og konur safnar- ar. í kapítalískum ríkjum er allt gert til að höfða til safnaraáráttunnar. Öll þurfum við alltaf meira af öllu. Eitt sinn réðu veiðimennirnir ríkjum. Á miðöldum öttu konungar og stórfurstar kappi við hvern ann- an í að leggja undir sig landsvæði. Fyrir veiðimanninum er aðalatrið- ið að stjórna sem mestu svæði og mannvirðingar fóru eftir því hver átti stærstar veiðilendur, oft í bók- staflegri merkingu. Þeir sem reynd- ust minni veiðimenn og áttu færri vopn voru miskunnarlaust brytjað- ir niður. Lítið var um aðhlynningu, farsóttir voru tíðar. Það voru verri tímar. Ringlaðar konur, ringlaðri karlmenn í dag höfum við almennings- sjúkrahús, velferðarkerfi og jafn- rétti, að minnsta kosti í orði, þó að veiðimennirnir séu stöðugt að reyna að taka það af okkur, færa oldair aftur til fyrri tíma. En þeir eru ekki einir í fortíðarhyggju sinni. Því vöðvastæltur veiðimaðurinn er alltaf meira aðlaðandi en safnarinn með þráhyggjur sínar. Konur á Vesturlöndum í dag vita hvað þær vilja á atvinnumarkaðn- um og eru ekki feimnar við að fjöl- menna til að láta vita af réttind- um sínum, sem ætti að vera öllum öðrum réttindabaráttum til fyrir- myndar. En þær eru enn ringlað- ar í sambandi við hvað þær vilja fá frá karlmönnum, sem gerir þá fyrir vikið ringlaða í sambandi við hvernig þeir eiga að haga sér. Paris Hilton og drekarnir Matti í Skotgrafarvegi eldar matinn, þrífur húsið og hugsar um börnin, eins og honum hefur verið kennt að nútímamenn eigi að gera. En slíkur maður á auðveldlega í hættu að þykja ekki inógu spenn- andi.j Konur nota enn hugtök eins og idraumaprinsinni og iriddar- inn á hvíta hestinum.i vitna þannig í rómantískar hugmyndir skálda 19. aldar, sem sjálfar voru byggðar Verkamanns- styttur Stytturnar prýða brúna sem tengir tvo borgarhluta saman. á draumsýn á miðöldum sem eiga sér litla stoð í sagnfræðinni. Á forsíðum blaða fýrir tánings- stúlkur gefur að líta myndir af Par- is Hilton, sem helst er þekkt fýrir að sofa hjá meintum riddurum og vera erfingi Hiltonauðævanna, en líklega mun sá sem vinnur hana einnig fá hálft ríkið. Paris Hilton er það næsta sem við komumst nú- tímaprinsessu, flestir þurfa í dag að vinna en draumurinn er enn að þurfa ekki að gera neitt. Ég legg frá mér bjórinn og kaupi kartöflur í staðinn. I fréttum er sagt frá stríðum og stórfyrirtækjum. Alltaf er nóg til af drekum. Einhvern daginn mun ég berjast við þá. Valur Gunnarssort

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.