Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Síða 54
66 FÖSTUDAGUR 21.JÚLÍ2006
Helgin DV
Plaggat frá fyrstu
dögum Grahams
Jefferson Airplane Sýruböndin
gömiu áttu mestan frama á
vegum Grahams. Plaggötin
þeirra voru mjög skrautleg og
þrykkt I mismunandi litum meö
silkiþrykktækni.
Litina vantaði ekki í
kynningarefni 1968
Gamalt lag til ástkonu rifjað upp
Eric Clapton var á tónleikaferða-
lagi um ítalíu fyrr í mánuðinum.
Meistarinn spilaði fyrir tíu dögum
í gamla hringleikahúsinu í Verónu
fyrir 25 þúsund gesti og var vel tekið.
Fyrrverandi ástkona hans og barns-
móðir, Lory Del Santo, sem er frá
Verónu notaði tækifærið til að upp-
lýsa að hún ætti lag sem Clapton
skrifaði fyrir hana sem talið var glat-
að. Sonur þeirra Conor hafði kom-
ist í kassettuna og brotið. Eins og
kunnugt er fórst drengurinn í hrika-
legu slysi þegar hann datt af 52. hæð
úr íbúð Claptons í New York 1991 þá
á sjöunda ári. Samdi Clapton síðar
lag og hljóðritaði í hans minningu,
sem mörgum er kunnugt, Tears in
Heaven.
Del Santo ræddi samband for-
eldra drengsins í viðtali við Ent-
ertainment Tonight á CBS fyr-
ir skömmu. Slysið varð 1991 og þá
var uppstytta komin í sambandið.
Lýsti Del Santo Clapton sem þung-
lyndum drykkjubolta sem bann-
aði henni að tala nema á hana væri
yrt. Gerir hún sér vonir um að hann
hljóðriti iagið en talsmaður söngv-
arans og gítaristans vildi fátt um
málið segja við pressuna.
Clapton hefur allan sinn feril átt
við alvarlegan fíknivanda að stríða
og helgað hluta tekna sinna til að
styrkja meðferðarúrræði á Jam-
aíka. Sérfræðingar í sögu meist-
arans segja lagið grípandi og lík-
Iegt til vinsælda ráðist einhver í að
hljóðrita það.
Ný tónlist á disk ^allar Það rokk fyrir hvíta karla og því er ekki að neita að mest af rokktónlist frá
Gunni og Felix -
Lögin hans Jóns míns
Sena
★ ★★
Þeir leikbræöur
Gunnar Helgason
og Felix Bergsson
hafa dregið
saman fimmtán
lög frá ferli slnumí barnaefnis-
bransanum. öll eru þau eftirJón
Ólafsson píanóleikara en tekin upp á
nokkrum tlma. Miðað við starfsaldur
þessara pilta ætti markhópurinn að
vera býsna stór og teygja sig háttí
tvltugt. Á mínum bæ hefur þetta fallið I
góöan jarðveg, þriggja og átta ára
keyra lögin misjafnlega mikið og hátt.
Spjall trúðanna milli laga er kímið og
lifandi og byggir skemmtilega brú milli
laga sem eru afar misjöfn en öll eins og
höfundurinn, geðfelld og meiða engan
Flutningur er vandaður og ætlun
flytjenda jákvæð og góð.
Guðrún Gunnars og
Friðrik Ömar - Ég
skemmti mér i sumar
Söluhæsta plata
landsins þessa
vikuna heldur
áfram samstarfi
söngvaranna síkátu með C
Allt er þetta snurðulaust og glansandi I
gleðisvip. Lagavalið er fjölbreytilegt en
útsetningarólafs, einkum á blæstri, eru
keimlíkarog verða leiðigjarnar. Heldur
er þetta afturför frá hinum stórgóða
disk þeirra fyrr I vetur eins og hér hafi
verið unnið eftirpöntun. Safnið erþví
nokkur vonbrigði. Komi til að skellt
verði I einn diskinn til væri gaman að
sjá þetta lið leita fjölbreytilegri bragða
þar sem reynir meir ádramaðí flutningi
og gáskinn viki um stund fyrir dýpri og
dekkri tónum.
Frummenn - Tapað
rUnulO Reykjavik Music :
sjöunda og áttunda áratugnum fellur best í kramið hjá þeim sem þá voru unglingar, en
þó er alltaf eitthvað af yngri áheyrendum sem hlusta á popp þessa tíma.
Fjársjóður Bills Graham
au
Bernskufélagar
leggjast I víking
með sjóð, ný lög I gömlum stli. Þelrhafa'
vetrarsetu meö frægum jöxlum á
suðrænni slóð og úr þvl kemur fjórtán
laga diskur.
Hér sannast þrennt: Valgeir
Guðjónsson er lagasmiður afGuðsnáð,
það var mikill missir að Gylfi Kristinsson
hætti að syngja eftir 1975því hann er
einn flottasti söngvari sinnar kynslóðar
og I þriðja lagi eru stúdíókettir
Hollywood fantagóðir spilarar.
Diskurinn færlofið nóg bara fyrirleik
Carol Kaye á bassann og söng Gylfa.
Seint verða tónsmlðarnar taldar
stórkostlegt nýnæmi, en þær eru I
öðrum anda, fullarafgömlum stælum
en bornarfram afærleikog virðingu
fyrir formi sem er eins og gömlu kynnin
kær. Þetta er kurteistpopp og vekur upp
löngu liðna stemningu transistor-
viðtækjanna á eldhúsborðum með
vaxdúk.
pbb@dv.is f*
Flestir ganga út frá því sem vísu
að mest af hljóðritunum með Led
Zeppelin, svo dæmi sé tekið, hafi
komið út - Jimmy Page grét út allt
sem hann fann fyrir fáum árum þeg-
ar hann vann heildarútgáfu bands-
ins - en nýlega var tilkynnt að vest-
an hafs væri komið lag á eitt stærsta
safn fiijóðritana í einkaeign. Safnið
er í eigu 56 ára gamals bisnissmanns
og það er komið úr einu fyrirtæki:
nærri hundrað þúsund lög hljóðrit-
uð og kvikmynduð í tónleikasölum
Bills Graham í New York, San Franc-
isco og víðar, mest úr Fillmore West
og East, á árabilinu 1966 til 1991.
Samið um rétt
Og í safninu sem fyllti tuttugu og
fimm 40 feta gáma þegar það var flutt
úr geymslum Grahams, fjórtán árum
eftir að hann fórst í þyrluslysi 1991.
voru yfir milljón gripir, prentefni,
minnisgripir, hljóðbönd og filmur.
Síðan eru liðin tíu ár og mildl vinna
hefur farið í skráningu og varðveislu.
Nú eru samningaviðræður að hefjast
um útgáfu á þessu efni. Lögfræðing-
ur var í fyrri viku í London að ræða
við rétthafa sem líklegt er að beiti sér
gegn útgáfu efnisins.
Flottur listi
Graham var þýskur innflytj andi og
sem ungur maður tók hann að halda
konserta í San Francisco. Hann var
þjóðsagnapersóna og það þótti mik-
ilí heiður að hafa spilað í sölum hans.
Þar spiluðu allir: Janis Joplin, Gratef-
ul Dead, Joe Cocker, Who, SexPistols
og Madonna. Allir sem skiptu máli
komu fram í Fillmore East og bróð-
ursalnum í New York, sem var ekki
eins langlífur, og raunar mun víðar
í nafni fyrirtækja Graham.
Talið er að hann
hafi staðið
fyrir 35
und tónlelldim
á ferli sín-
Jimi Hendrix Tónleikahald hans
á vesturströndinni var að mestu
leyti á vegum Grahams og I
geymdum upptökum er að finna
margt athyglisvert efni.
um.' Þegar The Band ákvað
að halda lokakonsertinn
sinn fræga, The Last
Walz, var það í Fill-
more West.
Allt sem hönd á
festi
En rétt eins
og Graham var
harðduglegur að
halda uppi fjör-
ugu tónleikahaldi
var hann harð-
ur í samningum.
Hann krafðist þess að
hljóðrita hvern ein-
asta konsert
' og þegar á leið
að kvikmynda
þá. Svo 'virtur
var hann að
erfiðir menn
/ eins og Zappa
/ og Dylan sam-
þykktu það.
Hljómsveitin Led Zeppelin Fyrstu tónleikar þeirra vestanhafs voru ISan Francisco.
Jafnframt var hann ástríðufullur
safnari: allt sem við kom tónleikum
hans fór í safnhaug: miðar, plaggöt-
in (sem hafa um langt skeið verið
safngripir og selst dýru verði), bak-
sviðspassar, bolir, allt sem viðkom
tónleikahaldinu var geymt. Þeg-
ar Graham fórst var talið að safnið
geymdi eina milljón gripa.
Góð fjárfesting
Þremur árum síðar var allt selt
og kepptu Sagan og Paul Allen, ann-
ar aðaleigenda Microsoft, um kaup-
in. Verðið var þá 2,9 milljónir dala en
nú er það metið á 50 milljónir.
Þegar má komast í gripi úr safn-
inu á vefsetrinu www.wolfgangs-
vault.com - þar er gríðarlegt magn
minjagripa til sölu frá síðustu þrem-
ur áratugum rokksögunnar. En Sagan
er rétt að taka toppinn af safninu: sjö
þúsund tónleikar eru eftir. Raunar er
þegar farið að bjóða upp á útsending-
ar á völdum lögum úr safninu á vef-
setrinu - á þriðjudagskvöld voru
leikin þrjú lög með Pink Floyd frá
tónleikum þeirra í Fillmore West í
apríl 1970 - sem hafa hvergi heyrst
síðan - iýrr en nú.
Bill Graham og Janis Joplin
Fyrsta plata Joplin með Big
Brother andthe Holding
Company var hljóðrituð I
Fillmore.