Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 55
PV Helgin
FÖSTUDAGUR21. JÚLl2006 67
KK sendir frá sér nýja blúsplötu á næstu dögum
KK og Bragi Baggalútur í eina sæng
Hinn snjalli tónlistarmaður KK sendir á
næstu dögum frá sér nýjustu afurð sína, Blús.
Á plötunni er að finna nokkur eftirlætislög KK
sem hann hefur verið að syngja og spila á 30 ára
ferli sínum. Textarnir á plötunni eru allir á ís-
lensku og var það enginn annar en hinn snjalli
íslenskumaður Bragi Valdimar Skúlason sem sá
um að semja þá. Bragi hefur getið sér gott orð
sem einn af forsprökkum Baggalúts og sýndi
snilldartakta í textasmíðum á Köntríplötunni
Pabbi þarf að vinna sem Köntrísveit Baggalúts
gaf út á síðasta ári. í blúsbandinu hans KK eru
Guðmundur Pétursson gítarleikari, Þorleifur
Guðjónsson bassi, Friðrik Júlíusson G. trymb-
ill. Þegar KK er annars vegar þá er munnharpan
aldrei langt undan og það sama er uppi á ten-
ingnum á þessari plötu. Hann mun þó einnig
njóta aðstoðar Sigurðar Flosasonar saxafón-
leikara. Þéttir að baki honum koma Banda-
ríkjamennirnir Jim Hoke á saxófón og Neil Ros-
engarden trompetleikari, báðir frá Nashville
í Tennessee-fylki þar sem upptökur fóru fram
að hluta til. Sigurður Guðmundsson úr Hjálm-
um spilar á hljómborð. Upptökustjórn var í
höndum Guðmundar Kristins Jónssonar, sem
er þekktur sem rauðbirkinn ryþmagítarleikari
Hjálma. Upptökur fóru fram í Geimsteini og í
OMNIsound studios í Nashville í maí og júní.
KK sendir frá sér plötuna
Blús á næstu dögum
Bragi Valdimar Skúlason semur
textana á plötunni Blús en hann er
einn af forsprökkum Baggalúts
w. UTSALA A %
LINUSKAUTUM
Línuskautar
ABEC 5 legur
Stækkanlegir
St.: 27-29, 30-33, 34-36
Línuskautar
ABEC 7 legur
St.: 38-44
Línuskautar
ABEC 7 legur
St.: 37-45
Hjálmur og hlífar
Olnbogi, úlnliði & hné
SKATABUÐIN
FERÐAVERSLUN
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727
4-995
4-995
FYRSTIRKO
FYRSTIR FÁ