Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Side 17
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST2006 1 7 Augnasögur Peter Falk Leikarinn góðkunni, Pet- er Falk, sem lék lögreglumann- inn Colombo af mikilli innlifun, hefur gefið út ævi- minningar sín- ar og ber bókin nafnið „One More Thing". Þar seg- ir hann af ýmsu frægu fólki í gegnum tíðina en gagnrýn- endur eru samt hrifiiastir af sögum hans af glerauga sínu en Falk missti hægra auga sitt á bamsaldri. Eitt sinn fór Falk til augnlæknis í tékk og sá bað hann fýrst að lesa af spjaldi með vinstra auganu. Síðan því hægra. Falk sagði honum að það væri glerauga. Augnlæknirinn svaraði því með að segja: „Tja reyndu þitt besta." Janeter kynlífsfíkill Söngkonan JanetJacksoner kynlífsfíkilloghef- ur gríðarlega lyst á kynlífi. Nú seg- irbreskablaðið The Sun að hún hafiloksinsfund- ið maka sem getur haldiðíviðhana. Það er plötufiramleiðandinn Jermaine Dupri sem hún hef- ur verið með síðast liðin fimm ár. „í fýrri sambúðum mínum þurfd kærasti minn ætíð að segja við mig að taka því ró- lega. En Jermaine er til í tusk- ið hvenær sem er. Og hann veit að ég er til hvar og hve- nær sem er," segir Janet. Hún bætir því síðan við í samtali við blaðið að hún hafi loksins fundið sálufélaga sinn. m sn Naktir tónleikar Meðlimir hljómsveitar- innar Slash Bikini komu fram naktir á sérstökum tónleik- um fyrir nektamýlendu í York á Englandi um síðustu helgi. The York Press hefur það eft- ir Randy P. Rock III að þetta hafi verið nýlunda hjá hljóm- sveitinni. „Og það fer eftir við- brögðum hjá áheyrendum hvort þetta verður í eina sinn sem við komum fram naktir," segir Randy P. Andrew Welch, talsmaður „náttúrusinnana" sem halda tónleikana, segir að þeir séu hæstánægðir með ákvörðun Slash Bikini og tón- leika þeirra. Barniðreyndist páfagaukur Eldri kona í Koblenz hringdi í lögregluna og til- kynnti um að ungt bamhefðiverið skilið eftir eitt heima í næstu íbúð við sig. Sagði kon- an að hún heyrði bamið stöðugt kafla „mamma, mamma." Sagði hún lögreglunni að það væri alveg á hreinu að enginn væri í íbúðinni til að sinna baminu. Þegar lögreglan braust inn í íbúðina var þar ekkert bam að finna en til staðar var 25 ára gamall páfa- gaukur sem kaliaði stöðugt „mamma, mamma" París Hilton er eitt þekktasta nafn heimsins þessa stundina. Það er hægt að panta hana i veislu en slíkt kostar ekki undir 250.000 dollurum eða um 20 milljónum króna auk alls kostnaðar. Hins vegar er hægt að panta tvífara Parísar á vefsíðunni BubbyGram.com. Sú heitir Natalie Reid og það kostar aðeins 850 dollara að fá hana í veislu. Nú er Natalie á leið til frægðar og frama. Tvífari Parísar kemur fram nakin á opnu Playboy Natalie Reid Þénar vel á aö vera tvífari Parisar Hilton. Ritstjórar Playboy hafa lengi gengið með grasið í skónum á eftir París Hilton og reynt að fá hana til að sitja fyrir nakta í tímaritinu. París hefur hins vegar ætíð þvertekið fyrir það. Nú hafa Playboy- menn brugðið á það ráð að fá Natalie Reid tvífara Parísar til að sitja fyrir nakta á einum sex síðum í septemberhefti tímaritsins. Að sjálfsögðu mun tvífari Tinkerbell, chihuahua-hunds Parísar, vera með á myndunum. í grein um tvífara af ýmsum þekktum persónum sem birtist í New York Daily News í vikunni kem- ur meðal annars fram að brátt verði heimurinn fullur af þeim. Natalie Reid þénar vel á að koma óvænt í af- mælisveislur sem París Hilton enda er vandséð að um tvífara Parísar sé að ræða. París fékk áfall Það fylgir sögunni að París hafi boðið Natalie í heimsókn til sín og hreinlega ekki trúað sínum eig- in augum. „Hún bauð mér heim til sín í húsið sem hún á í West Holly- wood og við eyddum stund saman. Hún var í algeru áfalli, starði á mig og tók myndir af mér," segir Natalie. Hins vegar munu París og fjölskylda hennar vera síður en svo hrifin af þeim tvíförum hennar sem lifa á út- liti sínu og nafni Parísar. Ein þeirra, Chantelle Houghton, vann í raun- veruleikaþættinum „Celebrity Big Brother". Aðrir tvífarar hafa fengið fría drykki í Saint Tropez, VlP-með- ferð í Disneylandi og svítur á Four Seasons-hótelinu á Maui. Lögfræðingar kallaðir til Einn af vinum Parísar segir að þetta sé eitt form af einelti. „Fjöl- skyldan hefur þurft að kaupa sér lög- fræðiaðstoð til að halda þessu fólki á mottunni," segir hann. Og ekki má líta framhjá þeirri staðreynd að Par- ís á í vandamálum með hneyksli á eigin vegum svo ekki er bætandi á þegar þessir tvífarar hennar gera eitthvað af sér og fólk tel- ur að raunverulega útgáfan hafi verið þar á ferð. Vinsælt Sem fyrr segir er Natalie Reid á skrá hjá Bobby- Gram.com sem sér- hæfir sig í að útvega tvífara fræga og ríka fólksins fyrir alls konar uppákomur. Adrienne Gusoff, eigandi Bobby- Gram, segir að nóg sé að gera fýrir sitt fólk. „Allir vilja fá Joan Rivers þeg- ar Óskarsvikan er í gangi," segir Adri- enne. „Ogvið eigum fullkominn tvífara Mariuh Carey. Verst að sú getur ekki sungið fyrir fimm aura." Við bíðum spennt eftir Playboy í september. r, Playboy Reid mun sitja nakin fyrir I Playboy á næstunni. París Hilton Varð fyrir áfalli þegar hún hitti tvifara sinn. Mannanafnanefndin í Malasíu hefur hert á reglunum Ekki má nefna börn 007, Hitler eða Hundslykt Mannanafnanefnd Malasíu hef- ur birt lista yfir nöfn sem nefndin telur óæskilegt að foreldrar nefni börn sín. Á listanum eru nöfn á borð við 007, Hitler og Hundslykt. Að sögn BBC var ákvörðun um þetta tekin að höfðu samráði við mismunandi trúarsamtök landsins, múslima, hindúa, búddista, kristna og taóista. Samkvæmt hefðinni hafa sumir af þessum trúarhópum leýft foreldrum að nefiia börn sín ýms- um skrítnum nöfnum til að halda draugum og djöflum í burtu. Nú er ætlunin að draga úr því eins og unnt er. Meðal þeirra nafna sem eru sett í bann má nefna hið kínverska „Ah Chwar" sem þýðir snákur og „Khi- ow Khoo" sem þýðir krypplingur. Kantóníska nafnið „Sor Chai" sem þýðir geðveikur og malasíska nafn- ið „Woti" sem þýðir samfarir. Þar að auki er foreldrum nú bannað að nefna börn sín eftir dýrum, skordýr- um, ávöxtum og litum. Og eitt enn nýmælið er að finna í hinum nýju reglum mannanafha- nefridar. Nú verður bannað að nefna böm með tölum eins og tíðkast hef- ur í einhverju mæli. Svo nú geta litl- ir James Bondar framtíðarinnar ekki skartað 007 á nafnskírteininu sínu. Og foreldrum er ekld lengur heim- ilt að nefna böm sín eftír japönskum bílategundum. Malasfubúar Fá nú mun strangar reglur um hvaö börn þeirra mega heita.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.