Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Page 38
50 FÖSTUDACUR 4. ÁGÚST2006 Helgin PV Sólveig Kristbjörg Bergmann fréttakona fann ástina á húsþaki þar sem málari var við vinnu sína. Hún var ekki lengi að bregðast við þessum tilfinningum sínum og réði málarann til þess að mála heima hjá sér án þess að á því væri sérstök þörf. Eftir það var ekki aftur snúið og ástin hefur blómstrað síðan. Sólveig er hamingju- söm með manni sinum í miðbænum en kvíðir svolítið ellinni. Lítil stelpa skokkaði um Þingholtin með hundana sína. Flest hús- anna voru tóm, íbúar þeirra fluttir í nýbyggt Breiðholtið. En mamma stelpunnar ætlaði ekki þangað. Hún ætlaði að vera áfram í miðbænum og vann að endurbótum hússins með eigin höndum og aðstoð íjölskyldunnar. Stelpan sá og skynjaði að kon- ur gætu allt og er nú sjálf í þeim sporum að gera upp hús í Þing- holtunum. Orðin fullorðin og vel þekkt fréttakona. Sólveig Kristbjörg Bergmann er jafn glcesileg þar sem hún situr af- slöppuð á kósí kafjihúsi á miðjum Laugaveginum í úrhellisrigningu og hún er á sjónvarpsskjánum. Hefur vakið athyglifyrir það að geta komið persónutöfrum sínum ígegnum skjá- inn, nokkuð sem ekki öllum tekst. „]ú, jú, ég er ábyggilega í einhverju hlutverki í sjónvarpinu eins og flestir aðrir," segir hún brosandi. „Hlutverk fréttamanna er að miðla upplýsing- um og óhjákvæmilega hljótum við að setja okkur í ákveðnar stellingar, meðvitað eða ómeðvitað. Hins veg- ar horfi ég aldrei á sjálfa mig í sjón- varpi." Hundar og hamingja Sólveig var svo heppin að alast upp á heimili í miðbcenum, þar sem þrjár kynslóðir bjuggu saman. „Mamma mín, Þuríður Berg- mann, vann úti - og vann mikið - sem útstillingarhönnuður í annarri hverri verslun á Laugaveginum. Á heimilinu vorum við þrjú systkin- in, bræður mínir Oddur og Valtýr og móðuramma mín, María Helgadóttir frá Patreksfirði. Ég kom því aldrei að auðu húsi. Amma beið gjarnan eft- ir mér með eitthvert góðgæti eins og steiktur blóðmör með sykri! Amma var alvörugefin, hló ekki mikið en þegar hún hló var það frá hjartanu svo unun var á að hlýða. Hún var ekki mikið að kjassa mig, en ég fann hlýj- una og ástina frá henni. Það var mikill gestagangur á heimilinu og mikið líf. Þetta voru mjög skemmtileg æskuár. Ég saknaði þess aldrei að eiga ekki pabba þótt við værum engin „Gagn og gaman" fjölskylda. Kannski hef- ur það haft einhver djúpstæð áhrif á mig sem ég geri mér engan veg- inn grein fyrir!" segir hún hlæjandi. „Pabbar vinkvenna minna voru mér afskaplega góðir og ég hafði ekki yfir neinu að kvarta." Aðrir íbúar voru í húsinu, tveir la- bradorhundar, en Sólveighefur aldrei verið án þess að eiga dýr. „Alls hafa verið sextán hundar á heimili mömmu og ég hef alltaf átt hunda. Þegar ég fór til háskólanáms í Bandaríkjunum var ég líka svo hepp- in að einum íbúanna sem ég leigði með fylgdi rottweiler-hvolpurinn Óðinn og ég gerðist uppeldismóð- ir hans. Eitt það erflðasta við að fara heim aftur var að kveðja Óðin." Kvíðvænlegt að eldast Á ceskuárum Sólveigar skiptust Þingholtin við Skólavörðustíginn. Henni þóttu Njálsgata og Grettisgata ógnvcenlegar götur og neitaði afþeim sökum að fara í Austurbcejarskólann. „Núna bý ég hins vegar við Njáls- götuna og firmst hún yndisleg!" seg- ir hún hlæjandi. „En ég fór sem sé í ísaksskóla, Melaskóla, Tjamarskóla, Verzló og fékk svo fullan námsstyrk við Macalester-skólann í borginni St- .Paul í Minnesota, þaðan sem ég lauk BA-prófi í mannfræði og alþjóðafræð- um." Sólveig gat alveg hugsað sér að setjast að í Bandaríkjunum. Að námi loknu fékk hún starfvið að sinna ungl- ingum, sem komu afbrotnum og erf- iðum heimilum, bömum sem búið höfðu við heimilisofbeldi. „Það sem réði úrslitum um að ég vildi flytja heim aftur var að ég gat ekki hugsað mér að verða göm- ul kona í Ameríku," segir hún. „Það var æðislegt að kynnast og upplifa það sem kallast upper-middle-class Ameríka en ömurlegt að vera hin- um megin. Reyndar finnst mér núna kvíðvænlegt að eldast á fslandi. Við eigum eitt elsta samhjálparkerfi heims, en það er til skammar hvern- ig við förum með gamalt fólk. Langar einhvern að lifa á þeim tekjum sem öldruðum er gert að lifa af hér? Deila herbergi með ókunnugum og fá að fara í bað einu sinni í viku á stofnun? Þarna þarf að gera miklu betur. Ég hlakkaði hins vegar alltaf til að verða þrítug, sá fyrir mér að fertugsaldur- inn væri skemmtilegur. Nú er ég að verða 35 ára og fmnst þetta hafa ver- ið rétt mat hjá mér.” Sjónvarpið Sólveig hefur alltaf haft áhuga á fréttum og vissi snemma hvað hún vildi verða. Komplexar unglingsár- anna gerðu það hins vegar að verk- um að hún sá ekki alvegfyrir sér að hún gceti orðið fréttakona eins ogfyr- irmyndirnar. „Sem bam horfði ég með aðdá- un á konur eins og Sigrúnu Stefáns- dóttur og Sigurveigu Jónsdóttur flytja fréttirnar og hermdi eftir þeim," segir hún brosandi. „Ég hélt lengi að öll- um þætti jafn eftirsóknarvert og mér að vinna við fréttir í sjónvarpi og varð hissa að komast að því að ekki höfðu allir jafn mikinn áhuga á fféttum. Mér fannst sjónvarpsheimurinn rosalega glamúrus - þangað til ég fór að vinna í honum! Vinna mín í dag á NFS er í raun meiri á bak við vélamar en fýrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.