Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Blaðsíða 49
PV Helgin FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST2006 61 Kvennabarátta í leikhúsinu sömu spurningar, sömu vandamál, þó á stundum takist femínisman- um að færa stöðuna örlítið fram. Það tekst að koma einhverjum nýjum lögum í gegn en svo gengur allt ein- hvem veginn til baka, tvö skref áfram og svo allt í einu eitt til baka. Það hafa náttúrulega gerst ótrúlegir hlutir á skömmum tíma ef við lítum á árang- urinn í Ijósi sögunnar en maður get- ur líka orðið alveg vitlaus yfir því sem ekki gerist. Lífsmynstrið hefur hnikast til um 10 ár og við höfum fengið nýja kyn- slóð núna sem hugsar öðruvísi, alla- vega í Svíþjóð, konur sem eru um það bil þrítugar þegar þær eignast börn." Konur eru bara beib „En ég held að þær lendi í því sama sem ég gerði þegar ég var 21 árs og byrjaði að vinna sem blaða- maður á AJFtonposten og uppgötvaði hve mikið óréttlætíð var. Eg hélt að allt væri fullkomið og ég held að það sé til kynslóð sem finnst að þetta sé allt klárt, en það er það ekki. Samtímis má segja að við, sem erum svona hálfri kynslóð eldri, okkur finnst að allt sé miklu betra á formlega planinu. Hærri barnabæt- ur, lengra fæðingarorlof, betri stuðn- ingur við barnafjölskyldur og margt hefur gerst. En svo er þessi hrikalega hlutgerving konunnar sem viðgengst í dag, konur eru bara beibs. Frelsinu og frjálsræðinu sem hefur áunnist fylgir óneitanlega skuggalegri bak- hiið, sem felst í einhvers konar kyn- ferðislegu varnarleysi." Útlit ræður „Konur eru hlutgerðar og dæmd- ar af útliti sínu á einhvem hátt sem hefði verið óhugsandi á áttunda ára- tugnum. Auðvitað hefur útlitið allt- af skipt máli og mannkynið mun alltaf vera upptekið af því en þá var ekki þessi hrikalega „fiksering" lýta- lækningar á brjóstum og mjöðmum, maga og lærum. Eg held líka að kynferðislegt of- beldi hafi verið minna þá. Kynferð- islegt ofbeldi og nauðganir aukast í Svíþjóð, óöryggi eykst á götum og opinberum stöðum. Lögin eru aftur á móti strangari og kærur fleiri. Ef- laust var eitthvað um ofbeldi sem var þagað í hel hér áður fýrr en aukning- in er samt ógnvekjandi." Sögur um konur vantar Það er þá ennþá þörf fyrir kven- réttindabaráttu í leikhúsinu? „Ég fæ þá spurningu tiltölulega oft nú til dags hvort eitthvað hafi breyst til bamaðar á þessum 30 árum. Mér finnst ég ekki vera neitt sérstök „orakel" eða verðsetjari á það, en þörfin fyrir að segja sögur sem snerta konur er til staðar. Ég kalla mig reyndar ekki kvenrit- höfund heldur leikritaskáld sem af tilviljun er kona og því fylgir ákveð- ið sjónarhorn. Rétt eins og karlkyns rithöfundur skrifar út frá sjónarhorni karlmanns." Ósamræmi kynja „Þegar ég byrjaði að skrifa voru nánast ekki til nein bitastæð kven- hlutverk í samtímaleikrirnm. Ég hef því reynt að skrifa stór hlutverk fyr- ir konur og hef skrifað ein 13-14 slík enda skrifað ansi mörgt leikrit. Til dæmis er afar stórt kvenhlutverk í Til Júlíu, leikriti sem hefur verið sett á svið um allan heim og lék Bibi And- erson það hlutverk fýrst. Annað stórt kvenhlutverk er í Allir dagar, allar nætur (Alla dagar, alla natter), og er það risastórt auk þess að hafa mörg önnur kvenhlutverk. Auðvitað eru karlar líka með en þeir eru yfirleitt í minnihluta. Það voru miklar andstæður hér áður fýrr, eins og í öllu öðru voru það konurnar sem sinntu menning- unni, en það var ekkert samræmi milli þess sem var á sviðinu og þeirra sem sátu í salnum. Konur voru í leik- ritum; ömmur, drottningar eða snill- ingar, madonnan og hóran um það bil. Ég hef þannig litíð á það sem hlutverk mitt sem leikritahöfundar að skrifa fýrir konur, ekki að það hafi verið neitt trúboð heldur hefur það bara orðið þannig." Kvenlæg samfélagssýn Hefur nýjasta leikritið þitt Limbo, sem gengur líka mjög vel, þetta kven- lega sjónarhorn? „Já, Limbo var frumsýnt í Borgar- leikhúsinu í Stokkhólmi í mars 2003 og hefur gengið frábærlega. Leikritið hefur verið sýnt í Danmörku og það er verið að æfa það í Færeyjum og undirbúa sýningar á nokkrum öðr- um tungumálum. Leikritið fjallar um feimnismál í Svíþjóð, sem sjaldan er til umræðu, konur og eiturlyf, sérstaklega kon- ur og áfengi. Það hefur verið skrifað talsvert af leikritum um karlmenn og áfengi, frægast er væntanlega Horfðu reiður um öxl. í þeim leik- ritum er gjarnan talað um tilvi- starkreppu karlmanna, þynnkan og fylleríið verður tilvistarkreppa, sem sagt stórvandamál á ferðinni upp á líf og dauða. Eg vildi brjótast í gegnum þetta þagnarbindindi gagnvart drykkju kvenna, því áfengisdrykkja eykst hratt meðal kvenna í Svíþjóð og ég hef sjálf átt við vímuefnavanda að etja svo að ég þekki fyrirbærið vel. Síðan vildi ég líka skrifa um konur á mismunandi aldri, allt frá ríku pelsa- drottningunni, sem brennir niður hálfan herragarðinn á fýlleríinu, til ungu stelpunnar, sem er sprautufík- ill og á hvergi heima." Sterkur leikhópur „Ég var svo heppin að það voru ótrúlega margar góðar leikkon- ur sem vildu taka þátt í þessu verk- efni þannig að ég fékk alveg rosalega sterkan leikhóp í hendurnar. Með- al annarra var Tuva Novotny með, sem í dag er nánast í öllum nor- rænum kvikmyndum. Ég hafði alla bestu leikarana þannig að þetta gat eiginlega ekki klikkað. En þetta er líka svona stykki þar sem áhorfend- ur geta bæði hlegið og grátið og það virkar líka og svo skapaðist heilmikil umræða í kringum leikritíð og efni- viðinn. Limbo var líka sýnt í Þjóðleik- húsinu í Osló í vetur og svo var það þessi sýning í Danmörku. Það gengur vanalega ekki vel hjá mér í Danmörku, Danir eru alltaf svo kvik- indislegir við mig en í þetta skipti gekk vel, þeir sögðu meira að segja að þetta væri jólagjöf Svía til Dana." Þú leikstýrir ekki þessum svið- setningum í Danmörku og Noregi er það? „Nei, égleikstýri mínum leikritum bara í fyrsta sinn og svo má einhver annar taka við og gera sína útgáfu finnst mér, en ég hef leikstýrt leik- verkum annarra, sérstaklega Ibsens, bæði í leikhúsi og fýrir sjónvarp. Til dæmis leikstýrði ég Heddu Gabler með Lenu Endre, sem kannski hefur verið sýnt hér. Ég er nokkuð stolt af þeirri sviðsetningu, maður er sjaldn- ast ánægður með það sem maður gerir, en ég er stolt af Heddu." Nýtt leikrit væntanlegt Hvað er framundan á næstunni? „Þegar ég kem heim til Stokk- hólms um mánaðamótin byrjum við æfingar á nýju stykki sem ég hef skrifað, fjölskyldudrama eða blanda af drama og kómedíu. Ég hef skrifað mörg fjölskylduleikrit og þetta heitir Ég elska þig líka (Jag alskar dig ock- sá). Það fjallar um fjölskyldu sem sameinast eftir 20 ár, hann og hún hafa ekki sést í 20 ár. Ein dóttírin ætl- ar að fara að gifta sig og fjölskyldan hittist á hóteli á Kanaríeyjum þar sem brúðkaupið á að fara fram. Þetta fjallar um fjölskyldu í krísu, eða krísu fjölskylduhugtaksins." Einhvers konar fjölskylduupp- gjör? „Ja, nei, þau hafna í sama rúmi, þetta er skemmtilegt. Það eru nokkur vandræðamál þarna sem ég vil stínga á. Til dæmis hvað gerist hjá börnun- um þegar þau hafa verið skilnaðar- börn allt sitt líf og pabbi og mamma taka upp á því að vera aftur saman. En þetta fjallar líka um það hvort hægt sé að stöðva tímann. Snúa aft- ur til baka tíl þess sem áður var og hvort það sé hægt að verða ungur aftur. Draumurinn um fjölskylduna gagnvart raunveruleikanum sem við lifum í." Trúin og lygin læðast inn í textann Þú ert gjaman talin trúuð, er Guð í þessum raunveruleika? „Já, það má segja að ég sé trú- uð, ég las trúarbragðasögu á mínum yngri árum og ég á meira að segja dóttur sem er prestur. Já, ég á í góðu sambandi við guð.“ Hefur trúin einhverja birtingar- mynd í leikritum þínum? „Já, bæði í Til Julia og Alla dagar, alla natter, er fjallað um leyndarmál- ið, ég er undir áhrifum frá Ibsen, þú skilur, hann er minn húsguð, guð við hliðina á Guði, þú veist Henrik og ég. Þetta með lífslygina, lygin hefur allt- af vakið áhuga minn og ég trúi því að sannleikurinn hafi siðfræðilegt gildi. Ef maður leitar ekki eftir sannleik- anum eða sleppir honum lausum þá hefnist manni fyrir það. Þannig að á þann hátt er boðskapur í mín- um leikritum, sannleikurinn ger- ir ykkur frjáls. En ég geri ekki upp á milli sannleika mannanna, ég er ekki neinn bókstafstrúarmaður eða trúuð á þann hátt, en Guð er stundum góð- ur vinur." Getur maður þá séð eitthvert samband milli lyginnar og vímu- efnavandans til dæmis í Limbo? „Einmitt, Limbo fjallar jú á yfir- borðinu um eiturlyf og áfengi, en það er líka hægt að lesa leikritið sem metafór um lygina, því það er ekk- ert sem gerir fólk falskara bæði sem persónur og hreinlega í heild sinni. Virkur alki getur selt mömmu sína án þess síðan að viðurkenna að hún sé seld. Alkinn trúir lygi sinni eins og hún væri sannleikur. Það má líka lesa Limbo eins og sögu úr nýja testa- mentinu, stelpurnar tólf í meðferð- inni eru eins og postularnir og með- ferðarfulltrúann Bettý, sem kemur full úr fríinu og pissar á gólfið er hægt að lesa sem Jesú-fígúru." Langar að vinna meira í kvikmyndum Þú hefur líka unnið að kvik- myndagerð? „Já, talsvert og ég vildi gjarnan gera meira af því, ég er nefnilega góð í því. Eiginlega held ég að ég passi betur í kvikmyndagerðina en leik- húsið því að skapgerð mín hentar betur í kvikmyndavinnu. Ég er svo- lítið óþolinmóð manneskja. Leik- húsið krefst mun meiri þolinmæði, sjötta og sjöunda æfingavikan er mér stundum hrikalega erfið. En ég hef unnið við heimildamyndagerð og svo hef ég gert tvær stórar drama- tískar myndir. Ég er núna með verkefni sem ég hef viljað gera í nokkur ár. Ástæðan fýrir því að ég vinn ekki meira með kvikmyndir er líklega sú sama og hjá flestum öðrum kvikmyndagerð- armönnum. Kvikmýndir eru 10% innblástur og 90% svití. Ég hef skrif- að nokkur góð kvikmyndahandrit, allavega betri en mörg sem verða að veruleika, sem hafa verið nálægt því að fá fjármögnun og fara í fram- leiðslu. En ég hef ekki efni, tíma né þolinmæði tíl að bíða og elta ólar við styrkjakerfið. Það endar alltaf með því að ég verð að skrifa leikrit og vinna í leikhúsinu." „Ég verð að sjá fyrir mér" „Ég er bara iðnaðarmaður í garði herrans. Það er miklu erfiðara að ná í fjármagn í kvikmyndir en að kom- ast áfram með hlutína í leikhúsinu, allavega hefur það verið þannig fyr- ir mig. Kannski hef ég valið auðveldu leiðina en um leið má segja að mér hefur tekist að skrifa fullt af leikritum og fá þau sett upp. En ég er sem sagt með mjög skemmtilegt og spenn- andi verkefni í gangi núna um Krist- ínu Svíadrottningu, sem ég ætla að leggja mikla orku í þó svo að það sé ekkert öruggt með fjármögnun enn þá." Er ekki mikill munur á því að sitja ein yfir skriftum og vinna sem leik- stjóri innan um fullt af leikurum og leikhússtarfsmönnum? „Jú, það eru verulega ólíkar að- stæður, en ég myndi ekki geta unn- ið eingöngu við skriftír. Ég er mjög félagslynd manneskja og mér líð- ur vel innan um fullt af fólki, ég fer í gott skap. Mér líður líka vel þegar ég er verkstjóri því ég er góður verk- stjóri. Ég er nefnilega svo löt að ég læt alla fá nóg af verkefnum og geri fólkþannig stórt, fæ alla til að finnast þeir mikilvægir. Það er stundum gott að vera löt." Hvemig litist þér á að setja upp eitthvert verka þinna hér á íslandi? „Mér þætti afskaplega gaman að því, annað hvort Limbo eða, jafnvel eitthvað eftír einhvern annan, helst Ibsen. En ég mun allavega koma hingað aftur." kormdkur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.