Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Qupperneq 57
DV Sjónvarp
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST2006 69
Hellnum sem sennilega er minnsta
kaffihús landsins. Þar er rætt við
Sigríði Pétursdóttur sem hefur látið
finna sig í fjöru síðustu tíu árin eða
svo.
Skjár Einn kl. 22.30 - Sleeper Cell
Framhaldsmynd í tveimur hlut-
um byggð á samnefndri metsölu-
spennusögu. Brooke Shields leikur
farsælan lögfræðing sem hefur ein-
beitt sér að réttíndabaráttu kvenna.
Það kemur því flatt upp á hana þegar
vellauðugur byggingarverktaki ræð-
ur hana sem lögfræðing sinn og býð-
ur fúlgur fjár að launum. Skömmu
síðar eru þrjú morð framin á bygg-
ingarsvæði í eigu nýja viðskiptavin-
arins og hann liggur sterklega und-
ir grun. Hefur lögfræðingurinn ungi
ráðið sig til að verja fjöldamorðingja
eða er verið að reyna að koma sök-
inni á hann? Seinni hlutinn er sýnd-
ur þriðjudaginn 8. ágúst.
Stundum fæ ég áhyggjukast út af
gömlu Gufunni. Ég veit að það
er rosalega hugguleg stemning
í Efstaleitínu. Þar rölta yfirmennirn-
ir um og eru kumpánlegir við háa
sem lága, þekkja alla með nafni. Gott
ef þeir fara ekki um á inniskónum.
Mórallirm er sem sagt góður - á báð-
um rásum.
Það sem stressar mig er hvað
margt ágætisefni sem er á Gufunni
fer lágt. Rúwarar eru eins og margir
aðrir menn sem vinna á fjölmiðlum
dálítíð sjálfliverfir. Þeir lialda að all-
ir hlusti bara á þá og enga aðra. Þess
vegna fer kynning á merkum dag-
skrárliðum bara fram á þeirra eigin
rás og er í skötulíki í öðrum miðlum.
Aldrei er Gufan kynnt almemiilega
í ríkissjónvarpinu. Hvað þá að þeir
auglýsi sitt efni í öðrum miðlum:
hefur einhver séð breiðsíður með
andlitum þeirra sem sjá um Speg-
ilinn, Víðsjá eða Samfélagið í nær-
mynd? Ónei.
Kynningarfulltrúi Gufunnar hef-
ur hvorki heyrst né sést í manna
minnum, líklega trúr þeirri stefnu
að menn skuh vinna verk sín í hljóði
og ekki láta mikið á sér bera. En það
dugar ekki fyrir fólk í kynningar-
bransanum. Það verður að vera sýni-
legt.
Þegar maður skoðar sig í kjölinn
rennur upp ljós: áhyggjur af slakri
kynningu á dagskrá RUV eru sprottn-
ar af búmennsku. Ef við skattborgar-
ar erum að kosta stórum fjárhæðum
í rekstur af þessu tagi viljum við eðli-
lega að fjárfestíngar okkar skili sínu.
Nái eyrum sem flestra. Það er slakur
rekstur að standa í mikilli þáttagerð
sem fáir vita af.
Úrvalsefni Gufunnar á að kynna
með öllum ráðum. Allir vita hvenær
Eiginkonurnar eru á dagskrá, Gísli
Einars, Formúlan eða Lost. Færri
vita af merkilegum hlutum eins og
spennutrylli Ama Þórarinssonar,
Tíma nornarinnar, sem nú er í gangi
á Gufunni.
Þessu mættu ráðamenn á RÚV
kippa í liðinn af alkunnri röggsemi.
Sirkus kl. 21.50- Sorgmæddur
Superman fær samkeppni
í þættínum í kvöld kemst Clark
að því að nýja fréttakonan á The Da-
ily Planet sem heitir Maya er í raun-
inni grímuklædd hetja í hefndarhug.
Hún berst gegn glæpum á næturnar.
Það er Denise Quinones sem leikur
Maya en hún er fyrrverandi ungfrú
alheimur. Clark byrgir inni sorg sína
og reiði og það verður honum næst-
um því að falli.
Ríkissjónvarpið ki 18.10- EMI
frjálsum
Sj ónvarpið sýnir beint frá Evrópu-
meistaramótinu í frjálsum íþróttum
sem fer fram í Gautaborg að þessu
sinni. Sýnt verður frá fjölmörgum at-
burðum. Þar á meðal úrslitum í 20
km göngu, langstökki, 100 og 10 km
hlaupi karla og sleggjukasti og sjö-
þraut kvenna. Einnig 100 metra og
800 metra lilaupi. Hástökki kvenna,
kúluvarpi, 100 og 400 metra hlaupi
karla. Síðast en ekki síst, 400 metra
grindahlaupi en þar keppir Silja Úlf-
arsdóttír.
Arte (Digital Island) kl. 20.40 -
Gömul og elskast kinnroðalaust
Heimildarmynd frá þýsku stöð-
inni ZDF um eitt af dulsmálum allra
tíma, ástalíf aldraðra. Mýndin er 52
mín. og verður endursýnd þann 9.
ágúst kl. 14.40. Hún byggir meðal
annars á viðtölum við eldra fólk sem
er tilbúið að ræða kynlíf sitt af hrein-
skilni og gamansemi. Á eftir henni er
Hér er á ferð fimmta þáttaröð-
in sem framleiðendur hafa lofað og--
breska pressan hefur staðfest að er
svæsnari og svakalegri en allar þær
fyrri. Tanya Turner er mætt á svæð-
ið og lendir strax í stríði við hinn
illskeytta tímaritsritstjóra Evu de
Wolffe. Og bitbeinið er að sjálfsögðu
kærastinn hennar Evu, hinn dular-
fulli Paulo. Fjörið er lofandi því hér
eru á ferðinni konur sem eru þaulw
vanar að leika kaldrifjaðar tíkur.
Nýlega hófust sýningar á þáttun-
um Sleeper Cell á Skjá Einum en þeir
fjalla um hryðjuverkamenn og bar-
áttuna við þá. Þættirnir fjalla einnig
um baráttu ólíkra trúarheima. í þætt-
inum í kvöld uppgötvar Farik að pen-
ingasendingin frá Mexíkó var heldur
minni en búist var við. Farik, Darwyn
og Christían fara yfir landamærin til
Tijuana og reyna að finna út hvemig
þeir geta lagað peningamálin.
Ríkissjónvarpið kl. 22.45 -
Villingagarðurinn
National Lampoon's Animal
House markaði endurkomu ungl-
ingamyndanna og setti John Land-
is á blað sem nýstárlegan og djarf-
an leikstjóra. Myndin er gamalkunn
og hefur kúlt-status fyrir ruddaleg-
an húmor. Unglingahúmorinn var
með þessari mynd kominn á stall og
Punked, Strákarriir og keimlíkt efni á
rætur sína að rekja í þessa fjörmiklu
skemmtun. Meðal leikenda eru John
Belushi, Tim Matheson, John Vern-
on, Verna Bloom og Tom Hulce.
Mánudagur 7. ágúst
Stöð 2 kl. 21.05- Gone But Not
Forgotten - Horfinn en ekki
gleymdur
bandarísk heimildarmynd sem fjall-
ar um sama efni en þessi tvíbaka er
hluti af þemakvöldi Arte þessa vik-
una.
Miðvikudagur 9. ágúst
Sföð 2 kl. 21.20 - Footballers'
Wives - Ástir í boltanum
Þriðjudagur 8. ágúst
FÓTBREMSAN GÓÐA
vinsœlu dönsku götuhjólin
komin aftur
HÆLLUR™
..leinumgrænum
KILDEMOES
G. Tómasson ehf • Súðarvogi 6
• sími: 577 6400 * www.hvellur.cöm
* hvellur@livellur.com
i