Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Page 59
SKRÁNING Á NÝJA NÁMSÖNN ER HAFIN SÖNG- OG GÍTARNÁM Þaö er hópur valinkunna tónlistarmanna og söngvara sem sér um kennslu hjá Tónvinnsluskólanum. Hægt er að velja úr fjölbreyttum söngnámskeiðum og námskeiðum í gítarleik, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið Söngur og framkoma er í höndum Selmu Björnsdóttur. Þetta vinsæla námskeið sem nú er haldið í fjórða sinn, kemur inn á söng, framkomu og söng í hljóðveri. Námskeiðið hentar þeim vel sem hyggjast þreyta áheyrnarprufur fyrir söngleiki og sjónvarpsþætti á borð við Rock Star og Idol. Barna- og unglinganámskeiðið verður á sínum stað í Tónvinnsluskólanum en það hefur notið mikilla vinsælda síðustu misseri. Um er að ræða skemmtilegt námskeið fyrir yngri kynslóðina þar sem upprennandi söngvarar fá leiðsögn frá Heiðu Ólafsdóttur. Ein ástsælasta söngkona landsins,Andrea Gylfadóttir, verður í annað sinn með námskeið í jazz og bluessöng. Þetta námskeið er fyrir lengra komna, t.d. fyrir þá sem hafa klárað "söngur og framkoma" eða samskonar námskeið, eða vilja gera alvöru úr söngkunnáttu sinni. TÓNVINNSLUNÁM Til að annast tónsmíðar, útsetningar, hljóðritun og eftirvinnu þarf þekkingu, einbeitingu og útsjónarsemi. Á aðalnámsbraut Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna er leitast við að gera nemendur fullfæra um að semja eigið lag og koma því frá sér fullunnu. Nemendur fá ítarlega leiðsögn á Pro Tools og Reason samhliða lagasmíðum og er farið í kjölinn á því sem þarf að vera á hreinu varðandi öll helstu tækniatriði hljóðversins. Að námsbrautinni lokinni ætti hver og einn að þekkja upptökuferlið frá grunni. Hljóðupptökuhluti námskeiðsins fer fram í einu glæsilegasta hljóðveri landsins; Sýrlandi. Samhliða greinargóðu hljóðupptökunámi eru lagasmíði og upptökustjórn gerð rækileg skil. Nemendur fá nákvæmar leiðbeiningar um helstu atriði þessa krefjandi sviðs frá nokkrum af fremstu hljóðversmönnum landsins. VjlLdNeiKdrdí IlJULd itMU^ayuai ua viym jiioz v ly iuz>oyi ii (írafár) og Gunnari Þór Jónssyni (Sól Dögg) og fleirum. Byrjendur sem og lengra komnir njóta góðs af reynslu þessara manna en farið er yfir helstu atriði gítarleiks og nokkur þekktustu rokklög sögunnar tekin fyrir. FARÐU A TONVINNSLUSKOLI.IS OG VELDU ÞER NAMSKEIÐ \ 1 & M T \ V J T ON VIN NSLUSKOLI ÞORVALDAR BJARNA Skráningarsími: 534 9090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.