Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Blaðsíða 39
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 59
Árið er 2001. Berglind Ásgeirs-
dóttir stendur á tímamótum. Hún
ákveður, ásamt eiginmanni sín-
um, að kaupa verslunarhúsnæði í
Brekkuhúsum í Grafarvogi og stofna
þar tískuvöruverslun. Hún fékk nafn-
ið Zikzak og nú rúmum fimm árum
og jafnmörgum verslunum síðar við-
urkennir Berglind að þetta hafi ver-
ið ævintýri líkast. Zikzak-búðirnar
hafa sprottið upp eins og gorkúlur
og óhætt að segja að íslenskar konur
hafi tekið þessum verslunum opn-
um örmum enda hafa þær gert þeim
kleift að kaupa vönduð og falleg föt á
góðu verði.
Ótrúlegar viðtökur
„Þetta hefur verið rússíbana-
ferð ffá því að við opnuðum fyrstu
búðina í Brekkuhúsum. Viðtöioim-
ar hafa verið ótrúlegar hvar sem við
höfum opnað verslun og skiptir þá
engu hvort það hefur verið í Hamra-
borginni í Kópavogi, Firðinum í
Hafnarfirði, í Keflavík, Mörkinni eða
á Selfossi," segir Berglind um þessa
tískuverslanakeðju sem hefur svo
sannarlega vaxið fiskur um hrygg á
þeim fimm árum sem liðin eru ffá
því að fyrsta búðin leit dagsins ljós.
„Mér finnst ég aldrei
vera að vinna. Þetta er
allt svo gaman. Allt frá
því að berjast við karla
um fisk á markaði eld-
snemma á morgnana til
þess að selja heldri kon-
um föt á góðu verði."
Ódýrt og fallegt
Berglind segist alltaf hafa haft
skýra sýn á það hvernig búðin ættí
að vera, jafnvel áður en byrjað var.
„Mér fundust föt of dýr á fslandi auk
þess sem mér fannst vanta fleiri val-
kosti fyrir konur sem eru ekki litlar
og grannar. Markmið mitt hefur allt-
af verið að vera með stærðir fyrir all-
ar konur. Síðan hef ég kappkostað að
fötin séu ekki of dýr. Þetta hefur allt-
af átt að vera búð þangað sem kon-
ur geta dottíð inn af götunni tíl að
kaupa flík án þess að finna verulega
fyrir því fjárhagslega.
Þetta hugarfar ásamt því hversu
heppin við höfum verið með starfs-
fólk hefur gert það að verkum að ár-
angurinn er eins og raun ber vitni.
Þetta er eins og ein stór fjölskylda.
Starfsfólkið á hvert bein í okkur og
fastakúnnahópurinn er stór. Síðan
hjálpa bæði börnin okkur. Það eru
allir í þessu saman sem gerir þetta
svo skemmtilegt," segir Berglind.
Þakklát fyrir að vera á lífi
Velgengni er þó ekki sjálfgefin og
því komst Berglind að einn nóvem-
bermorgun árið 1997. Hún var þá á
leið til vinnu á bíl sínum. Ekki vildi
betur til en að bíllinn rann til, lenti
á staur og fór síðan inn í strætóskýli.
Berglind hálsbrotnaði í árekstrinum
og bíllinn gjöreyðilagðist.
„Ég er svo þakklát í dag fýrir það
að fá annað tækifæri. Þeir kalla þetta
brot á milli lífs og dauða. Það var
annar hryggjarliðurinn sem brotn-
aði. Ef sá fyrstí hefði brotnað hefði ég
dáið samstundis. Það er sá hryggjar-
liður sem brotnar þegar fólk hengir
sig. Ef þriðji hryggjarliðurinn hefði
brotnað hefði ég lamast niður úr.
Þannig að ég er gríðarlega hepp-
in, bæði að vera á lífi og ekki löm-
uð," segir Berglind sem fór á Reykja-
lund í endurhæfingu og hófst strax
handa við að koma sér aftur á fætur
og í fýrra horf. Það hjálpaði þó ekki til
að móðir hennar lést eftir baráttu við
krabbamein skömmu eftir að hún
Trimformið Berglind sést hér fyrir utan
Trimform Berglindar á Englandi sem naut
mikilla vinsælda. Sjálfmissti hún 72 klló með
þvl að nota tækið. DV-mynd: úr einkasafni
f saltfisknum Berglind stofnaði Reykhús
Berglindar þegar hún varátján ára. Þar
saltaði hún og reykti fisk einn kvenna niður á
Granda og fannst það gaman.
DV-mynd: úr einkasafni.
lenti í árekstrinum. Berglind segist
hafa tekið á því með hálskragann en
hún hafi alla tíð verið harðákveðin í
því að ná aftur fullum styrk.
„Ég hafði val. Annað hvort að velta
mér upp úr því alla ævi að ég væri
með verki hér og þar eða ná mér upp
úr þessu og gera eitthvað annað í hf-
inu. Ég finn varla fýrir þessu í dag. Ég
sinni sjálfri mér, fer í nudd og dekra
við mig reglulega. Ég breytti matar-
æðinu og er afar sátt við sjálfa mig,"
sagði Berglind sem þurfti þó að selja
fýrirtækið sitt, Trimform Berglindar,
sem hún hafði byggt upp af miklum
dugnaði frá árinu 1992.
Léttist um 72 kíló
Eftir áreksturinn gat Berglind ekki
unnið við trimformið enda fól það í
sér mikla og langa veru við bekkinn.
„Ómar kom með þá hugmynd að
selja fyrirtækið og þótt ég hafi ekki
haft neina trú á því á þeim tíma seld-
ist það fljótt fyrir mjög góðan pening.
Sá peningur ásamt tryggingabótun-
um úr árekstrinum hjálpaði okkur
mikið," segir Berglind sem slysaðist
inn í trimformið eftir að hafa eignast
annað barn þeirra hjóna árið 1992.
„Ég þyngdist alveg hrikalega þeg-
ar ég átti fyrra barnið okkar og varð
mest 138 kíló. Ég komst í kynni við
trimformið og þar sem ég var svo feit
og þurfti svo marga tíma þá sá ég að
það var hreinlega ódýrara að kaupa
tæki. Ég léttist sjálf um 72 kíló, tók
myndir fyrir og eftir og varð fínasta
auglýsing fyrir tækið. Fljótlega fóru
vinkonur mínar að prófa tækið og
árið 1992, eftir seinni meðgöngu
mína, var þetta orðið heljarinnar fyr-
irtæki. Við vorum fyrst með þetta í
herbergi heima en sprengdum það
fljótt utan af okkur. Þá fórum við nið-
ur á Grensásveg. Eftir slysið seldum
við fyrirtækið en þetta var alveg of-
boðslega skemmtilegur tími. Það er
fátt jafn gefandi og að hjálpa konum
að grenna sig og létta," segir Berg-
lind.
Glæsilegt hús Hjónin Berglind og Ómar
hafa keyptstórglæsilegthús I Heiðaþingi
sem mun verða tilbúið næsta sumar.
Lífið er saltfiskur
Berglind hefur verið í sambandi
með Ómari Gunnarssyni í tuttugu ár
og eiga þau tvö börn, Sigríði 17 ára og
Jón Hilmar 14 ára. Berglind og Ómar
kynntust þegar hún var 17 ára og
hann 19 ára. Hann vann sem múrari
en hún sem saltfiskmatsmaður úti
á Granda. „Við vorum vinir í eitt ár
og skemmtum okkur saman. Síðan
byrjuðum við saman og það sér ekki
fyrir endann á því," sagði Berglind en
þau hjónin vinna bæði við Zikzak.
Aðspurð um saltfiskinn segir
Berglind að hún hafi nánast farið að
heiman þegar hún var þrettán ára.
„Faðir minn dó þegar ég var tólf ára
og það var nóg að gera hjá mömmu
í búðinni. Hún rak tískuvöruversl-
unina Ritu í Breiðholtinu og þar fékk
ég forsmekkinn af búðarrekstri. Hún
hafði hins vegar ofboðslega mikið
að gera eftir að pabbi dó og því fékk
ég að fara í heimavistarskóla þegar
ég var þrettán ára. Ég var í skólan-
um í tvö ár og vann í fiski útí á landi
á sumrin. Ég fór svo sem au-pair til
Englands í eitt ár áður en ég stofnaði
Reykhús Berglindar," sagði Berglind
og hló hátt.
Hún minnist þessa tíma með
glampa í augum. „Ég held að ég hafi
verið fyrsta konan sem saltaði og
reyktí fisk úti á Granda. Ég var yngst
en mér fannst frábært að fara á fisk-
markaðinn í Þorlákshöfn klukkan
sex á morgnana til að kaupa fisk. Síð-
an skemmir ekki íýrir að ég kynntist
manninum mínum á þessum tíma,"
segir Berglind sem telur að það sem
hafi komið henni í gegnum lífið sé
áhugi á öllu því sem hún hefur tekið
sér fyrir hendur. „Mér finnst ég aldrei
vera að vinna. Þetta er allt svo gam-
an. Allt frá því að berjast við karla um
fisk á markaði eldsnemma á morgn-
ana til þess að selja heldri konum föt
á góðu verði."
Saman í öllu
Það fer ekki á milli máia að Berg-
lind og maður hennar Ómar eru
samrýmd hjón. Þau vinna saman
og verja frístundunum saman. „Við
finnum ekki fyrir því að vinna sam-
an. Það er bara skemmtilegt. Síðan
förum við heim og eldum með fjöl-
skyldunni. Við getum síðan kúplað
okkur út úr því með því að fara út á
mótorhjól. Við gerum mikið af því.
Ómar á þrjú hjól en eins og er sit ég
aftan á. Ég ætla að kaupa mér hjól
bráðlega," segir Berglind.
Eins og DV greindi frá í síðustu
viku hafa hjónin fest kaup á stór-
glæsilegu einbýlishúsi sem enn er
ekki risið í Heiðaþingi í Kópavogi.
Húsið er klæðskerasaumað að þörf-
um fjölskyldunnar og segir Berg-
lind að auðvitað sé það stórt stökk að
flytja í tæplega 600 fermetra hús. „Við
kunnum að njóta lífsins. Okkur hef-
ur vegnað vel og sjáum ekki ástæðu
til annars en að njóta þess. Ég lít enn
á það sem forréttindi að vera á lífi
og ætla mér að njóta þess út í ystu
æsar."
oskar@dv.is
Meðkragann Þráttfyrirað
Berglind hefði hálsbrotnaö
var alltafstutt I brosið.
DV-mynd: úr einkasafni
0 CITROÉN
Berlingo Van 1,4 75 hö. 5 gíra*
Tilboð dagsins án vsk. 1.168.700 kn
Fjármögnunarleiga: 20% útborgun, 60 mán.
Mánaðargreiðsla án vsk. 17571 kr
Rekstrarleiga 39 mán og 75.000 km. akstur
Mánaoargreiðsla án vsk. 22.480 kr.
Betrí Rjör á fjárniögnun
Við erum sjálfselsk þjá Citroén. Þær tilfinningar sem
fylgja því að hafa tekist að gera enn betur í dag en í
gær gefur okkur þann drifkraft fyrirtækjaþjónusta
Citroén stendur fýrir. I það minnsta finnst okkur það.
Enn meira fyrir enn mínna
Hagstæðari samningar við framleiðanda; enn
betri kjör, enn betri þjónusta og sérútbúnir
atvinnubílar fyrir íslensk fyrirtæki styrkir okkur í
því að samvinna við aðra og stöðug hugmynda-
leit borgar sig alltaf Komdu í dag.
Samvinna við SP-Fjármögnun borgar sig. Nú getum
við boðið betri kiör í þeirra nafni. Komdu endilega til
okkar i Brimborg, Bíldshöfða 8 og skoðaöu hvað við
getum boðið þér. Kynntu þér kosti og hagkvæmni
samvinnu við okkur.
Dæmi um tilboð sem við gátum ekki boðið f gær
• Betri kiör á fiármögnun frá SP-Fjármögnun
• Hundrað þúsund krónur í beinan afslátt
• Fimmtán þúsund fleiri kílómetrar veljir þú rekstrarleigu
• Mun betri kiör á fjármögnunarleigu
• Mun betri kiör á rekstrarleigu
• Aðeins tuttugu prósent útborgun ve|jir —^
þú fjármögnunarleigu Öp
* Betri þjónustu í dag en í gær
SP-FJÁRMÖGNUN HF.
SP-Fjármögnun býður í enn betri fjármögnun á Citroén Berlingo
l Berlingo van 2,0 HDi 90 hö. 5 gíra*
Tilboö dagsins án vsk.1.317300 kr.
Fjármögnunarleiga: 20% útborgun, 60 mán.
Manaðargreiðsla án vsk. 19.877 kr.
Rekstrarleiga 39 mán og 75.000 km. akstur.
Mánaðargreiðsla án vsk. 25.219 kr
Þetta tilboð gildir meðan birgðir endast.
Dæmi um staðalbúnað I Citroen:
■ Meiri burðargeta: 800 kg
■ Hliðarhurðir beggja vegna meö
lokunarvörn
■ 180 gráðu opnun á afturhurðum
■ Topplúga fyrir lengri hluti
■ Hiti í sætum
■ Geislaspilari meö útvarpi og
fjarstýringu við stýri
■ Rafdrifnar rúður
■ Fjarstýrð samlæsing
■ Fellanlegt framsæti farþega
með borði og geymsluhólfi
fnskari
jþér
otmerus
Enn meira fyrir enn minna
Sífeilt fleiri Islendingar ve|ja Citroén. Sérstök
hönnun, framúrslcarandi taskni og mikil
eftirspum á endursölumarkaöi trvggja
gæði og hagkvæmni Citroén. Skoöaöu
súlumyndina hér til hægri og þú sérö aö
fteiri og fteiri Islendingar ve|ja Citroen.
brimborg
Öruggur atadur til ab vora í
Brimborg Beykjavfk: Bílðshöiða 8. simi 515 7000 | 8rimborg Akureyri: Tryggvabrsut 5, simi 462 2700 | www.citroen.is
^miðuðviðim&iðal^awttsltfiænttiftitOTÍturaaipioieriendramvrttCBd^EdiaSmtf-ogþiðrusturtirllamtattmttBlilgmÍeftanmófl^^