Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1971, Síða 18

Freyr - 15.01.1971, Síða 18
vegna litarins og með alla vega útliti, að fylgjast mjög vel með afkvæmum þeirra nú, þegar rúið verður og eins í haust, og setja á beztu alhvítu lambhrútana undan þeim í haust, ef þeim finnst ástæSa til að skipta um eða fjölga alhvítum hrútum. En sé alhvítur hrútur vel ættaður og gefi gó5 afkvæmi, þá á að nota hann áfram, hvort sem hann fær verðlaun fyrir útlit eða ekki. Góð afkvæmi eru miklu betri trygging fyrir góðu eðli en góð einstakl- ingsverðlaun á sýningu, og það tekur mjög stuttan tíma fyrir þá, sem áhuga hafa á góðum sýningarverðlaunum, að sameina góðan lit og gott byggingarlag. Það hefur sýnt sig á tilraunabúunum, þar sem alhvítir hrútar hafa oft lent í efstu sætum á hreppasýningum og tveir alhvít- ir hrútar þaðan hafa fengið I. verðlaun fyrir afkvæmi af þremur sýndum, en sá þriðji, sem sýndur var fékk II. verðlaun fyrir afkvæmi sín. Þess er að lokum rétt að geta, að undan- farið hafa verið miklar umræður um fyr- irkomulag á ullarmati og ullarverð til bænda og einnig hefur verið rætt nokkuð um að koma á mati á gærum frá bænd- um. Ullarmatslögin eru nú í endurskoðun, en ekkert hefur enn verið aðhafzt í sam- bandi við gærumat. Reynslan af því að senda sérmetna ull frá bændum til ullarþvottastöðva og fá hana metna þar og greidda eftir gæða- flokkum bendir til þess, að með því fyrir- komulagi verði hægar breytingar til batnaðar á ullargæðum og meðferð ullar- innar. Verðmismunur milli gæðaflokka myndi örva til betri framleiðslu Líklegt er að móttökumat á ull hefði meiri áhrif í þá átt að bæta meðferð og gæði ullarinnar. Þó er sama hvor aðferð- in er viðhöfð, að gera þarf allverulegan verðmismun á ullarflokkum til þess að um öra breytingu til batnaðar verði að ræða. í því sambandi er rétt að benda á það sérstaklega, að þeir bændur, sem hafa lagt sig sérstaklega fram um að rækta upp alhvítt fé og hafa bætt ullina af fénu með því mct:, framleiða líka lömb með alhvít- ar gærur, sem eru til muna eftirsóknar- verðara hráefni til loðsútunar heldur en gular gærur. Eins og er, hafa þessir bændur enga möguleika á að fá gærur sínar metnar eft- ir lit við slátrun, heldur fá þeir sama meðalverð og aðrir bændur á sama sölu- svæði.1 Gærurnar hafa undanfarið verið í mun hærra verði heldur en ullin og meiri möguleikar hafa verið á að gera veruleg- an mismun í krónutölu milli einstakra gæðaflokka af gærum heldur en milli einstakra ullarflokka. Svo virðist sem það ástand muni ekki breytast að ráði á næst- unni. Þess vegna er ástæða til að athuga gaumgæfilega möguleikana á því að taka upp í landinu flokkun á gærum eftir því hvort þær eru alhvítar eða gular og verð- mismun til bænda í samræmi við verð- mætismismun þessara flokka til vinnslu og til útflutnings. Með því móti gætu bændur unnið að kynbótum á ull og gær- um samtímis og haft hagnað af hvoru- tveggja, og verksmiðjurnar, sem úr hrá- efnunum vinna, fengju batnandi hráefni ár frá ári. Til þess að þessi þróun nái fram að ganga, þurfa bændur að fá glögg svör við því, hvert aukaverðmæti er fólgið í al- hvítri ull og alhvítum gærum umfram venjulega framleiðslu. Þegar þau svör liggja fyrir, má auðveld- lega sjá, til hvers er að vinna fyrir bænd- ur og þjóðfélagið í heild. 1 Haustið 1969 voru metnar gærur af sláturlömb- um við sláturhúsið á Svalbarðseyri í Eyjafirði, og aftur haustið 1970. Haustið 1970 var líka komið á gærumati í sláturhúsinu í Borgarnesi. S. A. 44 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.