Freyr - 15.01.1971, Qupperneq 30
4/°iAr
Tilraunir með heyköggla
Svo sem sagt hefur verið frá í FREY er áhugi
bænda um Norðurlönd talsverður fyrir því að
kanna að hve miklu leyti hægt sé að nota hey-
köggla (grasköggla) sem gróffóður handa naut-
peningi, en ýmsir ætla að þeir geti verið einasta
gróffóðrið, sem nauðsynlegt sé handa jórturdýrum.
Tilraunir um þessi efni eru stöðugt í gangi og
fleiri og fleiri kanna viðhorfin. Hraðþurrkunar-
búnaður hefur tekið stórframförum um undan-
farin ár og pressur fullkomnast einnig. Annars
gengur misjafnlega vel að fá kögglana til að loða
saman.
Alla leið norður í Helsingjaland í Svíaríki nær
áhugi fyrir fóðurvinnslu á nefndan hátt. Þar eru
bændur nú að undirbúa félagsskap um verksmiðju.
Þeir telja sig þurfa að fá tryggingu fyrir grasi
af 10000 hekturum lands. Verksmiðjan, sem þeir
hyggjast reisa er áætlað að kosti 500 þúsund sænsk-
ar krónur (8,5 millj. íslenzkar) og áætlað er að
kögglað og hraðþurrkað gras muni kosta 23—30
aura hvert kg (þ. e. ca 4—5 krónur íslenzkar) og
að í hverja fóðureiningu fari 1,5 kg fullgert fóður.
Próteinverð
Um undanfarin ár hafa allar próteinvörur verið
í mjög háu verði á heimsmarkaði. Auðvitað stafar
verðið af því að misræmi hefur verið milli fram-
boðs og eftirspurnar, en í heiminum er mjög mik-
ill próteinhörgull. Þetta þekkjum við íslendingar
mætavel. Próteinvörur, sem hér eru framleiddar
úr fiskúrgangi, seljast fyrir mjög hátt verð, svo
hátt, að við gleypum við og seljum úr landi svo
að segja allt, sem framleitt er af því tagi.
Hinu gleyma menn samtímis, að próteinvörur
okkar úr dýraríkinu eru að mun gildisauðugri en
þær, sem úr jurtaríkinu eru fengnar. Þessvegna
er alltaf hærra verð á hverri próteineiningu fiski-
og síldarmjöls en jurtapróteins. Þegar við flytjum
út alla próteinvöru okkar og aðra lakari til lands-
ins í staðinn þá erum við raunar að svíkja sjálfa
okkur. Við ýmsar rannsóknir og tilraunir sýnir
það sig, að prótein úr dýraríkinu er um það bil
15% gildisauðugra en hitt að meðaltali, sem úr
jurtaríkinu er fengið, jafnvel þótt það séu jórtur-
dýr, sem nota það. Þetta er vert að hafa í huga.
Gildisauðgin stafar af því hve alhhða amínósýru-
magn er í vörum úr dýraríkinu. Um mjólk og
Útgáfa FREYs
Eftir samninga þá, sem á síðasta hausti voru
gerðir milli prentara, bókagerðarmanna og
prentsmiðja, urðu breytingar á kaupi, vinnu-
tíma og nokkru öðru, sem hafði í för með
sér raunverulegar breytingar á öllum prent-
smiðjukostnaði, er nam ekki minna en um
27%. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á
útgáfu FREYs eins og öðru prentverki.
í tilefni af þessum verðlagsbreytingum
hafa útgefendur FREYs tekið útgáfustarf-
semina til athugunar og ráðgazt um hvað
gera skuli. Varð að ráði í þetta sinn að
hvorki skyldi hreyfa áskriftargjöldum né
auglýsingaverði enda þótt hvorutveggja sé
svo lágt, eftir verðbreytinguna, að sýnilega
er aðeins ein leið til að forðast mikinn halla,
en hún er sú að draga úr útgáfumagninu
eftir því sem þörf krefur.
Á síðasta ári nam útgáfumagnið 39 örkum
samtals, eða þremur örkum meira en lofað
hafði verið. Væntir útgáfan þess að á þessu
ári megi takazt að senda áskrifendum 36
arkir samtals þrátt fyrir umræddar verð-
hækkanir, en þær ná bæði til prentsmiðju-
kostnaðar og póstgjalda og útlit er fyrir að
pappír hækki í verði innan tíðar.
Með þessi viðhorf í huga óskar FREYR
lesendum sínum og öðrum landsmönnum
ailra farsælda á nýbyrjuðu ári.
mjólkurvörur gildir hið sama og kjöt (hold) af
spendýrum og fiski.
Um áramótin
Með réttu verður ekki annað sagt en að árið 1970
hafi verið bændastéttinni óhagstætt þótt þjóðin
að öðru leyti hafi notið betra árferðis en að und-
anförnu.
Mjög langur vetur ríkti allt frá septemberlok-
um 1969 og allt fram um sólstöður 1970, þótt hag-
bönn væru ekki eftir áramót á vissum lands-
svæðum. Til viðbótar var svo gosið úr Heklu hinn
5. maí, sem beindi vá og voða að bústofni og
bændum á vissum geira landsins. Urðu útgjöld
búanna af þessum sökum ákaflega mikil og tekjur
bænda munu varla hafa orðið meiri en sem nemur
helmingi á við aðrar stéttir.
Bót í máli er fyrir alla, sem stunda sauðfjárrækt,
að þessi vetur frá haustnóttum til áramóta hefur
varla getað talizt vetur, að minnsta kosti að því
leyti er snertir fóðureyðslu.
56
F R E Y R